Þorkell Sigurbjörnsson
Tónverk fyrir fiðlu - litið um öxl á ferli eins virtasta tónskálds Íslands.
Þorkell Sigurbjörnsson er eitt ástsælasta og áhrifamesta tónskáld okkar Íslendinga. Höfundarverk hans er einkar fjölbreytilegt og inniheldur fjölda hljómsveitarverka, einleikskonserta, kammerverka, mikið af raf- og tölvutónlist, einleiksverk, kammeróperur, sönglög og kórtónlist, en sálmalög Þorkels eru meðal þekktustu verka hans. Í ár fagnar Þorkell Sigurbjörnsson sjötugsafmæli sínu og í tilefni þess verða haldnir sérstakir afmælistónleikar á Listahátíð. Efnisskrá tónleikanna verður sérlega falleg og inniheldur öll verka Þorkels fyrir einleiksfiðlu og fiðlu og píanó. Hljóðfæraleikarar eru þau Sigurbjörn Bernharðsson, fiðluleikari og frændi tónskáldsins, og Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari.
Þorkell Sigurbjörnsson fæddist í Reykjavík árið 1938. Hann stundaði nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík, en framhaldsnám í Bandaríkjunum. Þar urðu tónsmíðarnar aðalnámsgrein Þorkels. Hann stundaði tónsmíðanámið við Hamiline háskólann í St. Paul í Minnesota og við Illinois háskóla í Champaign-Urbana. Kennarar hans í Bandaríkjunum voru R.G. Harris, Kenneth Gaburo og Lejaren Hiller. Þorkell sótti enn fremur tónsmíðanámskeið í Darmstadt í Þýskalandi og Nice í Frakklandi. Þorkell Sigurbjörnsson er eitt kunnasta og afkastamesta tónskáld Íslendinga í dag og er verkaskrá hans mikil að vöxtum. Auk tónsmíðastarfa er hann kennari í tónfræðum og tónsmíðum við Tónlistarskólann í Reykjavík. Þorkell Sigurbjörnsson hefur einnig stundað píanóleik og starfað sem tónlistargagnrýnandi og dagskrárgerðarmaður í útvarpi. Hann var formaður Tónskáldafélags Íslands á árunum 1983-88. Eftir að Þorkell kom heim úr námi árið 1962 starfaði hann með Musica Nova og tók virkan þátt í að móta tónlistarlíf samtímans. Tónlist Þorkels Sigurbjörnssonar er ákaflega fjölbreytileg. Í viðamiklu höfundarverki hans má finna hljómsveitarverk, einleikskonserta, fjölda kammerverka, raf- og tölvutónlist, einleiksverk, kammeróperur, sönglög og kórtónlist, jafnt veraldlega sem andlega, en sálmalög Þorkels eru meðal ástsælustu og þekktustu verka hans. Framlag Þorkels Sigurbjörnssonar til íslenskrar tónlistarmenningar er þegar orðið mjög stórt. Þetta á ekki bara við um framlag hans í formi tónsmíða. Þorkell Sigurbjörnsson hefur verið kennari allflestra íslenskra tónskálda og annarra tónlistarmanna frá því hann kom sjálfur heim úr námi og áhrif hans á íslenskt tónlistarlíf eru því umtalsverð. Bergþóra Jónsdóttir
Staður: Íslenska óperan og Laugarborg, við Hrafnagil í Eyjafjarðarsveit.
Dagsetning: 4. júní kl. 20.00 og 5. júní kl. 20.30 fyrir norðan

