Listasafn Íslands / List mót byggingarlist
Í Listasafni Íslands verður sýningin List mót byggingarlist, þar sem hin flóknu tengsl þessara tveggja greina eru til umfjöllunar. Myndlist og byggingarlist lenda á stundum harkalega saman, einkum í safnumhverfinu, þar sem myndlistin þarfnast „hvíta kassans” en byggingarlistin skapar sjálf sínar eigin forsendur fyrir framsetningu og kynningu. Rök myndlistarinnar eru að safnið skuli vera hlutlaus rammi utan um listaverkin, en Listasafn Íslands, staðsett í póstmódernískri byggingu frá níunda áratug síðustu aldar, getur tæplega talist þess háttar rými. Á þessari sýningu láta Finnbogi Pétursson, Monica Bonvicini, Elín Hansdóttir, Steina (Vasulka) og Franz West reyna á takmarkanir og sérstæðni þessarar einstöku byggingar með ýmsum innsetningum þar sem leitast verður við að mynda samhljóm með og ögra rýmum hússins.
Sýningarstjóri: Halldór Björn Runólfsson
Listasafn Íslands var stofnað árið 1884 og varðveitir stofn íslenskrar listasögu, einkum lykilverk frumkvöðlanna í myndlist frá 19. og 20. öldinni. Meginhlutverk þess er að geyma, rannsaka og sýna íslenska og alþjóðlega myndlist, aðallega úr safneigninni. Listasafnið geymir einnig mikið safn listasögulegra skjala og gagna sem eru aðgengileg fræðimönnum, nemendum og almenningi og stendur fyrir margháttuðu fræðslustarfi.
Listasafn Íslands
16. maí til 29. júní
Fríkirkjuvegi, 7 101 Reykjavík
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 11.00 til 17.00
www.listasafn.is

