Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2009
Bob Mintzer

BOB MINTZER og Stórsveit Reykjavíkur

 

Ketilhúsið Akureyri 31. maí kl 17:00

Miðasala á tónleikana á Akureyri fer aðeins fram á www.midi.is

 

Stórsveit Reykjavíkur pantaði á síðasta ári heila tónleikadagskrá hjá tónskáldinu, útsetjaranum og saxófónleikaranum Bob Mintzer í New York, en hann hefur verið í fremstu víglínu stórsveitaheimsins undanfarin 30 ár og er ein skærasta stjarna hans í dag.  Um er að ræða níu stór verk, flest útsetningar byggðar á fornum þjóðlögum, en einnig verk Mintzers innblásin af Íslandi. Þessi verk voru hljóðrituð hér á landi sl. sumar undir stjórn Mintzers og á Listahátíð mun hann bæði stjórna Stórsveitinni og grípa í saxófóninn.
Koma Bob Mintzer hingað er stærsta verkefni sem Stórsveit Reykjavíkur hefur ráðist í upp á eigin spýtur. Mintzer hefur leitt eigin Stórsveit í New York í tæpa þrjá áratugi og gefið út 12 geisladiska með henni. Hann hefur einnig verið meðlimur í hinni þekktu „fusion“ hljómsveit  Yellowjackets undanfarin 15 ár og leikið með henni um allan heim. Mintzer lék á árum áður með Stórsveit Buddy Rich um langt árabil, auk þess að útsetja og semja fyrir hann og ýmsa aðra, s.s. Thad Jones, Mel Lewis, Art Blakey, Jaco Pastorius, Tito Puente, Eddie Palmieri o.fl.  
Bob Mintzer hefur hlotið ein Grammy verðlaun og verið tilnefndur 14 sinnum.

Stórsveit Reykjavíkur var stofnuð árið 1992. Hún fæst við fjölbreytt verkefni á sviði rytmískrar tónlistar, allt frá samstarfi við þekkta poppsöngvara til framsækinnar nýrrar tónlistar. Hljómsveitin telur 17 hljóðfæraleikara, þar á meðal nokkra af fremstu djasstónlistarmönnum þjóðarinnar,  og er eina stórsveit landsins sem skipað er atvinnumönnum.
Meðal liðsmanna eru margir af fremstu jazztónlistarmönnum þjóðarinnar.

Fjölmargir innlendir og erlendir gestir hafa komið fram með hljómsveitinni á liðnum árum sem einleikarar, einsöngvarar og gestastjórnendur, þeirra á meðal  Bandaríkjamennirnir Frank Foster, Bill Holman, Maria Schneider, John Fedchock, Dick Oatts og Greg Hopkins. Einnig má nefna lykilmenn í jazzheimi Norðurlanda s.s. Ole Kock Hansen, Jesper Riis, Fredrik Norrén, Ulf Adåker, Lasse Lindgren, Jens Winther, Lars Jansson, Daniel Nolgård og Pétur Östlund.

 

Tónleikarnir eru rúmur klukkutími án hlés.



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica