Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Uncertainty Principle

Kling & Bang / Óvissulögmálið

Daníel Karl Björnsson

stjórnar sýningu á verkum Sirru Sigrúnar Sigurðardóttur, undir yfirskriftinni Óvissulögmálið. Verkin eru ferðalag um hinn efnislega heim, allt frá mikilfenglegu landslagi til hinna smæstu hluta, frá sjónarhóli ýmissa trúarbragða, vísinda og myndlistar. Á sýningunni er spurt hvort það sem ekki er sýnilegt, mælanlegt eða hægt að kortleggja geti verið til og verkin eru samruni mismunandi listrænna eðlisþátta; klippimynd sem er ætlað að vekja með okkur ónot, líkt og við værum á rannsóknastofu.

Kling & Bang er sýningarsalur sem rekinn er af átta íslenskum listamönnum, þeirra á meðal Sirru Sigrúnu, og hefur ekki gróðamarkmið. Í Kling & Bang hafa verið haldnar rúmlega fjörutíu sýningar, í samstarfi við um hundrað íslenska og erlenda listamenn, og salurinn fagnar fimmta afmælisdegi sínum í mars 2008.

Kling & Bang
15. maí – 22. júní
Hverfisgata 42, 101 Reykjavík
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 14.00 til 18.00 og eftir samkomulagi
this.is/klingogbang/



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica