Borgarleikhúsið - FIMM
FIMM - ljósmyndaverkefniÁrið 2006 dreifði Hálfdán Pedersen einnota ljósmyndavélum til allra fimm ára barna (fædd árið 2000) á leikskólum í öllum bæjar- og sveitarfélögum á Íslandi. Markmiðið var að hvetja leikskólabörn til að reyna sig við ljósmyndun og listsköpun almennt. Í þeim hraða sem ríkir í þjóðfélaginu eigum við til að gleyma hver við erum og hvað við eigum sameiginlegt. En sem betur fer er sakleysi barna ósnert af þessum hraða, þau horfa af einlægni á heiminn eins og hann birtist og reyna yfirleitt ekki að túlka hann um of. Börn upplifa augnablikið sjálft, frekar en dýpri merkingu þess. Þar af leiðandi einkennast ljósmyndir barna bæði af frjálsleika og tærri sýn, sem verður svo aftur listrænt heillandi í augum hinna fullorðnu. Að gefnu leyfi foreldra fékk hvert barn afnot af einni vél í eina viku, eða þar til filman kláraðist (27 myndir). Vélunum var dreift markvisst yfir árstíðirnar fjórar, en að öðru leyti fengu börnin algerlega frjálsar hendur. Foreldrar og forráðamenn voru vinsamlegast beðnir um að reyna að hafa engin áhrif á val barnanna á myndefni. Þegar hvert barn hafði klárað filmuna var vélin endursend og filman sett í framköllun. Í árslok 2006 voru þannig orðnar til 20 þúsund myndir, teknar af fimm ára börnum um land allt.
Nú hafa um 250 ljósmyndir verið valdar til að skreyta veglega ljósmyndabók og aðrar 60 til að prýða ljósmyndasýningu í forsal Borgarleikhússins á Listahátíð í Reykjavík 2008. Allar eiga myndirnar það sameiginlegt að tjá fordómalausa sýn fimm ára aldamótabarna á sitt nánasta umhverfi – tilveru sem hinir fullorðnu eiga til að líta framhjá - og eru um leið heimild um Ísland samtímans. Þannig hefur verkefnið listrænt, menningarlegt og sögulegt gildi og er svo vitað sé einstakt á heimsvísu.

