Eiðar - Listasetur / Ferðalag
Ferðalag er undir stjórn Björns Roth en hann er sonur listamannsins Dieters Roth og var trúnaðarmaður og samstarfsmaður hans um tuttugu ára skeið.
Ferðalag er samvinnuverkefni þriggja listastofnana á Austurlandi (Skaftfells á Seyðisfirði, Sláturhússins á Egilsstöðum og menningarmiðstöðvarinnar á Eiðum) og er unnið sérstaklega fyrir Listahátíð í Reykjavík 2008. Á dagskrá verkefnisins verða innsetningar, gjörningar, uppákomur, dans og tónlistarflutningur.
Á Eiðum verða sýnd verk myndlistarmannanna Hrafnkels Sigurðssonar og Lennart Alvés, sem báðir vinna með margs konar mismunandi tækni. Sýningar Hrafnkels Crew og Function Ground fengu Íslensku sjónlistaverðlaunin á síðasta ári.
Bæði Hrafnkell og Lennart Alvés munu dvelja á Eiðum í aðdraganda sýninganna og vinna þar að verkum sínum.
Á Eiðum var rekinn hefðbundinn héraðsskóli í rúma öld, en síðar keyptu þeir Sigurjón Sighvatsson og Sigurður Gísli Pálmason húsið og breyttu því í miðstöð lista og menningar. Á Eiðum er haldin ár hvert alþjóðleg ráðstefna listamanna hvaðanæva úr heiminum, sem er vel sótt jafnt af listamönnum sem listfræðingum. Af útgáfum sem Eiðar vinnur að ber hæst The Eidar Sessions en þar eru samtöl Hans Ulrich Obrist við listamenn sem stýrt er af honum.
Eiðar – Listasetur, Fljótsdalshérað
17. maí til 1. júlí
Opið eftir samkomulagi
Eiðar ehf.
c/o Klara Stephensen
Þingholtsstræti 27
101 Reykjavik

