Beint í leiðarkerfi vefsins.
Setning Listahátíðar í Reykjavík 2007 verður í Listasafni Íslands í beinni úsendingu í Sjónvarpinu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, setur hátíðina. Meðal listamanna sem fram koma eru Ghostigital, sem mun flytja framúrstefnulega tónlist sína á allsérstæðan hátt; Konono N°1 frá Kongó og Hamrahlíðarkórinn sem flytur nokkur lög.
Lesa meira
Á næsta ári verða liðin 60 ár frá því að alþjóðlegi listamannahópurinn Cobra var stofnaður, en hann var mikilvægur og frjór vettvangur fyrir abstraktlistina.
Lesa meira
Royal de Luxe er óvenjulegt götuleikhús frá Frakklandi sem ferðast um allan heim til að færa fólki hreint út sagt stórkostleg ævintýri.
Lesa meira
Einstakur viðburður í varðskipi við Reykjavíkurhöfn.
Vatnadansmeyjafélagið Hrafnhildur leiðir sýningu um borð í elsta skipi Landhelgisgæslunnar. Varðskipið Óðinn fær þá nýtt yfirbragð þar sem ímyndunaraflið fær að flæða um hvern krók og kima.
Konono N°1 er stórskemmtileg og óvenjuleg hljómsveit frá Kinshasa, höfuðborg Afríkuríkisins Kongó. Konono N°1 hlaut BBC verðlaunin árið 2006 sem bestu nýliðarnir í heimstónlist og spila með Björk á nýjustu plötu hennar, Volta, sem kemur út 7. maí.
Lesa meira
Þessi sýning, sem ber titilinn My Oz er fyrsta stóra yfirlitssýningin á verkum Roni Horn á Norðurlöndunum. Listamaðurinn og sýningarstjórinn hafa unnið náið saman við að velja verkin, sem er ætlað að endurspegla sterk tengsl Horn við Ísland en einnig að gefa skýra heildarmynd af listamannsferli hennar.
Lesa meira
var ekki hár í loftinu þegar hann náði athygli Nadia Boulanger, Yehudi Menuhin og Henryk Szeryng. Hæfileikar hans komu snemma í ljós og á ferli sínum hefur hann sópað til sín sín verðlaunum úr alþjóðlegum tónlistarkeppnum.
Lesa meira
Kunz-fjölskyldan mun skemmta börnum og fullorðnum á Listahátíð í vor. Meðlimir hennar eru sérkennilegt fólk sem er eilítið utangarðs; fólk sem ferðast um og skemmtir öðrum rétt eins og gert var í eina tíð á furðufuglaskemmtunum þar sem gert var grín og sýndar sjónhverfingar.
Lesa meira
Bandaríski listamaðurinn Spencer Tunick opnar sýningu á nýjum verkum í gallerí i8 laugardaginn 12. maí.
Lesa meira
Lestur með Roni Horn og Guðrúnu Evu Mínervudóttur. Með þessum upplestri verður Vatnsbókasafn Roni Horn formlega opnað og verkefninu Gestarithöfundur Vatnasafnsins hleypt af stokkunum.
Lesa meira
Tónamínútur er verk fyrir einleiksflautu og flautu og píanó eftir Atla Heimi Sveinsson. Flytjendur eru Áshildur Haraldsdóttir flauta, Anna Guðný Guðmundsdóttir píanó og Atli Heimir Sveinsson píanó.
Lesa meira
"Stundum sofna þau saman í sófanum. Stundum sofnar hann í sófanum og hún stendur upp og sofnar í sínu rúmi. Stundum er því öfugt farið.
Lesa meira
Í ár eru 380 ár liðin frá Tyrkjaráninu, skelfilegasta sjóráni í sögu Íslands. Af því tilefni mun Vestmannaeyjabær standa fyrir margvíslegum viðburðum.
Lesa meira
Hinn margverðlaunaði leikhópur Cheek by Jowl, sem átt hefur stóran þátt í að breyta ásýnd bresks leikhúss og er talinn einn af tíu bestu leikhópum veraldar, sýnir eitt af merkustu verkum William Shakespheare á Listahátíð í vor í samstarfi við Þjóðleikhúsið.
Lesa meiraÍ tilefni af heimsókn San Francisco ballettsins verður sett upp í anddyri Borgarleikhússins sýning um feril Helga Tómassonar, allt frá því að hann steig sín fyrstu spor á sviði sem kornungur listdansnemi. Sýningin er samstarfsverkefni Leikminjasafns Íslands, Listahátíðar í Reykjavík og Borgarleikhússins.
Lesa meira
þarf vart að kynna fyrir Íslendingum eftir komu hans hingað til lands á Listahátíð árið 2000. Nú, sjö árum síðar, kemur Helgi Tómasson með flokk sinn aftur til landsins en hann telur um 60 manns. Helgi hefur sett saman sýningu sérstaklega fyrir Íslendinga sem byggir eingöngu á ballettum sem hann hefur samið fyrir flokkinn.Íslendingum eftir komu hans hingað til lands á Listahátíð árið 2000.
Lesa meira
Jón Leifs er án efa mesti frumkvöðull í íslenskri tónsköpun. Strengjakvartettar hans lýsa í senn sérstæðum stíl tónskáldsins og endurspegla hugarástandi hans þegar hann samdi þá.
Lesa meira
Þegar óperan Viröld fláa (Die Wält der Zwischenfälle) eftir Hafliða Hallgrímsson var frumsýnd í borgarleikhúsinu í Lübeck í febrúar 2004 var henni fagnað af gagnrýnendum sem veigamiklu listaverki sem “gæti orðið á óperusviðinu það sem Beðið eftir Godot er í leikhúsheiminum - sígilt absúrdverk.”
Lesa meira
Magma/Kvika er ein viðamesta sýning á íslenskri samtímahönnun sem sett hefur verið upp og spannar svið hennar ótal svið listgreinarinnar, svo sem húsgögn, fatnað, ljós, skartgripi, byggingarlist, vefnað, tækninýjungar og matargerð.
Lesa meira
Tónskáldið og gítarleikarinn Goran Bregovic hefur verið helsti merkisberi balkanskrar tónlistar í tvo áratugi. Hann mætir með stórhljómsveit sína á Listahátíð í samstarfi við tónlistarhátíðina Vorblót og flytur tónlist úr brúðkaupum og jarðarförum, sem hann hefur unnið á undanförnum árum.
Lesa meira
Strengjakvartett Kammersveitar Reykjavíkur flytur strengjakvartetta Jóns Leifs. Jón Leifs er án efa mesti frumkvöðull í íslenskri tónsköpun.
Lesa meira
Hvorostovsky er fæddur í Krasnoyarsk í Síberíu og stundaði tónlistarnám þar í borg. Hann þreytti frumraun sína á óperusviðinu á vesturlöndum í uppfærslu Óperuhússins í Nice á Pique Dame eftir Tchaikovsky og eftir það rigndi yfir hann tilboðum frá öllum helstu óperuhúsum heims, m.a. Konunglega óperuhúsinu í Lundúnum, Scalaóperunni og Metropolitan óperunni, svo fátt eitt sé nefnt.
Lesa meira
Það mun varla ofsögum sagt að Bryn Terfel sé einn dáðasti söngvari samtímans. Listfengi hans er óbrigðult, blæbrigði raddarinnar óvenju mörg og dýpt túlkunarinnar einstök, bæði í tónum og texta. Auk þess þykir hann gæddur miklum persónutöfrum sem hann beitir óspart, enda hefur hann heillað áheyrendur hvarvetna upp úr skónum.
Lesa meira
Verðlaunahafar Bachkeppninnar í Leipzig frá því í fyrra, þau Elfa Rún Kristinsdóttir fiðluleikari og Francesco Corti semballeikari, flytja tónlist Johanns Sebastians Bachs.
Lesa meira
(ISC) er sveit sem einbeitir sér að tónlist sem hefur að þungamiðju sinni hreint hljóð og notast í því skyni við hljóðfæri eins og gong og tam-tam, ásamt öðrum ásláttarhljóðfærum og rafgítar.
Lesa meira
Ari Þór Vilhjálmsson fiðluleikari og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari flytja ýmsa þekkta konfektmola og virtúósóverk tónbókmenntanna, m.a. eftir Bartok og Strauss.
Lesa meira
Á tónleikaröðinni "Ungir einleikarar á Listahátíð" í Ými, koma fram ungir og upprennandi tónlistarmenn sem vakið hafa verðskuldaða athygli að undanförnu.
Lesa meira
Djasstríó Esbjörns Svenssonar, eða E.S.T. kemur fram á Listahátíð í vor og heldur tvenna tónleika í Nasa dagana 25. og 26. maí. Tríóið skipa sænskir tónlistarmenn sem flytja afar skemmtilegan og framúrstefnulegan djass sem þeir spila um þessar mundir fyrir áheyrendur um allan heim.
Lesa meira
Leikfélagið Gilligogg í samstarfi við Þjóðleikhúsið sýnir á Listahátíð 2007 verkið Partíland.
Partíland verður sýnt á Stóra sviði Þjóðleikhússins og er lokaviðburður Listahátíðar í Reykjavík 2007.