Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Ernesto Neto
Mynd 1 af 2
1 2

Gallerí i8 / Ernesto Neto

Í Gallerí i8 verður Ernesto Neto með einkasýningu, en hann er einn virtasti samtímalistamaður sinnar kynslóðar í Brasilíu.

Hann vinnur með næfurþunn efni, gjarnan fyllt efni á borð við sand, krydd eða hveiti, og skapar úr þeim stórar innsetningar úr lífrænum formum og rýmum sem skapar sterk hughrif – óhlutbundin en um leið munúðarfull verk sem hann kallar rannsókn á landslagi líkamans séð innan frá. Verkin eru fest í loft, á gólf og á veggi rýmisins og vekja einstaka og dálítið villandi hughrif svo áhorfandanum finnst hann eins og á kafi í sjálfum sér.

Edda Jónsdóttir stofnaði i8 árið 1995 og þar eru sýnd verk margra fremstu listamanna samtímans, jafnt íslenskra sem erlendra.

Gallerí i8
16. maí - 28. júní
Klapparstígur 33, 101 Reykjavík
Opið þriðjudaga til föstudaga frá 11.00 til 17.00, laugardaga frá 13.00 til 17.00 og eftir samkomulagi
ww.i8.is



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica