Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Þríviður/Wanwood

Listasafn Reykjanesbæjar / Þríviður

Í Listasafni Reykjanesbæjar verður sýningin Þríviður undir stjórn Aðalsteins Ingólfssonar,

 en þar verða sýnd verk þriggja íslenskra listamanna sem hafa notað trjávið í miklum mæli við gerð verka sinna: Hannesar Lárussonar, Guðjóns Ketilssonar og Helga Hjaltalín. Meðhöndlun listamannanna á þessum ævagamla efniviði er eins fjölbreytt og þeir eru margir, en áherslur þeirra bera þó keim af hugmyndalist og félagslega meðvitaðri myndlist síðari ára. Á sýningunni verður verkum þeirra - lágmyndum, gólfverkum og uppistandandi skúlptúrum - stillt upp þannig að þau kallist á og kveiki neista hvert af öðru. Um leið verður grennslast fyrir um hlutverk trjáviðar í íslenskri myndlist og tengslin við útskurðarlist fortíðar.

Listasafn Reykjanesbæjar er til húsa í hinum sögufrægu Duus - húsum við höfnina í Keflavík, en á árunum 1877 til 1954 var fiskvinnsla og vörugeymsla í húsunum. Þarna eru fjögur sýningarrými og úr því stærsta þeirra, þar sem þessi sýning fer fram, blasir Faxaflóinn við.

Listasafn Reykjanesbæjar
18. maí – 15. ágúst
Duushús, Duusgata 2-8, 230 Reykjanesbær
Opið daglega frá 13.00 til 17.30
www.reykjanesbaer.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica