Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Magnús Kjartansson

Listasafn Árnesinga / Magnús Kjartansson

Listasafn Árnesinga heldur sýningu á verkum á pappír sem Magnús Kjartansson (1949 – 2006) vann á tímabilinu 1982 - 1988.

Sýningarstjóri er Jón Proppé, en verkin á sýningunni eru unnin með margs konar tækni, allt frá klippimyndum og málverkum til ljósmynda. Þau eru einnig heimild um tilraunir listamannsins með ýmis konar prentunartækni, þar sem hann varpaði með ljósmyndunartækni hlutum, myndum og jafnvel eigin líkama yfir á pappír. Fæst þessara verka hafa áður verið sýnd, þó að nokkur þeirra séu í safnaeign og einkasöfnum. Leitast verður við að tengja verk Magnúsar listsköpun samtímans, meðal annars með fyrirlestrum, gjörningum, myndbandskynningum og pallborðsumræðum þar sem þátt taka yngri listamenn, svo sem Ragnar Kjartansson.

Listasafn Árnesinga heldur árlega þrjár stórar sýningar á nútíma- og samtímalist í fjórum sýningarsölum, auk smærri myndlistar- og hönnunarsýninga. Safnið var fyrst staðsett á Selfossi og opnaði árið 1975, en flutti til Hveragerðis árið 2003. Safnið er í eigu sveitarfélaganna í Árnessýslu.

Listasafn Árnesinga
18. maí til 20. júlí
Austurmörk 21, Hveragerði
Opið daglega frá 12.00 til 18.00
www.listasafnarnesinga.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica