Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Atlantis

Tjörnin í Reykjavík / Atlantis

Atlantis, sköpunarverki Tea Mäkipää og Halldórs Úlfarssonar, verður komið fyrir í Reykjavíkurtjörn og sýnir hálfsokkið hús sem er tákn fyrir hugmyndir okkar um að lifa af.

Frá Tjarnarbakkanum sést í eitt horn þessa litla húss; frá því stafar hlýlegri birtu og hljóðlátur erill daglegs lífs ómar inni fyrir, allt frá rauli til rifrilda. Atlantis er ætlað að minna okkur á hversu berskjölduð manneskjan er og hve mjög hún er undirorpin nútímalegum lífsmáta sínum; hvernig náttúruhamfarir geta orðið til þess að kollvarpa öllu lífi okkar. Mäkipää hefur í verkum sínum unnið mikið með afkomu og það að lifa af og tjáir þá hugmynd gjarnan í umfangsmiklum skúlptúrískum byggingum og innsetningum. Halldór heillast mjög af dómsdagsviðburðum og miklum náttúruhamförum og gjörningar hans og innsetningar hafa borið þess vitni undanfarin ár.

Atlantis
Tjörnin í Reykjavík
Frá 16. maí



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica