Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2008
Wayne Shorter

Wayne Shorter kvartettinn

Wayne Shorter er einn af helstu meisturum djassins. Ferill þessa bandaríska saxófónleikara spannar nú meira en hálfa öld og hefur stjarna hans skinið skært.

Wayne Shorter er afburðarsnjall hljóðfæraleikari og fremstur í flokki tenór- og sópransaxófónleikara samtímans, arftaka snillinga á borð við John Coltrane og Sonny Rollins. Hann er einnig framúrskarandi lagahöfundur ogtil vitnis um það eru lög eins og Speak No Evil, Infant Eyes, Witch Hunt, Penelope, Adam´s Apple, Footprints og aðrar margbrotnar tónsmíðar sem þegar eru orðnar að ódauðlegum djassstandördum. Wayne Shorter fæddist árið 1933 í Newark, New Jersey.

Hann útskrifaðist árið 1956 frá lista- og músíkdeild New York University en var þá þegar orðinn kunnuglegt andlit á djasssenu New York borgar. Hann var kallaður í herinn og gegndi herþjónustu í tvö ár, en fljótlega eftir að henni lauk fór hann að spila með John Coltrane og Sonny Rollins. Frá 1959 til 1963 lék hann með Art Blakey og hljómsveit hans The Jazz Messengers. Þar má segja að hann hafi náð að skipa sér sess sem öflugur nýliði sem bæði lærði mikið og eftir var tekið, en hann var m.a. útnefndur „Ný stjarna saxófónsins“ í kosningu hins virta djasstímarits Downbeat árið 1962. Á sama tíma vakti hann mikla athygli sem lagahöfundur og var kosinn annar besti tónsmiður djassheimsins á eftir sjálfum Duke Ellington. Árið 1964 þekktist Wayne Shorter boð Miles Davis um að gerast liðsmaður í hljómsveit hans, sem í voru fyrir Herbie Hancock, Ron Carter og Tony Williams. Í félagsskap þessara goðsagnakenndu tónlistarmanna lék hann í sex ár og hljóðritaði á annan tug hljómplatna. Þar átti Wayne Shorter, ásamt stjórnanda hljómsveitarinnar, stóran þátt í því að skapa algerlega nýjan hljóm sem hafði varanleg áhrif á þróun djassins.

Árið 1970 stofnaði hann hljómsveitina Weather Report ásamt Joe Zawinul og Moroslav Vitous, hljómsveit sem átti eftir að hafa afgerandi áhrif í tónlistarheiminum. Í þessum félagsskap, samhliða eigin sólóferli, fór Shorter að feta ótroðnar slóðir og blanda ýmist rokki, klassík og rafeindatónlist við djassinn. Weather Report var í fararbroddi „fusion“-sveita fram á fyrri helming níunda áratugarins, en hljómsveitin lagði upp laupana 1985 og hafði þá tekið upp sextán hljómplötur, þar af Grammyverðlaunaplötuna 8:30. Árið 1986 stofnaði Shorter sína eigin hljómsveit og gaf út fjölda diska fyrir mismunandi útgáfufyrirtæki. Hann hefur unnið með ýmsum þekktum tónlistarmönnum, svo sem Steely Dan (AJA), Carlos Santana (The Swing of Delight) og Joni Mitchell, en þau Shorter eiga að baki langt og farsælt samstarf.

Önnur sólóplata Shorters, Atlantis, kom út 1986 og var tilnefnd til Grammy verðlaunanna. Það var aðeins sú fyrsta af fjölda Grammytilnefninga, en alls hefur hann verið tilnefndur þrettán sinnum og áskotnast verðlaunin níu sinnum. Wayne Shorter og Herbie Hancock gáfu saman út plötuna 1+1 árið 1997 og fylgdu henni eftir með tónleikaferðalagi 1998. Footprints er nýjasti hljómsveitarbræðingurinn sem Shorter á heiðurinn af, stofnaður árið 2001. Aðrir meðlimir þessa bands eru allir tónlistarmenn á heimsmælikvarða: þar eru Danilo Perez, píanóleikari, John Patitucci, bassaleikari og Brian Blade, trommuleikari innanborðs. Wayne Shorter hefur í fjölda ára tekist að blanda saman vinsælli og framsækinni tónlist, sem sýnir okkur að hann er án efa einn mest skapandi tónlistarmaðurinn í sögu djassins. Til marks um stöðu hans í tónlistarheiminum kaus Downbeat hann besta sópransaxófónleikarinn í sautján ár samfleytt frá 1969. Og enn í dag fylgir honum stór hópur dyggra aðdáenda sem bíður í ofvæni eftir hverju því sem frá honum kemur. Tónleikarnir eru í samstarfi við Landsbankann.

Ummæli:

„Wayne Shorter. Einn af okkar allra bestu tónsmiðum. Sannkallaður meistari. Wayne er einn fárra sem skrifaði tónlist fyrir Miles [Davis] og hann vildi ekki breyta.” Herbie Hancock

„Wayne er alvöru tónsmiður. Hann skrifar raddskrár og útsetur þær alveg nákvæmlega eins og hann vill að þær hljómi. […] Hann skilur að frelsi í tónlist snýst um að kunna reglurnar, en líka að beygja þær og breyta til að ná fram því besta hjá öllum.” Miles Davis

„Einn mikilvægasti tónsmiður og saxófónleikari djassheimsins.“ New York Times



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica