Amiina, Kippi og vinir í Undralandi
Amiina er ein áhugaverðasta hljómsveit Íslands um þessar mundir, skipuð þeim Hildi Ársælsdóttur, Eddu Rún Ólafsdóttur, Maríu Huld Markan Sigfúsdóttur og Sólrúnu Sumarliðadóttur.
Amiina var stofnuð árið 1998 sem nokkuð hefðbundinn strengjakvartett þar sem tvær léku á fiðlu, ein á lágfiðlu og ein á selló. Með tímanum hafa þær bætt við ýmsum óhefðbundnum hljóðfærum og í dag er tónheimur Amiinu um margt sérstakur: svífandi sagir, fíngerður vefur af hörpum og bjöllum í bland við angurvær glös.
Á tónleikum Listahátíðar í vor mun Amiina taka upp á þeirri nýbreytni að spila með öðrum tónlistarmönnum og verður afar spennandi fyrir áhorfendur að sjá og heyra hvað það gefur af sér. Lífrænir hljómar Amiinu munu meðal annars bræðast saman við tilraunakenndan og heillandi rafrænan hljóðheim Kippa Kanínusar. Með fulltingi einvalaliðs hljóðfæraleikara ætla þau að flytja endurunnið efni í bland við nýtt í stækkaðri mynd og magna upp mikinn tónseið. Þá koma fram á tónleikunum þeir Orri Páll Dýrason, Kjartan Sveinsson, Eiríkur Orri Ólafsson og Samúel J. Samúelsson. Aðrir flytjendur á tónleikum Amiinu verða Leifur Jónsson, básúna, Snorri Sigurðsson, trompet, Ingrid Karlsdóttir, fiðla, Karl Pestka, fiðla, Stefanía Ólafsdóttir, víóla, Júlía Mogensen, selló og Magnús Tryggvason Eliassen, trommur.
Amiina er vel þekkt fyrir að hafa unnið með Sigur Rós um árabil, en það samstarf hefur staðið frá 1999. Hafa þær bæði spilað með þeim við upptökur á geisladiskum þeirra og á tónleikaferðalögum um heim allan. Árin 2005–2006 fékk Amiina tækifæri til að spila sitt eigið efni á undan tónleikum Sigur Rósar á ferðum þeirra um heiminn. Síðan hefur Amiina komið fram á ýmsum listahátíðum erlendis og farið tónleikaferðir um Norður-Ameríku og Evrópu. Þá má geta þess að Amiina spilaði einnig með hljómsveitinni á tónleikaferðalagi hennar um Ísland sumarið 2006 sem heimildarmyndin Heima fjallar einmitt um.
Amiina gaf út sinn fyrsta hljómdisk, Kurr, í mars á síðasta ári. Hann hefur fengið frábæra dóma hér heima og erlendis og hefur verið fylgt eftir með tónleikum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Gagnrýnandi The Guardian Live gaf Kurr fjórar stjörnur og í þættinum Desert Island Discs á BBC Radio 4 nefndi Yoko Ono skífuna sem einn af átta diskum sem hún myndi taka með sér á eyðieyju. Áður hafði Amiina gefið út vínilplötuna AnimaminA í desember 2004 og smáskífuna Seoul í nóvember 2006. Til stendur að gefa út aðra smáskífu, Hilli, í desember á þessu ári, en á þeirri skífu er lagið Hilli af plötunni Kurr í nýrri útgáfu með upptöku af söng Lee Hazlewood, en það var síðasta upptaka sem þessi heimsþekkti tónlistarmaður gaf leyfi fyrir áður en hann lést í ágúst á þessu ári.
Seinni tónleikar Amiinu og vina verða föstudaginn 16. maí.
Tónleikar Amiinu eru í samstarfi við Landsbankann

