Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2009
Lhasa de Sela

LHASA DE SELA

Heimstónlist í hæsta klassa

Um viðburðinn

Heimstónlist í hæsta klassa

Lhasa de Sela er amerísk-kanadísk söngkona, lagahöfundur og sagnaskáld sem syngur á ensku, frönsku og spænsku. Hún ólst upp á flakki um Mexíkó og Bandaríkin og drakk í sig mismunandi menningarheima og tónlistarstrauma. Í tónlist hennar má heyra blöndu af hefðbundinni suður-amerískri tónlist og frumlegum tónsmíðum þar sem gætir sterkra áhrifa frá mexíkóskri tónlist, austur-evrópskri sígaunatónlist og óhefðbundnu rokki. Lhasa de Sela hefur unnið til fjölda alþjóðlegra verðlauna, t.d. fékk hún heimstónlistarverðlaun BBC sem besti tónlistarmaður Ameríkuríkjanna árið 2005. Felix verðlaunin féllu henni skaut 1997 og Juno-verðlaunin 1998, en þá þótti hún best alþjóðlegra listamanna. Lhasa de Sela hefur gefið út tvo geisladiska; La Llorona, sem kom út 1998 og Living Road árið 2004. Báðir diskarnir fengu frábæra dóma og seldust í milljónum eintaka. Þriðji geisladiskur hennar er væntanlegur í apríl á þessu ári og er hans beðið með mikilli eftirvæntingu. Á tónleikum Listahátíðar í Nasa flytur hún ásamt hljómsveit gamla tónlist í bland við nýja.

UPPSELT ER 23. MAÍ. AUKATÓNLEIKAR 24. MAÍ KL. 20.00

Tónleikarnir verða um einn og hálfur tími án hlés.

ATH. að þetta eru standandi tónleikar!

 

 „Lhasa de Sela holdgervðist í senn í alheimsstjörnuna Edith Piaf og kvenkynsútgáfuna af Tom Waits á stórkostlegum tónleikum.”
Guardian

 

Heimasíða Lhasa de Sela
lhasadesela.com/

 

Áhugaverð myndskeið með Lhasa de Sela:
http://www.youtube.com/watch?v=d5yrM07ia4A

http://www.youtube.com/watch?v=AOLg_XY2cWA

 http://www.sendereando.com/portrait_lhasa/vids/lafrontera.html


Um listamanninn

 

Það var framandi hreimur Lhasa de Sela á fyrsta geisladisk hennar La Llorona sem vakti fyrst athygli manna árið 1998. Svo virtist sem komin væri fram á sjónarsviðið söngkona og lagahöfundur frá einskinsmannslandi með tónlist sem ögraði öllum skilgreiningum. Sem barn flakkaði hún á milli Mexíkó og Bandaríkjanna og fangaði með einstakri næmni rómanska menningu á ferðum sínum. Tónlist hennar er í senn kunnugleg og sannarlega einstök; samsuða farandtónlistar, austur-evrópskrar sígaunatónlistar, sveitatónlistar og vinsællar alþýðutónlistar þar sem hún miðlar textum á spænsku á ástríðufullan og einlægan hátt. Innihaldi hans er best lýst með rómantík í anda Brontë-systra, fíngerðum húmor og óvæntum tilfinningalegum hráslaga. Þegar Bandaríkjamenn og Evrópubúar heyrðu tónlist hennar sögðu þeir: “Ah, Mexíkó …”, en viðbrögð Mexíkóbúa voru: “Undarleg tónlist! Hvaðan er hún?”

Tónlist hennar sló fyrst í gegn í Kanada og Frakklandi en síðan má segja að hálf heimsbyggðin hafi heyrt til hennar. Hún vann til verðlauna  og seldi meira en hálfa milljón eintaka af geisladisknum, sem telst óvenjulegt þegar um ræðir óhefðbundna tónlist sem sungin er á spænsku.

 

Geisladiskurinn La Llorona er enn þann dag í dag hátt skrifaður í tónlistarheiminum og er nú, að 12 árum liðnum, enn að rata til nýrra aðdáenda. En Lhasa de Sela var bara rétt að hefja ferilinn og árið 2003, sjö árum síðar, kom The Living Road út. Þá kom bersýnilega fram að hún hafði forðast að láta vinsældirnar hafa áhrif á sig en lét þess í stað andagiftina ráða för. Þetta kemur m.a. fram í því að hún kaus að skrifa og syngja á þremur tungmálum og einnig í sögum hennar sem rötuðu á þennan undraverða geisladisk. Hún er ekki bara vel að sér í spænsku ensku og frönsku heldur líka hrá, persónuleg og beitt á öllum tungumálunum. Hún á mjög auðvelt með að skipta úr einu tungumáli yfir í annað hvort sem hún er að flytja ljúfa og kvenlega farandtónlist eða tilfinningaþrungna trúartónlist, snúinn slagverksblús eða ljúfa vögguvísu. Náðargáfa hennar virðist ná að halda öllu saman eins og fyrir kynngi. Einlægur og dáleiðandi flutningur hennar á tónleikum hefur skilað henni til hundruða borga allt frá Mexíkó til Istanbul og nú til Reykjavíkur.

Lög af fyrrnefndum geisladiskum hafa ratað í sjónvarpsþætti eins og Sopranos, heimildamynd Madonnu, I am Because We are, vísindakvikmyndina Cold Souls og til samstarfs við Tindersticks, Patric Watson, Arthur H og margra aðra. Árið 2005 fékk hún eins og áður sagði heimstónlistarverðlaun BBC sem besti tónlistarmaður Ameríkuríkjanna. Eftir sex ára bið er von á þriðja geisladisk hennar sem ber einfaldlega heitið Lhasa. Hann er saminn, framleiddur og skipulagður í þaula af henni sjálfri og tekinn að mestu upp á tónleikum. Og það hefði ekki getað verið örðuvísi – natni og umhyggjusemi tónlistarmanna í hennar garð og öfugt er áþreifanleg og skilar sér á fíngerðan hátt í styrk og takti sem er ómögulegt er að fanga með öðrum hætti, enda tónlistin og eftirvinnsla hennar er gerð með alvöru gamaldags hætti.

Nýji geisladiskurinn, sem kemur út núna í apríl, er lifandi dæmi um fágæta tegund tónlistar sem fær að þróast óáreitt fyrir markaðsöflunum. Lhösu hefur tekist að fanga eitthvað óvenjulegt sem lítur þó út fyrir að vera án fyrirhafnar. Lögin eru sungin á ensku og hljóðfæraskipan er í senn einföld og óvenjuleg; harpa, gítar, stálgítar, bassi, trommur og píanó. Laglínurnar eru kunnuglegar og ómótstæðilegar en samt frumlegar. Ljóðrænn textinn er skrifaður á sláandi auðskiljanlegri og myndrænni ensku. Stílinn er allt frá því að hljóma forn, þó án eftirsjár, og nútímalegur, án tæknilegra galdra. Útkoman er djörf, hófstillt og áferðarfalleg og söngurinn óþvingaður, opinn og  skýr. Fjarri öðrum hljómi og grimmd tónlistarmarkaðshyggjunnar. Lhasa hefur hægt og bítandi skipað sér sess sem mest heillandi söngvaskáld sinnar kynslóðar. En samt …hún er rétt að hefja sig til flugs.




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica