DEBORAH VOIGT
Í fremstu röð dramatískra sóprana
Um viðburðinn
Deborah Voigt er tvímælalaust í fremstu röð dramatískra sóprana í heiminum í dag.
Nýlega var sagt um hana í stórblaðinu New York Times að hún væri á hátindi ferils síns og undraverður túlkandi. Hún er þekkt fyrir frábæra túlkun sína á verkum eftir R. Strauss og R. Wagner en hún hefur sungið aðalkvenhlutverkin í alls sex óperum Wagners: Tristan og Ísold, Valkyrjunum, Hollendingnum fljúgandi, Tannhäuser og Lohengrin og öll frægustu kvenhlutverk í óperum R.Strauss,: Ariadne á Naxos, Helenu frá Egyptalandi, Elektra, Rosenkavalier og Salome. Auk þess hefur hún sungið fjölmörg hlutverk ítölsku óperubókmenntanna, svo sem Toscu, Aídu, Lady Macbeth, Amelíu í Grímudansleiknum og Leonóru í Valdi örlaganna eftir Verdi. Hún hefur sungið inn á fjölmargar geislaplötur fyrir Deutsche Grammophon, RCAVictor, EMI og fleiri útgáfufyrirtæki. Deborah heldur reglulega námskeið (masterclass) fyrir söngvara.
Voigt heldur fjölmarga einsöngstónleika á ári hverju og þar blandar hún gjarnan saman aríum, klassískum sönglögum og vinsælum lögum úr Broadway-söngleikjum. Á tónleikum Listahátíðar í Reykjavík í Háskólabíói 31. maí býður hún upp á efnisskrá sem samanstendur af sönglögum eftir hina bandarísku Amy Beach, sem heyrast ekki oft hér á landi, sönglögum eftir Giuseppe Verdi og Richard Strauss, þremur sönglögum eftir Ottorino Respighi og fjórum sönglögum ameríska samtímatónskáldsins Ben Moore. Tónleikunum lýkur svo á nokkrum þekktum og vinsælum lögum úr söngleikjum Leonard Bernsteins. Það er píanóleikarinn Brian Zeger sem leikur með Voigt á tónleikunum en Zeger hefur einnig starfað með listamönnum á borð við Itzhak Perlman, James Galway og Bryn Terfel .
Það vakti mikla athygli fyrir nokkrum árum þegar Voigt var látin hætta í hlutverki Ariödnu í uppfærslu Covent Garden óperuhússins á óperu R. Strauss fyrir þær sakir að vera of þung og passa ekki í þröngan svartan kjól sem leikstjóri sýningarinnar taldi nauðsynlegan fyrir listræna heildarmynd sýningarinnar. Í kjölfarið tók Voigt sig á og léttist um sjötíu kíló. Þetta vakti mikið umtal og var m.a. gerð heimildamyndin „Fögur form“ um það fjaðrafok sem skapaðist vegna þess að samningi hennar var rift, en atvikið vakti mikla hneykslun í óperuheiminum.
Voigt stundaði nám við California State University í Fullerton og var félagi í Merola-óperuverkefni San Francisco borgar. Árið 1988 sigraði hún í Pavarotti-söngvarakeppninni í Fíladelfíu, ári síðar fór hún með sigur af hólmi í Verdi-keppninni í Bussetto og árið 1990 sigraði hún hina virtu Tchaikovsky-keppni, sem haldin er á fjögurra ára fresti í Moskvu. Með sigrum í þessum þekktu söngvarakeppnum opnuðust henni dyr í stærstu óperuhúsum heims þar sem hún kemur reglulega fram. Má í því sambandi nefna Lýrísku óperuna í Chicago, Bastilluóperuna í París, Konunglega óperuhúsið, Covent Garden í Lundúnum og fleiri. Árið 1991 vakti hún mikla athygli í hlutverki Ariödnu í Ariadne á Naxos eftir R. Strauss í uppfærslu óperuhússins í Boston og það sama ár söng hún sitt fyrsta hlutverk við Metrópólítan-óperuhúsið í New York. Árið 1995 söng hún hlutverk Amalíu í Grímudansleiknum á móti Luciano Pavarotti við Covent Garden óperuna. Á síðasta ári einbeitti Voigt sér aðallega að óperuflutningi og var hápunkturinn túlkun hennar á Maddalenu í óperunni Andrea Chénier eftir Giordano í uppfærslu óperuhússins í Barcelona. Hún söng þá einnig í fyrsta sinn hlutverk Ísoldar á Metrópólitan og var m.a. ein sýningin sýnd í beinni útsendingu í kvikmyndahúsum víða um heim. Gagnrýnandi New York Times lofaði frammistöðu hennar og sagði hana hafa verið stjörnu sýningarinnar, túlkun hennar hafi einkennst af tærum, beittum og vel mótuðum söng. Á þessu ári bætti hún enn einu aðalhlutverkinu við langan lista hlutverka sem hún hefur sungið við Metrópólitan-óperuhúsið, hlutverki Giocondu í samnefndri óperu Ponchiellis. Hún söng einnig Salome í fyrsta sinn við Vínaróperuna en þar hefur hún verið aufúsugestur á hverju ári frá því hún sló þar í gegn sem Ísold árið 2003.
Ummæli
Nýleg ummæli um Deborah Voigt:
„Flott prógramm og rausnarlegt.”
Kristinn Sigmundsson óperusöngvari '09
„Deborah Voigt er tvímælalaust í fremstu röð dramatískra sóprana í heiminum í dag, björt og hljómmikil rödd hennar yfirgnæfir auðveldlega stærstu Wagnerhljómsveitir.“
The New York Times ´08
„Voigt, sem er bersýnilega á hátindi ferils síns, er undraverður túlkandi. Hljómur hennar er í senn jarðneskur og leiftrandi…blátt áfram dýrðlegur.”
The New York Times ´07
“…hún er stórfengleg.”
The Times ‘08
“…svo virðist sem hún hafi fundið æðri tilgang og nýtt frelsi … tilfinningu sem hittir mann beint í magagrófina.”
The Guardian ´08
Heimasíða Deborah Voigt:
www.deborahvoigt.com
Forvitnilegt viðtal við Deborah Voigt í Guardian:
www.guardian.co.uk/music/2006/sep/26/classicalmusicandopera.healthandwellbeing
Óperur með Deborah Voigt á www.youtube.com
http://www.youtube.com/watch?v=z-5IglEpauA
http://www.youtube.com/watch?v=6nY8H-UYGic&feature=related
Áhugaverð viðtöl og umfjallanir á www.youtube.com:
Efnisskrá
Amy Beach
The Year's at the Spring
Ah, Love, But a Day
I Send my Heart up to Thee
Giuseppe Verdi
Non t'accostare
Deh, pietoso
Brindisi # 2
Stornello
Richard Strauss
Ich trage meine Minne, Op. 32 no. 1
Schlechtes Wetter
Lob des Leidens, Op.15, 3
Ach, Lieb, ich muss nun scheiden, Op. 21, #3
Frühlingsfeier, 56, 5
HLÉ
Ottorino Respighi
Contrasto
Nebbie
Notte
Ben Moore
I am in Need of Music
This Heart that Flutters
To the Virgins
Bright Cap
Leonard Bernstein
Piccola Serenata
So Pretty
Greeting
Another Love
It's Gotta be Bad to be Good
Somewhere
Birt með fyrirvara um breytingar
