Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Dreams of the Sublime

Listasafn Reykjavíkur - Kjarvalsstaðir / Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist

Í Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum fer fram sýningin Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist,

þemasýning þar sem kannaðar verða margs konar hugmyndir um náttúruna og náttúrufyrirbæri með ljósmyndum og myndbandalist. Á sýningunni verða bæði svart-hvítar landslagsljósmyndir frá þriðja og fjórða áratug 20. aldarinnar og margmiðlunarinnsetningar, og settar fram margar og mismundandi túlkanir og hugmyndir um „hið háleita” og „hið staðlausa”, í sígildum, þunglyndislegum, kaldhæðnislegum eða vistfræðilega róttækum myndum.

Meðal þátttakenda eru Daníel Þorkell Magnússon, Halldór Ásgeirsson, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Gjörningaklúbburinn/Icelandic Love Corporation (Sigrún Hrólfsdóttir, Jóní Jónsdóttir og Eirún Sigurðardóttir), Ragnar Kjartansson, Ólafur Elíasson, Olga Bergmann og Anna Hallin, Pétur Thomsen, Sigurður Guðjónsson, Spessi og Vigfús Sigurgeirsson. Á sýningunni verður sett upp í fyrsta sinn á Íslandi eitt af höfuðverkum Kristjáns Guðmundssonar, Blá færsla frá 1988, en verkið var m.a. valið á Unlimited Art Basel 2007. Verkið er framleitt úr 5 pappírsrúllum sem hver og ein vegur rúmlega 600 kg. Þetta er mónúmental verk í bókstaflegum og óbókstaflegum skilningi. Kristján er einn af okkar merkilegustu listamönnum og uppsetningin á þessu mikla verki verður að teljast viðburður sem vert er að beina sjónum að.

Draumar um ægifegurð í íslenskri samtímalist var fyrr á þessu ári sett upp í Palais des Beaux-Arts í Brussel. Samhliða henni mun landslagsarkitektinn og listamaðurinn Martha Schwarz sýna verk í bakgarði safnsins en Schwarz hefur mestan áhuga á borgarverkefnum og því að kanna nýjar leiðir í hönnun landslags.

Sýningarstjóri: Æsa Sigurjónsdóttir

Listasafn Reykjavíkur var stofnað árið 1973 og er stærsta myndlistarstofnun á Íslandi. Markmið safnsins er að kynna samtímalist í öllum birtingarmyndum hennar með fjölbreyttri dagskrá á þremur sýningarstöðum: í Hafnarhúsinu, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni.

Listasafn Reykjavíkur opnaði ný húsakynni sín í Hafnarhúsinu í aprílmánuði árið 2000. Húsið er suðupottur þar sem ungir og upprennandi listamenn, íslenskir sem erlendir, sýna framúrstefnulist af ýmsu tagi. Fastasýningin úr Errósafninu vekur ævinlega mikla athygli.
Kjarvalsstaðir voru reistir á árunum 1966 - 1973 og húsið var hannað af arkitektinum Hannesi Kr. Davíðssyni. Þar er sýnd nútímalist, byggingalist og hönnun eftir íslenska sem erlenda listamenn, auk þess sem boðið er upp á fyrirlestra, leiðsögn um sýningar og námskeið. Safnið sýnir reglulega myndir úr safni verka eftir Jóhannes S. Kjarval (1885 - 1972).

Listasafn Reykjavíkur/Kjarvalsstaðir
18. maí til 7. september
Opið daglega frá 10.00 til 17.00
www.listasafnreykjavikur.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica