Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
Myndlist
Maine, Girl on Bridge

FRÁ UNUHÚSI TIL ÁTTUNDA STRÆTIS

Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir

15. maí kl. 19.00

Sýningin stendur til 30. ágúst

 

Í upphafi fimmta áratugar síðustu aldar héldu tvær íslenskar myndlistarkonur frá Íslandi til framhaldsnáms í Bandaríkjunum en þetta voru  Louisa  Matthíasdóttir (1917–2000 ) og Nína Tryggvadóttir (1913–1968). New York hafði  tekið við hlutverki Parísar sem nafli listaheimsins og margir evrópskir listamenn sem leituðu skjóls í Bandaríkjunum undan ógnum nasismans, áttu eftir að auðga bandaríska menningu, ekki hvað síst  myndlistina.

Louisa og Nína stunduðu nám hjá Hans Hofmann (1880–1966), þýskum málara sem varð einn helsti boðberi módernismans. Hann var áhrifamikill og vinsæll kennari en allir helstu listamenn og gangrýnendur sóttu tíma hjá honum og kenningar hans áttu eftir að móta  bandaríska myndlist næstu áratugina. Þótt Hofmann sé best þekktur sem abstrakt málari var náttúran sú undirstaða sem hann byggði og hann leit á litinn sem sterkasta aflið í  málverkinu. Hann brýndi fyrir nemendum sínum að í náttúrunni væri það ljósið sem skapaði litina en í myndinni sköpuðu litirnir  ljósið. Eflaust er litmeðferð hans sú arfleið sem nemendur hans hafa ávaxtað, hver með sínum hætti.

Hofmann bjó í París á árunum 1903 -1914 þar sem hann  kynntist  listamönnum sem áttu eftir að móta hvað mest myndlist tuttugustu aldarinnar, m.a. forvígismönnum fauvisma og kúbisma; Henri Matisse, Pablo Picasso og Georges Braque.

Á árunum 1938–1958 rak Hofmann listaskóla sinn að West Eight Street og meðal nemenda hans voru Nell Blaine (1922–1996), Jane  Freilicher (1924) og Robert De Niro eldri (1922–1993) sem allir eru velþekktir í bandarísku listalífi. Nell hóf feril sinn sem abstraktmálari og var meðal stofnenda  “The Jane Street Gallery” í Greenwich Village, sem var eitt fyrsta galleríið í New York sem rekið var af listamönnum á atvinnugrundvelli, en meðal þeirra voru einnig Louisa og eiginmaður hennar, málarinn Leland Bell (1922–1991) og Robert de Niro, eldri. Djassinn lá í loftinu og hópurinn í galleríinu fann sterk tengsl hans við abstraktlistina og gagnrýnendur þóttust skynja sveifluna í verkum þeirra. Jane Freilicher málar kyrralíf og útsýnismyndir frá vinnustofum sinum í Greenwich Village og á Long Island en hún er eini listamaðurinn í þessum hópi sem er á lífi og starfar enn af fullum krafti, á áttugasta og fimmta  aldursári. Í  marsmánuði s.l. var opnuð einkasýning hennar, m.a. á nýjum verkum, í Tibor de Nagy galleríinu í New York.  

Á sýningunni verða á sjötta tug olíuverka Hofmanns og nemenda hans og hafa öll verk erlendu listamannanna verið lánuð úr bandarískum einkasöfnum fyrir tilstilli Tibor de Nagy Gallery og Amaringer Yohe Fine Arts. Louisa Matthíasdóttir og Nína Tryggvadóttir eru meðal virtustu og dáðustu listamanna þjóðarinnar og verða þær í forgrunni á sýningunni. Hluti hennar er tileinkaður Unuhúsi, litlu rauðu húsi í Garðastræti og húsráðanda þar, Erlendi Guðmundssyni, sem safnaði að sér góðum gestum, ekki hvað síst skáldum, rithöfundum og myndlistarmönnum. Louisa og Nína voru þar fastagestir á árunum 1939 – 1943, áður en þær héldu vestur um haf, og máluðu gesti Erlendar sem sátu þolinmóðir fyrir en andlitsmyndirnar eru einstakar heimildir um kynslóð listamanna sem nú er horfin af sjónarsviðinu.

Leitast verður við að gefa gestum  fyllri mynd af þróun íslensku listakvennanna með því að sýna verk frá fleiri tímabilum í list þeirra,  m.a. myndir sem aldrei hafa verið sýndar opinberlega fyrr á Íslandi.

Sýningarstjóri er Hrafnhildur Schram sem þekkir tímabilið vel og hefur skrifað bók um Nínu.



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica