TIGER LILLIES
Djöfullegir en dásamlegir
Viðburður
Heimur Tiger Lilles er skuggalegur, skrýtinn og margslunginn og þar má upplifa jafnt andartök óbærilegar sorgar, nístandi svartan húmor og unaðslega fegurð. Húmorinn er alltaf tvíræður og íronían beitt. Tónlist þeirra er blanda af Berlínarkabarett millistríðsáranna, anarkískri óperu og sígaunatónlist og í henni enduróma raddir leikskáldsins Bertolts Brecht og franska söngvarans Jacques Brel. Meðlimir Tiger Lillies hafa aldrei brugðist því hlutverki sínu að koma áheyrendum og áhorfendum á óvart með sínum einstöku og allt að því afbrigðilegu tónlistartilþrifum. Þeim er best lýst sem djöfullegum en samt dásamlegum.
Tónlist, og ekki síður tilþrif, Tiger Lillies skar sig strax úr og þótt margir hafi reynt að feta í fótspor þeirra hefur engum tekist að komast með tærnar þar sem Tígrisliljurnar hafa hælana. Í fyrstu tróðu þeir upp á breskum pöbbum og síðan í Piccadilly leikhúsinu, en þaðan lá leið þeirra í flauelsmjúk sæti óperuhússins í Sidney í Ástralíu. Fyrr en varði voru Tiger Lillies lagstir í tónleikaferðir um allan heim og farnir að vinna með allskyns listamönnum og í leikhúsum. Þeir fengu hin virtu Olivier verðlaun fyrir “cult” söngleikinn Shockheaded Peter og Grammy-tilnefningu fyrir plötu sína Gorey End. Á 20 árum hafa þeir gefið út 21 geisladisk, tekið þátt í fjölmörgum uppákomum, haldið tónleika um allan heim. Og aldrei brugðist því hlutverki sínu að koma áheyrendum og áhorfendum á óvart með sínum einstöku og allt að því afbrigðilegu tónlistartilþrifum.
Tiger Lillies var stofnuð af Martyn Jaques, sem á unglingsárunum bjó í íbúð fyrir ofan vændishús í Soho í London. Segja má að hann hafi fengið niðinn af næturlífinu í Soho beint í æð þar sem hann lá á hleri í íbúð sinni. Það tók Jaques rösk tíu ár að snúa þeirri reynslu á listrænan hátt sér í hag, á meðan hann æfði sig sem söngvari og lagahöfundur. Árið 1989 eignaðist hann sína fyrstu harmonikku og skömmu síðar urðu Tiger Lillies til.
Snemma á tíunda áratugnum lék tríóið á pöbbunum í London, fringe-stöðunum í Edinborg, öldurhúsunum í Tékkóslóvakíu, á salatbörum í Sviss, sem og á fjölförnum götum margra borga í Evrópu. Þegar meðlimir hópsins eru spurðir út í furðulegan tónlistarstíl sinn svarar Martyn Jaques því gjarnan til að um sé að ræða pönkkabarett í anda Brechts, sem á tveimur áratugum er orðinn afar útbreiddur í þeim skilningi sem Tiger Lillies leggja í hann.
Heimur Tiger Lilles er skuggalegur, skrýtinn og margslunginn og þar má upplifa jafnt óbærilega sorg, nístandi svartan húmor og unaðslega fegurð. Þetta einstaka anarkíska óperutríó í anda Brecht leikur ekki tónlist sem inniheldur „fallegar, ljóshærðar stúlkur á hlaupum undan strákum á engjum,“ svo vitnað sé beint í höfuðpaur tríósins. Textarnir geyma dökkar hendingar; frá vændi til fíkniefnaneyslu og frá ofbeldi til örvæntingar. Kímnin er þó alltaf tvíræð og háðsádeilan beitt. Tónlist þeirra er blanda af Berlínarkabarett millistríðsáranna, anarkískri óperu og sígaunatónlist og í henni enduróma raddir leikskáldins Bertolts Brecht og franska söngvarans Jacques Brel.
Tiger Lillies sá um tónlistina í kvikmyndinni Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur sem frumsýnd var í ágúst 2008.
UPPSELT
Tónleikarnir verða tæpir 2 tímar með hléi.
Listamenn
Martyn Jaques - söngur, harmonikka, píanó og ukulele
Martyn Jaques, sem er forsprakkinn og hjartað í Tiger Lillies, bjó á viðkvæmum unglingsárum fyrir ofan vændishús í Soho í London. Hann er sjálfmenntaður söngvari og tónlistarmaður og leikur jöfnum höndum á harmonikku, píanó og ukulele (fjögurra strengja gítar frá Hawaii) og syngur í sérkennilegri falsettu. Textar hans lýsa (í subbulegum smáatriðum) melludólgum, vændiskonum, fíkniefnaneytendum, auðnuleysingjum og öðrum úrhrökum samfélagsins. Hann hefur skrifað tónlist fyrir West End, þar á meðal verðlaunasöngleikinn Shockheaded Peter. Eftirminnileg frammistaða hans þar færði honum Olivier-verðlaunin sem besti aukaleikari í söngleik.
Adrian Huge – trommur, slagverk og leikföng
“James Joyce trommuheimsins!” hrópaði David Byrne þegar hann sá fyrst til Adrians Huge með Tiger Lillies. Áður en hann var uppgötvaður í djass/pönk/calypso bandinu Uncle Lumpy and the Fish doctors í Dover árið 1982, vann hann fyrir sér sem slátrari, í bakaríum, bönkum, mótorhjólabúðum og sem blóðheitur bifvélavirki. Eftir sneypuför Uncle Lumpy til London leystist hljómsveitin upp, en svo vildi til að á sama tíma urðu Tiger Lillies til. Í Tiger Lillies er hann hamingjusamastur þegar hann fær að hamast á smágerðum trommum, leikföngum og jafnvel eldhúsáhöldum.
Adrian Stout - kontrabassi, sög og söngur
Adrian Stout hefur leikið blús, djass, sveitatónlist og annars konar frumstæðari tónlist í allskyns lítt þekktum hljómsveitum. Hann gekk til liðs við Tiger Lillies árið 1995. Þessi annars fyrrum alvörugefni tónlistarmaður hefur fundið sína fjöl dansandi í leðurbuxum, með því að klæðast eins og vesæl vændiskona og í ástarleikjum með uppblásnum kindum. Stundum hefur sést til hans leika með Stuart A. Staples í Tindersticks.
Umsagnir
„Djöfullegir en dásamlegir”
Bruce Dessau, Evening Standard
„Þeir eru engum líkir. Allar lýsingar eru óréttlátar – þeir eru algjörlega óviðjafnanlegir.”
Alex Kapranos, meðlimur Franz Ferdinand
„Þessi dásamlega myrki kabarett er eins og Kurt Weill meitlaður af Aleister Crowley og útkoman er gjörsamlega gallalaus. Stórfenglegt.”
Ian Gitins, The Guardian
„Hinn fullkomni vettvangur Tiger Lillies væri að koma fram fyrir hönd Bretlands í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva.”
David Rose, The Times Online
“Afburðasnjallt og allsendis stórkostlegt! Þið fáið aldrei að heyra jafn siðspillta og ruglaða en um leið áleitina og sorgmædda tónlist.”
Marc Almond
„Rödd Martyns er engri lík; ef Guð er til, óska ég þess að hann hljómi eins og Martyn þegar hann talar.”
Wellington
Hlekkir
Heimasíða Tiger Lillies:
Hlekkir inn á áhugaverð myndbönd með Tiger Lillies:
http://www.youtube.com/watch?v=zhrGspR0yQo
http://www.youtube.com/watch?v=r7P2xTxCS_Q
Opinber mySpace síða Tiger Lillies:
http://www.myspace.com/tigerlilliesuk

