Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Miklar frásagnir af LHI erlendis

Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhúsið / Tilraunamaraþon

Hápunktur Listahátíðar í Reykjavík 2008 verður Tilraunamaraþon undir stjórn Listasafns Reykjavíkur og Serpentine Gallery í London.

Verkefnið byggir á tilraunastarfsemi og samanstendur af sýningu og röð nýstárlegra viðburða sem tengist sýningunni. Tilraunamaraþonið stendur frá 15. maí til 17. ágúst en þá verður Hafnarhúsinu umbreytt í meiriháttar tilraunastofu þar sem innlendir og erlendir listamenn, arkitektar, kvikmyndagerðarmenn og vísindamenn munu skapa vettvang uppgötvana með fjölda innsetninga, gjörninga og kvikmynda. Að auki verða eldri verkefni tengd þessu þema endurskoðuð og sett upp. Sýningunni og verkefninu í heild er stýrt af Hans Ulrich Obrist í samvinnu við Ólaf Elíasson. Obrist er þekktur sýningarstjóri sem starfar í Serpentine Gallery sem meðstjórnandi sýninga og viðburða og stjórnandi alþjóðlegra verkefna. Ólafur er heimskunnur myndlistarmaður og ætti sýning hans í Listasafni Reykjavíkur árið 2004 að vera Íslendingum í fersku minni.

LIST SEM TILRAUN
Viðburðinum má skipta í tvo hluta, annars vegar maraþon þar sem hver tilraunin rekur aðra alla opnunarhelgi Listahátíðar og hins vegar sýning á fjölda innsetninga sem stendur í Hafnarhúsinu mestan hluta sumars. Meðal þátttakenda verða Marina Abramović, David Adjaye, Einar Thorsteinn Ásgeirsson, Fia Backström, John Baldessari, Thomas Bayrle, John Brockman, Peter Coles, Tony Conrad, Carlos Cruz-Diez, Attila Csörgö, Jimmie Durham, Ólafur Elíasson, Brian Eno, Erró, Simone Forti, Ivana Franke, Hreinn Friðfinnsson, Gabríela Friðriksdóttir, Yona Friedman, Aurélien Froment, Sharon Hayes, Abhishek Hazra, Karl Holmqvist, Hilmar B. Janusson, Hekla Dögg Jónsdóttir, Haraldur Jónsson, Karl Ægir Karlsson, Kristján Leósson, Darri Lorenzen, MM, Jonas Mekas, Gustav Metzger, Neri Oxman, Pedro Reyes, Matthew Ritchie, Dr. Ruth, Tomas Saraceno, Carolee Schneemann, Stewart Sherman, Thorsteinn I. Sigfússon, Katrín Sigurðardóttir, Luc Steels, Rirkrit Tiravanija, Thor Vilhjálmsson, Tris Vonna-Michell, Emily Wardill, Francesca von Habsburg, Florian Hecker og Aranda/Lasch.

Tilraunamaraþon byggir á rómuðum maraþonviðburðum sem Serpentine Gallery hefur staðið fyrir undanfarin tvö ár í London. Í fyrrahaust stóð Serpentine Gallery Experiment Marathon yfir í tvo daga en niðurstaða þess verður sérstaklega kynnt í Hafnarhúsinu í skála sem Ólafur Elíasson mun hanna með Einari Þorsteini Ásgeirssyni arkitekt. Sýningarstjórinn, Hans Ulrich Obrist, byggir þennan viðburð að nokkru leyti á sýningu sem hann setti upp ásamt Barböru Vanderlinden árið 1999 í Antwerpen og hét Laboratorium. Gögn frá þeirri sýningu verða einnig hluti af sýningu Hafnarhússins.

SERPENTINE GALLERY EXPERIMENT MARATHON var fyrst haldið árið 2006 með sólarhrings viðtalamaraþoni sem arkitektinn Rem Koolhas og Hans Ulrich Obrist stýrðu. Í fyrrahaust fór maraþonið fram í glæsilegum skála sem stóð í garði Serpentine Gallery og hannaður var af Ólafi Elíassyni ásamt arkitektinum Kjetil Thorsen. Þar framkvæmdu kunnir listamenn, rithöfundar og vísindamenn fjölbreytilegar tilraunir sem tengdust rannsóknum á skynjun, gervigreind, mannslíkamanum og tungumáli. Meðal þátttakenda þar voru John Brockman, Steven Pinker, Marina Abramovic og John Baldessari. Viðburðurinn var unnin í samstarfi við Thyssen-Bornemiza samtímalistastofnunina. Upplýsingar um Serpentine Gallery.

Glæsileg sýningarskrá verður gefin út samhliða Tilraunamaraþoninu og spannar hún viðburðinn í Hafnarhúsinu, fyrra maraþonið í Serpentine Gallery og sýninguna Laboratorium. Meðal þeirra sem rita í skránna er heimspekingurinn og mannfræðingurinn Bruno Latour. Henni verður dreift í Evrópu af Kaspar König útgáfufyrirtækinu og í Bandaríkjunum af einu stærsta dreifingaraðila fyrir listaverkabækur, DAP, eða Distributed Art Publishers. Markús Þór Andrésson og Dorothe Kirch hafa verið ráðnir verkefnisstjórar við Listasafn Reykjavíkur vegna sýningarinnar. Tilraunamaraþon er á dagskrá Listahátíðar í Reykjavík og unnið í samstarfi við Serpentine Gallery í Lundúnum.


Listasafn Reykjavíkur - Hafnarhús
15. maí – 17. ágúst
Tryggvagata 17, 121 Reykjavik
Opið 10.00 – 17.00



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica