Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Dialogue projects

Á horni Lækjargötu og Austurstrætis / Dialogue

Í Dialogue, eftir pólsku listamennina Önnu Leoniak og Fiann Paul, sjást andlit tæplega þúsund barna frá þorpum og bæjum víðs vegar af landsbyggðinni á Íslandi,

prentuð á álplötum í stærðinni 75X75 sem hengdar verða á rústir byggingar sem eldur hefur gjöreytt. Verkefnið er helgað þeirri kynslóð sem hefur framtíð byggða á Íslandi í höndum sér og er á sama tíma minnisvarði um fegurð og gildi hinna dreifðari byggða Íslands.

Leoniak, sem hefur meistarapróf í arkitektúr, starfar bæði sem hönnuður og ljósmyndari hér á landi, en Paul, sem einnig hefur lokið meistararprófi í arkitektúr og uppeldisfræði, stjórnar vinnuhópum og er ljósmyndari, leikari og kvikmyndaframleiðandi.
Dialogue á Íslandi er hugsað sem upphafið að stærra alþjóðlegu verkefni sem taka mun til margra landa.

Dialogue
Á horni Lækjargötu og Austurstrætis
Frá 16. maí



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica