Laugavegurinn - gengið á vit sögunnar
Lækjartorg - Laugavegur - Laugardalur
23. maí 13:00
Listamannahúsið START ART stendur fyrir gjörningi tileinkuðum þeim konum sem þvoðu þvott í gömlu þvottalaugunum í Laugardal. Með gjörningnum er sjónum beint að hinum ósýnilegu verkum kvenna í gegnum tíðina – verkum sem þó hafa verið bæði nauðsynleg og nærandi fyrir samfélag okkar - og einnig hinni ósýnilegu orku sem býr í jörðinni og við Íslendingar höfum lært að nýta okkur til góðs og velmegunar. Listinni er beitt sem hinu síkvika hreyfiafli sem dregur þræði fortíðarinnar fram og bregður á þá birtu, en margir þekktir listamenn taka þátt í uppákomunni, þeirra á meðal Magnús Pálsson, Rúrí, Ólöf Nordal, Daníel Magnússon, Aðalheiður Eysteinsdóttir, Hekla Dögg Jónsdóttir, Jón Laxdal, Birta Guðjónsdóttir og Níels Hafstein.
Öllum bæjarbúum sem vilja heiðra minningu þvottakvennanna er boðið til þátttöku. Reykvíkingum kann að finnast laugarnar vera langt frá miðborginni en í raun tekur gangan ekki nema hálftíma á hæfilegum hraða og ætti gangan að henta áhugasömum frá átta ára og upp í áttrætt. Gengið verður frá Lækjartorgi, upp Laugaveginn, inn í Laugardal og endað við gömlu Þvottalaugarnar. Göngufólkið er beðið að hafa með sér ver, handklæði eða flík sem tengir fólkið saman í göngustraumi sem liðast óslitinn upp allan Laugaveginn og á leiðarenda. Við upphaf og lok göngunnar verða uppákomur og einnig á sjálfri göngunni. Í listamannahúsinu START ART verður sýning og sápugerð og fólki boðið til virkrar þátttöku.
Gjörningurinn – gangan
Gangan hefst við útitaflið á Lækjartorgi kl.13.00 og endar inni við gömlu þvottalaugarnar þar sem þvottagjörningurinn heldur áfram með kaffiívafi og trommuslætti til ca 15:00. Göngufólk tekur með sér (eða fær við útitaflið) flík eða þvott sem það ber á táknrænan hátt í einum samfelldum straumi upp Laugaveginn.
Samhliða göngunni munu 36 myndlistarmenn varða leið hennar með verkum sínum og hugmyndaríkir nemar Listaháskólans gleðja augu og eyru. Auk þess munu kórar syngja og lúðrasveitir hljóma og skúringarkona heimsins tekur til hendinni. Í Laugardal flytur Nýlókórinn gjörning ásamt Weird Girls og þvottaglöðum Reykvíkingum. Þar mun hin sérstæða hljómsveit Parabólur berja bumbur, harmónikkusveitin Vaskar konur tekur lagið, listamaðurinn Páll á Húsafelli laðar fram tóna úr steinum og ýmislegt fleira verður á seyði þennan mikla þvottadag. Vonandi mæta sem flestir til að heiðra minningu þvottakvennanna sem urðu til þess að Laugavegurinn varð til, og mikilvægt er að þessari vitneskju um uppruna hans sé haldið lifandi í menningarvitund borgarbúa, ungra sem aldinna. Þeir sem taka þátt í göngunni verða sjálfir hluti listaverksins og gjörningsins LAUGA VEGURINN 2009.
Þátttaka í göngu og í Laugardal: Parabólur, Léttsveit Reykjavíkur, Hörður Bragason og Kormákur Geirharðsson, Dómkórinn, Hildur Guðný Þórhallsdóttir, Mánakórinn, Harmónikkusveitin Vaskar konur, Páll Guðmundsson frá Húsafelli, Kvennakirkjan, Skólahljómsveit Austurbæjar, Trommusveit Austurbæjarskóla, Listaháskólinn og Una Þorleifsdóttir.
Myndlistin
Í húsnæði START ART að Laugavegi 12b verður innsetning og workshop sem tengist temanu, myndlistarsýning og sápugerð. Sýningin opnar formlega laugardaginn 23. maí kl. 17 og lýkur 19. júní.
Myndlistarmennirnir sem sýna í START ART og við Laugaveginn eru: Aðalheiður Eysteinsdóttir, Anna Eyjólfsdóttir, Anna Hallin, Anna Richardsdóttir, Árni Þór Árnason, Ása Ólafsdóttir, Ásdís Pétursdóttir, Ásta Ólafsdóttir, Birta Guðjónsdóttir, Bjarki Bragason, Daníel Magnússon, Eygló Harðardóttir, Halldór Ásgeirsson, Harpa Björnsdóttir, Helgi Þórsson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Hulda Vilhjálmsdóttir, Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir, Jón Laxdal, Kristinn E. Hrafnsson, Kristín Reynisdóttir, Kristveig Halldórsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Magnea Ásmundsdóttir, Magnús Pálsson, Níels Hafstein, Olga Bergmann, Ólöf Nordal, Ragnhildur Stefánsdóttir, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sara Riel, Sari Cedergren, Þórdís Jóhannesdóttir, Þórdís Alda Sigurðardóttir, Þórunn Elísabet Sveinsdóttir, Þuríður Sigurðardóttir.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur
Laugardaginn 8. maí opnar í samstarfi við Ljósmyndasafn Reykjavíkur sýning á ljósmyndum úr safneigninni sem segja sögu þvottalauganna í Laugardal.
Þvottalaugarnar
Líklegt er að heitu laugarnar í Laugardal hafi verið notaðar til þvotta og baða allt frá landnámi. Ritaðar heimildir frá því um miðbik 18. aldar fjalla um þennan einstaka þvottastað, en þar var þvegið fram undir 1970. Margar sögur eru til af konum sem unnu fyrir sér með því að þvo þvott fyrir aðra á 19. og 20. öld. Þær gengu oft langa leið með þungan þvottinn á bakinu, jafn vetur sem sumar í misjöfnum veðrum, og unnu oft vinnu sína við mikla vosbúð. Þessar konur eru hetjur í okkar augum í dag og viljum við heiðra minningu þeirra með þessu verkefni.
Einnig þvoðu við laugarnar franskir sjómenn (frönsk stjórnvöld guldu á tímabili fyrir það sérstakan skatt). Löngum voru þær notaðar til baða, jafnt af Íslendingum sem öðrum, jafnt konum sem körlum, og þangað riðu Reykvíkingar á sumardögum sér til skemmtunar. Erlendir ferðamenn gerðu sér ferð þangað til að líta náttúruundrið og okkar fyrstu vísindamenn rannsökuðu hverinn og laugarnar.
Laugavegurinn
Vagnfær vegur var lagður inn í Laugardal árið 1880 í því skyni að létta konunum erfiðið og burðinn með bala og þvott til og frá Laugunum, eins og þá var siðvenja. Er það upphaf Laugavegarins eins og við þekkjum hann í dag. Þegar akfært var orðið inn í Laugar hófust reglulegar vagnferðir en þær lögðust fljótlega af, því greiða þurfti fyrir ferðina og var það mörgum þvottakonunum of dýrt, svo burður kvenna hélt áfram um langa hríð. En hagur þeirra batnaði smám saman og þegar boðið var upp á vagnferðir á áætlun inn í Þvottalaugar, þar sem tekinn var upp þvottur á þremur stöðum í borginni, tóku þær að nýta sér það. Árið 1887 byggðu kvennasamtökin Thorvaldsensfélagið þvottaskýli við laugarnar, þegar eldra hús byggt af bæjaryfirvöldum hafði orðið tíma og veðrum að leiksoppi. Höfðu konurnar þá eitthvað skjól við vinnu sína. Löngu síðar reis betra þvottahús af grunni, steinsteypt með heitu vatni rennandi úr krönum, borðum og bekkjum og snúrustaurum. Vinsælasta sápan var auðvitað Sunlight sápa, og þegar nær dró nútíma okkar tóku þvottavélar og vindur við af þvottamboðum eins og þvottabretti, þvottabala, þvottaklappté og hnefum kvenna. Laugakaffi var bruggað úr sjóðandi heitu vatninu og þótti hin mesta heilsubót
Rennandi heitt vatnið í þvottalaugunum var munaður reykvískra kvenna fram á sjötta tug tuttugustu aldar, munaður sem við tökum sem sjálfsögðum hlut í dag. Þegar hitaveita var komin í flest hús í Reykjavík á fimmta áratug síðustu aldar, fækkaði ferðum kvenna í þvottalaugarnar og að lokum fengu kraftlyftingamenn hús þeirra til að stunda æfingar, og var þá kallað Jakaból.
Margt fólk er á lífi í dag sem á æskuminningar úr laugunum. Þeirra á meðal er Þuríður Sigurðardóttir, ein listamannanna sem standa að START ART, en móðir hennar þvoði þar bæði þvott og börn.
Nafn verkefnisins og hugmynd
Nafn verkefnisins, LAUGA VEGURINN 2009, vísar augljóslega í Laugaveginn, en er sett fram á þennan hátt til að fólk skilji tilurð hans betur. Upphaf Laugavegarins var talið vera við Vegamótastíg, eða u.þ.b. þar sem START ART listamannahús stendur við Laugaveg 12b í Reykjavík. Hugmyndin varð til árið 2007 í listamannahópnum sem á og rekur START ART listamannahús. Listamennirnir eru Þórdís Alda Sigurðardóttir, Þuríður Sigurðardóttir, Ragnhildur Stefánsdóttir, Magdalena Margrét Kjartansdóttir, Ása Ólafsdóttir og Anna Eyjólfsdóttir.
Nokkrar áhugaverðar vefsíður sem tengjast verkefninu:
START ART www.startart.is
Ljósmyndasafnið www.ljosmyndasafnreykjavikur.is
Weird Girls www.theweirdgirlsproject.com
Parabólur www.parabolur.com

