Gallerí 100° / Velkominn - samtímalist frá Króatíu
Í Galleríi 100° verður sýningin Samtímalist frá Króatíu, í sýningarstjórn Radmila-Iva Jankovic. Þar getur að líta myndbandainnsetningar, ljósmyndir og gjörninga eftir fimm listamenn, þau Antun Maračić, Toni Meštrovič, Siniša Labrović, Tanja Dabo og Slaven Tolj, sem hafa sum hver verið virk í listalífi heimalands síns frá áttunda áratug síðustu aldar. Á sýningunni vinna þau með viðfangsefni sem brenna á króatísku samfélagi og leitast við að eyða ríkjandi staðalmyndum af þessu landi, sem á alþjóðavísu er einkum þekkt sem ferðamannaland. Jón B. K. Ransú vinnur með Jankovic að sýningunni, í samstarfi við Nýlistasafnið, Orkuveitu Reykjavíkur, Listahátíð í Reykjavík, Menningarmálaráðuneyti Króatíu, Dubrovnikborg og Art radionica Lazareti í Dubrovnik.
Gallerí 100° er til húsa í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur og er í senn sýningarsalur og fyrirlestrarsalur þar sem bæði eru settar upp listsýningar og haldnir viðburðir á sviði tækni og vísinda.
Gallerí 100°
16. maí – 27. júní
Bæjarháls 1, 110 Reykjavík
Opið mánudaga til föstudaga frá 10.00 til 16.00
www.or.is

