Setning Listahátíðar 2008
Setning Listahátíðar í Reykjavík í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur hátíðina sem verður í beinni útsendingu í Sjónvarpinu.
Á sama tíma opnar Tilraunamaraþon. Sýningarstjóri er Hans Ulrich Obrist í samstarfi við myndlistarmanninn Ólaf Elíasson.
Verkefnið hefur tilraunastarfsemi að leiðarljósi og samanstendur af sýningu og dagskrá tengdra viðburða.
Á setningunni koma meðal annars fram Amiina, Kippi og vinir í Undralandi.
Nánari upplýsingar á www.listasafnreykjavikur.is

