Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Steinn Steinarr

Ferð án fyrirheits

Ferð án fyrirheits

er yfirskrift tónleika sem verða í Íslensku óperunni 29. og 30. maí.

Nafnið er sótt í eina af ljóðabókum Steins Steinarrs, en í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu hans. Söngvararnir KK, Ellen Kristjánsdóttir, Helgi Björnsson, Þorsteinn Einarsson (Hjálmum), Hildur Vala og Svavar Knútur (Hraun) munu þar flytja lög sem samin hafa verið við kvæði skáldsins. Umsjón með tónleikunum hefur Jón Ólafsson tónlistarmaður en hann hefur í félagi við Sigurð Bjólu samið ný lög við kvæði Steins og verða þau frumflutt á þessum tónleikum. Það verður spennandi að heyra hvað samstarf þeirra félaga getur af sér. Mörg þekkt lög hafa orðið til við kvæði Steins í gegnum tíðina og má þar nefna Barn, Ræfilskvæði, Verkamaður, Það vex eitt blóm fyrir vestan og Hudson Bay sem dæmi. Eitthvað þessara laga verða vafalítið á dagskránni á þessum tónleikum. Söngvurunum til fulltingis verður hljómsveit skipuð þeim Jóni Ólafssyni, Guðmundi Péturssyni, Helga Svavari Helgasyni, Valdimari Kolbeini Sigurjónssyni, Hrafnkeli Orra Egilssyni og Unu Sveinbjarnardóttur.

Jón Ólafsson hefur gengið með hugmyndina að þessum tónleikum í nokkur ár og með góðri liðveislu hefur hugmyndin nú orðið að veruleika. Hann er einn fjölmargra íslenskra lagahöfunda sem hafa gert lög við kvæði Steins Steinarrs og sennilega er lag hans við Passíusálm no. 51 hvað þekktast („Skyldi manninum ekki leiðast að láta krossfesta sig?).

Jón hefur komið víða við á löngum ferli sem tónlistarmaður. Hann hefur leikið á píanó frá blautu barnsbeini og verið afkastamikill lagahöfundur, útsetjari, flytjandi og upptökustjóri á íslenskum plötum síðustu 20 árin. Hann hefur komið að tónlist í fjölda leiksýninga, ýmist sem tónskáld eða tónlistarstjóri, auk þess að semja tónlist fyrir sjónvarp og kvikmyndir. Fyrir þremur árum gaf hann út sína fyrstu sólóplötu og síðan þá hefur önnur bæst í safnið. Jón hefur einnig stýrt tónlistarþáttum í sjónvarpi við miklar vinsældir.

Aðrir tónleikar:
4.júní - Edinborgarhúsinu, Ísafirði, kl. 20
12. júní - Akureyrarkirkju, Akureyri kl. 20
19. júní - Kirkju- og menningarmiðstöðinni, Eskifirði, kl. 20

Tónleikarnir eru styrktir af Baugi Group, Glitni og VÍS.



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica