Listasafn ASÍ / Halldór Ásgeirsson og Paul-Armand Gette
Í Listasafni ASÍ sýna þeir Halldór Ásgeirsson og Paul-Armand Gette verk sem eru innblásin af hinum fjölmörgu eldfjöllum Íslands, en það myndefni hefur áður komið við sögu í verkum beggja listamannanna. Í verkum sínum notar Halldór logsuðutæki til að umbreyta grófgerðu hrauni í undursamlega fíngerða glerfugla, en Gette notast við mun vísindalegri nálgun og tækni.
Listasafn ASÍ er til húsa í byggingu sem var áður íbúðarhús myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar, en húsið er eitt glæsilegasta dæmið um móderníska byggingalist á 4. áratug síðustu aldar í Reykjavík. Safnið heldur um tuttugu sýningar árlega og í safneign þess eru verk margra af fremstu listamanna Íslands á 20. öld.
Listasafn ASÍ
16. maí -13. júní
Freyjugata 41, 101 Reykjavík
Opið alla daga nema mánudaga frá 13.00 – 17.00
www.asi.is

