Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Andrea Maack

Gallerí Ágúst / Andrea Maack - SMART

SMART

Andrea Maack útskrifaðist frá myndlistardeild Listaháskóla Íslands 2005 og hefur síðan verið virk í myndlistarumhverfinu á Íslandi sem og erlendis.

Hún hefur m.a. sýnt verk sín í Nýlistasafninu, Kling & Bang gallerí, Suðsuðvestur og Passerby í New York. Andrea hefur setið í stjórn Nýlistasafnsins frá 2006 og verið sýningarstjóri nokkurra sýninga í safninu. Hún var framkvæmdastjóri Sequences Real Time Festival í Reykjavík árið 2007. Í nóvember á þessu ári mun Andrea halda einkasýningu í D sal Listasafns Reykjavíkur.

Í verkum sínum vinnur Andrea gjarnan með hugmyndir um fegurð, tísku, útlitsdýrkun, líkama, heilsu og dauða, hvort sem er í formi teikninga, skúlptúra eða jafnvel ilmi. Andrea víkkar skynjun áhorfandans og skapar nýja leið til upplifunar. Upplifun á fegurð, tilfinningum, áhrifum, sögu og minningum. Þannig kveikja verkin í skynfærum áhorfandans. Sýning Andreu í Gallerí Ágúst mun samanstanda af nýjum verkum sem eru sérstaklega unnin fyrir þetta tilefni og fela í sér einkennandi skerpu og fegurð.

Gallerí Ágúst var stofnað sumarið 2007 og er staðsett í hjarta gamla miðbæjarins, en þar eru einkum sýnd ný verk eftir íslenska sem erlenda listamenn. Í sýningarsalnum fara einnig fram gjörningar og aðrir menningarviðburðir árið um kring.

Gallerí Ágúst
16. maí - 28. júní
Baldursgata 12, 101 Reykjavík
Opið miðvikudaga til laugardaga frá 12.00 til 17.00 og eftir samkomulagi
www.galleriagust.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica