Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Dagbók Önnu Frank

Dagbók Önnu Frank

Dagbók Önnu Frank – einsöngsópera í tveimur þáttum eftir Grigori Frid


Einsöngsóperan Dagbók Önnu Frank byggir á hinni þekktu dagbók þýsku gyðingastúlkunnar Önnu Frank, sem hún skrifaði meðan hún var í felum fyrir nasistum í síðari heimsstyrjöldinni ásamt fjölskyldu sinni í Amsterdam. Rússneska tónskáldið Grigori Frid (f. 1915) færði söguna í búning einsöngsóperu árið 1969 og hefur óperan verið sett upp víða um heim á undanförnum árum. Þetta er magnað verk, líkt og Dagbók Önnu sjálfrar, þar sem hin sérstaka sýn ungu stúlkunnar á heiminn og hin grimmdarlegu örlög eru undirstrikuð með töfrum tónlistarinnar.

Það er Þóra Einarsdóttir sópransöngkona, sem er fastráðin við óperuna í Wiesbaden, sem fer með hlutverk Önnu Frank, en hún söng hlutverið í Wiesbaden árið 2005 og hlaut mikið lof fyrir. Með henni koma fram í sýningunni Valerie Robert dansari og Alexander Scherer píanóleikari. Sviðssetning er í höndum Iris Gerrath-Prein.

„Helsti styrkur sýningarinnar er frábær túlkun Þóru Einarsdóttur á Önnu Frank.“
Wiesbaden Kurier

„Hugsanlega væri þessi ópera flutt miklu oftar, ef menn hefðu oftar aðgang að sópransöngkonu á borð við Þóru Einarsdóttur, söngkonu, sem hægt er að leggja mikið á og er örugg í öllum blæbrigðum þessarar kröfuhörðu tónlistar… .“
Frankfurter Allgemeine Zeitung

„Í sviðsetningu Irisar Gerath-Prein hvílir allur þungi sýningarinnar á Þóru Einarsdóttur. Hún heillar fyrst og fremst með skýrum textaflutningi og kraftmikilli en sveigjanlegri sópranrödd sinni, blæbrigðaríkum og samúðarfullum söng.“
Main- Eco

Nánari upplýsingar á vef Íslensku óperunnar



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica