Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Skyr Lee Bob

Skaftfell - Miðstöð myndlistar á Austurlandi / Ferðalag

Ferðalag er undir stjórn Björns Roth en hann er sonur listamannsins Dieters Roth og var trúnaðarmaður og samstarfsmaður hans um tuttugu ára skeið.

Ferðalag er samvinnuverkefni þriggja listastofnana á Austurlandi (Skaftfells á Seyðisfirði, Sláturhússins á Egilsstöðum og menningarmiðstöðvarinnar á Eiðum) og er unnið sérstaklega fyrir Listahátíð í Reykjavík 2008. Á dagskrá verkefnisins verða innsetningar, gjörningar, uppákomur, dans og tónlistarflutningur.

Í Skaftfelli verða meðal annars sýndar viðamiklar innsetningar Christoph Büchel, verk eftir þríeykið Skyr Lee Bob og verkefni meðlima úr PONI fjöllistahópnum, en í honum eru myndlistarmaðurinn Guðni Gunnarsson, danshöfundurinn og dansarinn Erna Ómarsdóttir og tónlistarmaðurinn Lieven Dousselaere. Skaftfell kynnir einnig Painting by Numbers eftir seyðfirska listamanninn Pétur Kristjánsson, en hann notar í verkinu vinnuvélar í fullri stærð, svo sem gröfur, dráttarvélar og vörubíla.

Skaftfell stendur í gamla bænum á Seyðisfirði og leitast við að stuðla að og sýna myndlist, með áherslu á samtímalistsköpun. Auk þess að halda sýningar og vera vettvangur listamanna stendur Skaftfell fyrir alþjóðlegu gestalistamannsverkefni. Skaftfell var stofnað í minningu listamannsins Dieter Roth.

Skaftfell – Miðstöð myndlistar á Austurlandi
17. maí til 22. júní
Austurvegur 42, 710 Seyðisfirði
Opið daglega frá 12.00 til 23.00
www.skaftfell.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica