Start Art / Sökkvun
Í Start Art opnar sýningin Sökkvun eftir Rúrí, en hún var fulltrúi Íslendinga á Feneyjatvíæringnum árið 2003. Titilverkið var upprunalega unnið fyrir listahátíðina Ars Electronica – 2007 í Linz í Austurríki og er nýjasta verkið í röð Rúríar Endangered Waters og er lofsöngur til fallvatns, en um leið ámælisdómur yfir þeirri eyðileggingu sem maðurinn orsakar í nafni framfara. Sökkvun er myndbandsinnsetning á nokkrum skjám þar sem viðfangsefnið er Töfrafoss og hið einstaka vistkerfi umhverfis hann, sem nýlega hvarf undir hækkandi yfirborð risavaxins uppistöðulóns, einn fjölmargra sem orðið hafa fórnarlamb þessarar framrásar tækninnar. Rúrí kýs að nota íslensku fossana sem staðbundið sýnidæmi um þá hættu sem steðjar að náttúrunni víðs vegar um heiminn.
Start Art er til húsa í gömlu húsi við elstu verslunargötu Reykjavíkur. Það er samvinnuverkefni sex virkra listamanna og er í senn sýningarsalur, fundarstaður, listverslun, kaffihús og fyrirlestrarrými.
Start Art
16. maí til 30. júní
Laugavegur 12b, 101 Reykjavík
Opið þriðjudaga til laugardaga frá 13.00 til 17.00 og eftir samkomulagi.
www.startart.is

