Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Facing China

Listasafnið á Akureyri / Augliti til auglitis við Kína

Hannes Sigurðsson er sýningarstjóri sýningarinnar Facing China (Augliti til auglitis við Kína) í Listasafninu á Akureyri,

en þar verða málverk og skúlptúrar eftir níu þekkta, kínverska listamenn, sem fengin verða að láni frá hollenska safnaranum Fu Ruide. Verkin sýna öll mannslíkamann í ýmsum útfærslum og voru unnin á tímabilinu eftir 1989, þegar Kína gekk í gegnum meiri félagslegar og efnahagslegar umbreytingar en áður höfðu þekkst. Stíll verkanna einkennist af meistaralegri færni í listrænni tækni, en ber einnig vott um ítarlegar rannsóknir á evrópskri og bandarískri list 20. aldarinnar. Afraksturinn er stíll sem ekki einasta ögrar fyrri tjáningaraðferðum kínverskra listamanna, heldur einnig hugmyndum okkar um kínverska list. Listamennirnir sem sýna eru Chen Qing Qing, Fang Lijun, Liu Ye, Tang Zhigang, Wei Dong, Yang Shaobin, Yue Minjun, Zhang Xiaogan og Zhao Nengzhi. Safnið gefur út sýningarskrá á ensku og kínversku með grein eftir einn virtasta listrýni Kína, Li Xianting. Auk aðalskrárinnar mun safnið gefa út ljósmyndaritgerð eftir þýska ljósmyndarann Christoph Fein, sem var fenginn til að ljósmynda alla listamennina. Andpænis Kína fer síðan til Noregs, Austurríkis, Svíþjóðar og Þýskalands árið 2009, en lýkur ferð sinni í Kína árið 2010. Sýningin er skipulögð af Listasafninu á Akureyri, sem hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2008.

Listasafnið á Akureyri var stofnsett árið 1993 og er ein yngsta listastofnun landsins, og sú eina sinnar tegundar utan höfuðborgarinnar. Markmið safnsins er að kynna list og myndlistarmenningu fyrir Norðlendingum, en einnig í stærra, hnattrænu samhengi. Safnið hefur haldið sýningar á verkum þekktra samtímalistamanna, en einnig sýnt verk frægra, eldri meistara. Árið 2006 veitti safnið í fyrsta sinn Íslensku myndlistarverðlaunin, í því skyni að kynna frábæra, íslenska myndlistarmenn. Það hefur einnig átt mikinn þátt í að efla Akureyri sem miðstöð menningar.

Listasafnið á Akureyri
17. maí til 29. júní
Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 12.00 til 17.00
www.listasafn.akureyri.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica