Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2009
Hjaltalín

Hjaltalín / Daníel Bjarnason

 

HJALTALÍN með KAMMERSVEIT undir stjórn DANÍELS BJARNASONAR


Hljómsveitin Hjaltalín stendur fyrir sínum stærstu tónleikum frá upphafi á Listahátíð í Reykjavík. Sérstök kammersveit hefur verið sett saman og kemur hún fram með Hjaltalín á tónleikunum. Kammersveitina leiðir Daníel Bjarnason, sem stjórnaði nýlega Sinfóníuhljómsveit Íslands og fékk mikið lof fyrir. Samtals munu 20 manns sjá um að flytja tónlist Hjaltalín á sviðinu.

 

Tónleikarnir verða þeir fyrstu sem Hjaltalín heldur hérlendis á þessu ári, en undanfarið hefur hún verið upptekin á erlendri grundu. Hjaltalín mun einmitt gera sérstakt hlé á tónleikaferð sinni um Evrópu til þess að koma fram á þessum tónleikum.
Meðlimir hljómsveitarinnar eru nú í óða önn að semja nýtt efni fyrir aðra breiðskífu sína sem væntanleg er næsta haust. Fjölmörg ný lög verða því frumflutt sérstaklega á tónleikunum, en auk þess verður eldra efni að finna á efnisskránni.
Sérstök kammersveit hefur verið sett saman til þess að hjálpa meðlimum Hjaltalín við tónlistarflutning á tónleikunum. Kammersveitina leiðir Daníel Bjarnason, sem stjórnaði nýlega Sinfóníuhljómsveit Íslands og fékk mikið lof fyrir.


Kammersveitin skipa, auk Daníels, einvala lið hljóðfæraleikara sem allir hafa skapað sér sess sem fyrirtaks einleikarar. Má þar t.d. nefna Melkorku Ólafsdóttur (flauta), Matthías Nardeau (óbó), Hrafnkel Orra Egilsson (selló), Unu Sveinbjarnardóttur (fiðla) og Borgar Þór Magnason (kontrabassi).

Ekkert verður til sparað til þess að gera tónleikana sem glæsilegasta og aðstandendur Hjaltalín og félagar þeirra lofa einstakri upplifun sem lengi verði í minnum höfð.
 

Hljómsveitin Hjaltalín var stofnuð árið 2004 og er skipuð þeim Axeli Haraldssyni, Guðmundi Óskari Guðmundssyni, Hirti Ingva Jóhannssyni, Högna Egilssyni, Rebekku Björnsdóttur, Sigríði Thorlacius og Viktori Orra Árnasyni.

Gaman er að geta þess að í janúar sl. fékk Hjaltalín frábæra dóma í Financial Times í kjölfar tónleika þeirra í London. Í dómnum var  þeim m.a. líkt við Sigur Rós, Hjálpræðisherinn og Electric Light Orchestra. Þá fjallaði franska dagblaðið Libération nýlega um Hjaltalín á vefsíðu sinni en þar er birtur listi yfir lög sem eru spilun. Fimm lög eru á listanum. Efst á blaði var  Goodbye July með Hjaltalín.

UPPSELT
Tónleikarnir eru tæpir 2 tímar með hléi.



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica