Denyce Graves
Denyce Graves messósópran er ein skærasta stjarna söngheimsins um þessar mundir og heillar sífellt nýja aðdáendur, jafnt meðal almennings og gagnrýnenda um heim allan.
Píanóleikari á tónleikunum á Listahátíð í vor er David Triestram. Hann er heimskunnur, bandarískur píanóleikari sem leikur jafnt með þekktum einsöngvurum á tónleikum sem og með hljómsveitum virtra óperuhúsa um heim allan.
Ferill Denyce Graves hefur verið samfelld sigurganga frá því hún kom fyrst fram í hlutverki Carmen í Metropolitan óperunni í New York. Það hlutverk, ásamt titilhlutverkinu í Samson et Dalila, hefur hún sungið síðan í virtustu óperuhúsum heims, svo sem Royal Opera í Covent Garden, Vienna Staatsoper, San Francisco Opera, Opéra National de Paris og Deutsche Oper Berlin svo fáein dæmi séu nefnd. Graves hefur sungið fjölmörg önnur hlutverk, enda býr hún yfir góðum leikhæfileikum, hefur magnaða sviðsframkomu og að sjálfsögðu stórkostlega rödd sem nær yfir sérlega breitt raddsvið.
Denyce Graves söng í fyrsta sinn í Metropolitan óperunni 1995-1996 sem Carmen í samnefndri óperu. Hún söng sama hlutverk ári síðar í nýrri uppfærslu Franco Zeffirelli undir stjórn James Levine, og enn og aftur á næsta tímabili og þá á móti sjálfum Placido Domingo. Hún söng síðar hlutverk Dalilu í Samson et Dalila á móti Domingo í sama óperuhúsi og árið 1999 í Los Angeles óperunni. Undir hans stjórn söng hún hlutverk þessa tálkvendis Saint-Saëns í Washington óperunni á móti José Cura, en hafði áður sungið það í Royal Opera House í Covent Garden, London.
Graves kemur nú fram í öllum helstu óperuhúsum Evrópu og Norður-Ameríku í ýmsum hlutverkum óperubókmenntanna. Hún hefur unnið með öllum helstu og virtustu sinfóníuhljómsveitum og hljómsveitarstjórum heims, svo sem Riccardo Chailly, Myung-Whun Chung, Charles Dutoit, Christoph Eschenbach, James Levine, Zubin Mehta, Lorin Maazel, Kurt Masur og Mstislav Rostropovich.
Graves heldur einnig fjölmarga einsöngstónleika á ári hverju, enda ein eftirsóttasta mezzósópransöngkonan í dag. Hún hrífur áhorfendur með stórkostlegri rödd og kröftugri sviðsframkomu. Efnisskrá hennar inniheldur alla jafna sambland þýskra söngljóða, franskra og enskra sönglaga, vinsælla Broadwaysöngva og bandarískra negrasálma. Þegar hún kom fyrst fram á einsöngstónleikum í New York, skrifaði gagnrýnandi frá New York Times: „...rödd hennar er dökk og gróf. Hún hefur einstaklega sterka nærveru á sviði og heillar áhorfendur sína uppúr skónum, jafnvel í fjögur uppköll.“
Árið 2001 kom Denyce Graves fram á nokkrum tónleikum til minningar um þá sem létu lífið í hryðjuverkaárásunum 11. september það ár. Hún söng m.a. við opinbera minningarathöfn í Washington D.C. en þeirri athöfn var sjónvarpað um heim allan. Denyce Graves hefur borið titilinn Menningarsendiherra Bandaríkjanna frá árinu 2003. Denyce Graves hefur einnig hlotið fjölda alþjóðlegra verðlauna og viðurkenninga.
Sjá nánar á www.denycegraves.com
Sjá útgefið efni
Hér er efnisskrá tónleikanna á pdf-skjali.

