Sláturhúsið - Menningarsetur á Egilsstöðum / Ferðalag
Ferðalag er undir stjórn Björns Roth en hann er sonur listamannsins Dieters Roth og var trúnaðarmaður og samstarfsmaður hans um tuttugu ára skeið.
Ferðalag er samvinnuverkefni þriggja listastofnana á Austurlandi (Skaftfells á Seyðisfirði, Sláturhússins á Egilsstöðum og menningarmiðstöðvarinnar á Eiðum) og er unnið sérstaklega fyrir Listahátíð í Reykjavík 2008. Á dagskrá verkefnisins verða innsetningar, gjörningar, uppákomur, dans og tónlistarflutningur.
Í Sláturhúsinu sýna myndlistamaðurinn Paul Harfleet, en hann blandar saman ævisögulegum rannsóknum saman við pólitískar hugmyndir um sálfræðilega landafræði til þess að skapa ögrandi athugasemdir um borgaralegt samfélag nútímans; Sara Björnsdóttir, sem vinnur verk sem eru í senn beinskeytt, kraftmikil, hávaðasöm og stríðin, en einnig hljóðlát, falleg og ljóðræn; og hljóðlistamaðurinn Matti Saarinen, sem kannar heima jafnt sígildrar sem tilraunakenndrar tónlistar.
Sláturhúsið stendur á hæð í hlíðunum við Egilsstaði. Í húsinu var rekið sláturhús árum saman, en nú hafa listamenn fengið þar athvarf og þar fara fram margs konar viðburðir, meðal annars árlega kvikmyndahátíðin 700.IS, myndlistarsýningar og tónleikar.
Sláturhús – Menningarsetur, Egilsstöðum
17. til 27. maí
Kaupvangur, 700 Egilsstaðir
Opið mánudaga til föstudaga frá 14.00 til 18.00, laugardaga og sunnudaga 14.00 til 16.00.
www.slaturhusid.is

