Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
Myndlist
KG-view

Hrafnkell Sigurðsson og Kristján Guðmundsson

Listasafn Íslands
15. maí kl. 21.00

Sýningin stendur til 28. júní

 

Listahátíðarsýning Listasafns Íslands næstkomandi er tvenndarsýning Hrafnkels Sigurðssonar og Kristjáns Guðmundssonar. 

Hrafnkell og Kristján eru meðal okkar framsæknustu listamanna og hafa báðir haslað sér völl jafnt erlendis sem hér heima. Kristján Guðmundsson (f. 1941) var einn af stofnendum Gallerí SÚM, árið 1969 og Nýlistasafnsins tæpum tíu árum síðar. Langt er síðan hann fyllti flokk þeirra íslensku listamanna, sem metnir eru erlendis enda er list hans í sérflokki hvað snerpu og tærleik myndhugsunar áhrærir. Hrafnkell Sigurðsson (f. 1963) er framarlega í flokki ljósmyndalistamanna, en með því er átt við listamenn, sem nota ljósmyndamiðilinn sem tjáningarform vegna inntaksins fremur en sjálfrar tækninnar. 
Sýningarstjórn: Sigríður Melrós Ólafsdóttir og Halldór Björn Runólfsson



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica