Safnasafnið - Alþýðulistasafn Íslands/ Greinasafn
Anna Líndal, Bjarki Bragason og Hildigunnur Birgisdóttir hafa unnið að verkefninu Greinasafn síðan í október 2007 í nánu samstarfi við hið sérstæða Safnasafn á Svalbarðsströnd við Eyjafjörð.
Bæjarlækurinn Valsá rennur í blikkröri undir malbikaðan hringveginn og hlykkjast í brúnbláu froðubaði yfir steina, gaddavír og baggabönd. Lækurinn rennur í gegnum skógræktarreit norðan við safnið, þar sem rúmlega hundrað ára gamalt lerkitré stendur í litlum vindbörðum lystigarði innan um þúfuhóla. Ekki er langt síðan drykkjarvatn var tekið úr læknum og virkjun hans hefur verið áformuð. Enginn veit hvað og hver endar í læknum, sem kemur upp einhversstaðar í fjalli og endar einhversstaðar í sjó.
Í ofsaveðri þann 29. desember 2007 rifnaði 6 metra löng grein af einu elsta trénu í garðinum og festi sig í krónu næsta trés. Sýningin skiptir sér niður í margar greinar og vinnur beint með samhengi sitt, og hvernig það mótast. Myndlistarmennirnir horfa til þeirrar ofsakenndu og heillandi söfnunar sem á sér stað í Safnasafninu og líta rannsakandi í eigin barm á sambandið milli flæði óreiðunnar, og skipulagsins sem safnast upp í djúpum miðlunarlónum, með stíflurof í huga.
Safnasafnið stendur á hæð með útsýni yfir Eyjafjörð og Akureyrarbæ. Þar er alþýðulist safnað og hún sýnd, samhliða sýningum á verkum nútímalistamanna. Þar er myndarlegt bókasafn og gamaldags garðurinn umhverfis húsið ljær safninu sérstakan og einstakan blæ.
Safnasafnið
17. maí til 8. júlí
Svalbarðsströnd, 601 Akureyri
Opið daglega frá 9.00 til 18.00
www.safnasafnid.is

