Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

Húslestrar

Heima hjá höfundunum

Húslestrarnir eru sögulegt tækifæri til að kynnast ólíkum höfundum og verkum þeirra í návígi. Ljóð, sögur, brot úr stærri verkum, barnaefni, smáprósi, útgefið og óbirt – allt í senn!

Lesa meira
 

Kristín Helga Gunnarsdóttir

Kristín Helga Gunnarsdóttir

Villtir hestar vaða um í draumi. Börn villast af leið. Tunnumannfræðingur skælist um hálendið á reiðhjóli. Einhverjir Eyvindar eru lífs og liðnir. Spurningatröll dagar ekki uppi. Skoskir bræður hverfa sporlaust og kallast á við bræður frá Reynisstað. Er handalaus kona í Hvítárnesi?

Lesa meira
 

Þórarinn Eldjárn

Þórarinn Eldjárn

Gestir og heimamenn stinga saman stefjum og fara í yrkisefna- og lesefnagreiningu. Textinn lagður út og síðan lagður inn.

Lesa meira
 

Guðrún Eva Mínervudóttir

Guðrún Eva Mínervudóttir

Gleðin og þjáningin haldast í hendur hvort heldur sem er í Brussel eða á Húsavík. Hvert sem litið er brosir lífið eins og fegurðardrottning gegnum tárin. Hvers eigum við að gjalda? Erum við sek eða erum við saklaus? Skiptir það einhverju máli?

Lesa meira
 

Bragi Ólafsson

Bragi Ólafsson

Bókavörður, menntaður í kvikmyndafræðum, og löggiltur skjalaþýðandi og leikskáld, fá vilyrði frá gömlum skólafélaga, sem er efnaður lyfsali, um fjármagn til að framleiða leikna bíómynd. Þeir eru allir á ofanverðum sjötugsaldri, en ekki í fyrsta skipti persónur í skáldsögu.

Lesa meira
 

Einar Már Guðmundsson

Einar Már Guðmundsson

Ég mun horfa yfir hópinn. Þá veit ég um hvað málið snýst. Þú, andi minn og augnablikið takið þá ákvörðun. Örvæntið ekki: nóg af ljóðum á könnunni, sögum á pönnunni ...

Lesa meira
 

Gerður Kristný

Gerður Kristný

Á þessu heimili fara vofur gegnum veggi. Von er á að Hallgerður langbrók, Sylvía Plath, Anna Frank, Jónas Hallgrímsson og jafnvel Akkiles komi fram á fundinum. Haldið verður frá Svalbarðseyri til Nice og þaðan til Jötunheima. Fararskjótinn er hið goðsögulega hross Blóðhófnir. Sprett verður af honum úti í garði.

Lesa meira
 

Þorsteinn frá Hamri

Þorsteinn frá Hamri

Hugsanlegt er að hér birtist einhver í svörtum kufli og hafi með sér fiður úr sæng Daladrottningar. Geturðu ímyndað þér meira en mynd og grun? Rétt á meðan eitthvað talar í trjánum og sæfarinn sofandi gefur sér tóm til að spyrja verða borin fram ljóð, frumort og þýdd, gamalkunn og ný að hætti hússins.

Lesa meira
 

Sigurbjörg Þrastardóttir

Sigurbjörg Þrastardóttir

Sagt verður frá jökulám innanstokks, hreyfðum útveggjum, lífi í ferðatösku, leitað verður að fólki sem þorir út á svalir, við sögu koma tveir símar, annar stolinn úr gamalli herstöð, lesið verður úr götukortum og óútgefnu flugriti og klifrað verður upp á stól til að tilkynna um glataðar ástir.

Lesa meira
 

Sigurður Pálsson

Sigurður Pálsson

Þrír staðir og ótalmargar stundir. Staður bernskunnar á norðausturhorninu, Reykjavík og París. Textar tengdir þessum þremur stöðum, ljóð og prósi, gamalt og nýtt. Að auki nokkur þýdd ljóð eftir Prévert og óbirtar þýðingar á Arthur Rimbaud.

Lesa meira
 

Þórunn Erlu Valdimarsdóttir

Þórunn Valdimars

Glæpasögulegur útúrsnúningur úr Laxdælu, önnur bók teymis Leós L. Jónssonar. Hnútar Laxdælu eru dregnir inn í samtímann og nuddaðir og þvegnir í samtímahengi. Þríhyrningur Kjartans-Bolla-Guðrúnar banvænn sem áður.

Lesa meira
 

Linda Vilhjálmsdóttir

Linda Vilhjálmsdóttir

Orðið í upphafi: Sagt frá hugmyndinni eða sögunni bak valin ljóð frá 1990 -2009, þræðinum sem notaður er í spunann og glímunni við formið, orðið og tungumálið. Þeim ljóðum sem hægt er að staðsetja í baðstofunni verður sérstakur gaumur gefinn.

Lesa meira
 


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica