Nýlistasafnið / Karl Holmqvist
Í Nýlistasafninu verður kynnt sagnfræðilegt rannsóknarverkefni sem enn er ólokið, þar sem meðal annars verður boðið upp á yfirlit yfir íslenska gjörninga og gagnvirka samræðu við sænska listamanninn Karl Holmqvist. Hann hefur frá því snemma á síðasta áratug 20. aldarinnar staðið fyrir listiðkun sem felst í tilraunum í notkun tungumáls og notast við bækur, ljóðagerð og lifandi flutning talaðs máls, auk stórra innsetninga og myndbandaverka. Í skrifum hans, sem aðallega eru á ensku, má finna tilvitnanir í söngtexta, slagorð úr stjórnmálum samtímans eða ýmis fyrirbæri poppmenningarinnar. Samhliða einkasýningu Karls Homqvist verða heilmildir um íslensk gjörningaverk sýnd, eftir m.a. listamennina Magnús Pálsson, Rúrí, Hannes Lárusson, Bjarna H. Þórarinsson, Ásmund Ásmundsson, Söru Björnsdóttur, Egil Sæbjörnsson og Ásdísi Sif Gunnarsdóttur.
Nýlistasafnið var stofnsett árið 1978 og fagnar því þrítugsafmæli árið 2008. Safnið hefur þá sérstöðu að hafa ávallt verið listamannarekið og standa um 240 listamenn vörð um safnið og starfsemina. Nýlistasafnið er gróskumikill vettvangur framsækinnar myndlistar á Íslandi.
Nýlistasafnið
16. maí – 30. júní
Laugavegi 26, 101 Reykjavík
Opið miðvikudaga til sunnudaga frá 12.00 til 17.00
http://nylo.is

