Smaragðsdýpið - barnasýning
SMARAGÐSDÝPIÐ MIKLA
eða...
um Marvintýri Purbayan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans
Hið alþjóðlega Hypno leikhús frá Berlín býður upp á óvenjulega blöndu af tónlist, brúðuleik og sjónlist í sýningu Hjörleifs Jónssonar Smaragðsdýpið mikla. Áhorfendur ferðast með ungu indversku sjávarskjaldbökunni Purbayan Ranjan Biswas í leit hans að svarinu við spurningunni um hvað leynist á botni hafsins. Á leið sinni kynnist hann mörgum einkennilegum og áhugaverðum dýrum og er fylgt eftir af tígrishákarlinum dularfulla Sigurkarli Margleypi hinum þriðja. Eftir því sem við köfum dýpra verður hafið myrkara og verurnar yfirnáttúrulegri. Við færumst sífellt nær svarinu við spurningunni: hvað leynist niðri í dýpstu og myrkustu afkimum Indlandshafsins?. Viljum við virkilega vita svarið? Leiksýningin skartar sjómannatónlist og lögum frá öllum heimshornum í einstökum búningi.
Hypno leikhúsið samanstendur af hópi listamanna sem hafa sameinast í áhuga sínum á sögum og tónlist fyrir börn. Hópurinn er skipaður fjórum tónlistarmönnum og tveimur brúðulistamönnum/sjónlistamönnum frá fimm löndum. Smaragðsdýpið mikla er þriðja alþjóðlega sýning hópsins. Hinar fyrri, "Tónlist frá yúnglinu" og "Snædrotting H.C. Andersens" hafa verið fluttar fyrir þúsundir barna um allan heim. Nánari upplýsingar er að finna á slóð leikhússins.
Sýningin er á vegum Skólatónleika á Íslandi í samvinnu við Listahátíð.
Aðrar sýningar:
20., 21. og 22. maí kl. 9.00 og 10.30 - skólasýningar í Íslensku óperunni, ekki í sölu.
23. maí kl. 9.00 í Mánagarði, Höfn í Hornafirði. Midasala á menningarmidstod@hornafjordur.is og í afgreiðslu bókasafnsins í Nýheimum.
23. maí kl. 15 í Kirkju- og menningarmiðstöðinni Fjarðarbyggð, Eskifjarðarkirkju. Miðasala í Menningarmiðstöðinni Fjarðarbyggð, upplýsingar á www.tonleikahus.is

