Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Reflection

Ljósmyndasafn Íslands / Endurkast - íslensk samtímaljósmyndun

Sýningin Endurkast, í Ljósmyndasafni Íslands, Þjóðminjasafninu, er samsýning nokkurra listamanna þar sem leitast er við að marka ljósmyndinni sérstakan sess sem listgrein, einkum innan íslenskrar myndlistar, þar sem ljósmyndin hefur löngum verið talin hafa meira heimildagildi en listrænt gildi. Á sýningunni, sem er unnin í samstarfi við hið nýstofnaða FÍSL/Félag íslenskra samtímaljósmyndara, verða sýndar úrvalsmyndir úr fórum sumra bestu ljósmyndara landsins, meðal annarra Ívars Brynjólfssonar, Báru Kristinsdóttur, Braga Þ. Jósefssonar, Einars Fals Ingólfssonar, Katrínar Elvarsdóttur, Péturs Thomsen, Spessa og Þórdísar Erlu Ágústsdóttur.

Ljósmyndasafn Íslands hýsir eitt stærsta safn ljósmynda á Íslandi, eða rúmlega 2,5 milljónir verka, og vinnur stöðugt að skráningu og heimildavinnu. Safnið heldur þrjár til fjórar stórar ljósmyndasýningar árlega, auk minni sýninga, og gefur út ítarlega skrá um hverja sýningu. Margar þessara sýninga hafa ferðast til erlendra safna.

Ljósmyndasafn Íslands í Þjóðminjasafni Íslands
16. maí - 31. ágúst
Suðurgata 41, 101 Reykjavík
Opið daglega 10.00 - 17.00
 



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica