Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Ambra

Ambra - Íslenski dansflokkurinn og Carte Blanche, Bergen

Á Listahátið í Reykjavík sameinast tveir af helstu dansflokkum Norðurlanda í einu stórverkefni, Ambra.

Það eru Íslenski dansflokkurinn og Carte Blanche frá Bergen, sem er fremsti nútímadansflokkur Noregs. Heimsfrumsýningin verður á Listahátíð í Reykjavík 23. maí og verða aðeins þrjár sýningar á verkinu í Reykjavík. Þaðan fer sýningin viku seinna á Listahátíðina í Bergen, þar sem verkið verður sýnt tvisvar í Grieghallen. Listahátíðirnar tvær eru meðframleiðendur verksins.

Danshöfundurinn er Ina Christel Johannessen, en hún þykir einn mest spennandi danshöfundur Evrópu um þessar mundir. Íslensku tónlistarkonurnar Kira Kira og Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir semja tónlistina fyrir verkið ásamt þýskum samverkamanni sínum, Dirk Desselhaus.
21 dansari tekur þátt í sýningunni.

Úr ferðabók Jan Erik Ringstad:
Á eldfjallaeyjunni Jan Mayen – Djöflaeyjunni í Norður-Íshafinu – sjást daglega merki um jarðhræringar á jarðskjálftamælum; jörð skelfur, minniháttar skjálftar ganga yfir og endrum og eins vakna eldfjöll til lífsins. Að morgni mánudags þann 6. ágúst árið 2001 uppgötvar starfsmaður á rannsóknarstöð í Íshafinu nýjan dranga úti fyrir ströndinni. Í sjónaukanum sínum kemur hann auga á hval sem rekur að landi og stefnir í strand.

Uppspretta hugmyndarinnar er bláhvalur sem rak á land á strönd Jan Mayen árið 2001. Beinagrind hans er á safni í Noregi og verður notuð í sýningunni.
Höfundar vilja nota sögu hvalsins, þessa ótrúlega dýrs sem syndir um heimsins höf áratugum saman, virðist ætíð vita nákvæmlega hvert hann á að fara og gefur frá sér hljóð á „tungumáli” sem er einstakt og vísindamenn kappkosta enn að skilja.
Sýningin er óður til hvalanna, framleidd af listafólki sem kemur frá löndum sem enn stunda hvalveiðar þrátt fyrir víðtæk mótmæli um heim allan.
Verkið fjallar um samskipti þjóða á milli, einstaklinga, ferðir okkar, leyndardóma og þrár.

Listrænir aðstandendur:
Danshöfundur: Ina Christel Johannessen
Frumsamin tónlist: Kira Kira, Hildur Ingveldardóttir Guðnadóttir, Dirk Desselhaus
Aðstoðamaður danshöfundar: Cecilia Roos
Leikmynd og búningar: graa hverdag AS / Kristin Torp
Ljósahönnun: Kyrre Heldal Karlsen
Hljóðhönnun: Morten Cranner
Lengd: 70 mínútur


 



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica