Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir
2006
I Fagiolini

I Fagiolini - L’;Amfiparnaso

I Fagiolini

er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit Englendinga sem sérhæfir sig í tónlist frá endurreisnartímanum. Þau hafa hlotið gríðarlega góðar viðtökur á meðal tónlistarsérfræðinga og ungra áhorfenda fyrir sviðsetningar sínar á tónlistar- og leikhúsverkum frá endurreisnar- og barokktímanum sem og framúrskarandi flutning á nútímatónlist.
I Fagiolini flytur okkur á þessari Listahátíð gleðileikinn L’;Amfiparnaso eftir ítalska tónskáldið Orazio Vecchi (1550 – 1605).

Í þessu stórskemmtilega tónverki frá árinu 1594 blandar Vecchi saman madrigölum og commedia dell´arte persónum í formi sem á sínum tíma var eins konar undanfari óperunnar. Þetta form, sem kallaðist “madrigala–gleðileikur”, átti blómaskeið sitt á seinni hluta 16. aldar, en vandamálið var oft að gæði tónlistarinnar voru ekki í samræmi við leikinn sjálfan og söguþráðinn. Þessu vildi Vecchi breyta með verkinu L´Amfiparnaso, en titill þess vísar til tveggja tinda hins gríska skáldafjalls Parnassos Í verkinu haldast þessi tvö frumatriði formsins, söngur og leikur, í hendur sem jafningjar og má geta sér þess til að þar sé komin skýringin á því hvers vegna L´Amfiparnaso hefur staðiðst tímans tönn. Eins og oft vill verða í Commedia dell’; arte leikjum er söguþráðurinn einfaldur og hverfist um óhamingjusamt par, ráðagóða svikahrappa og ósvífið þjónustufólk. Grímubúnir leikarar túlka söguna með látbragði og tónlistin er sungin á ítalskri mállýsku frá Toscana-héraði og Feneyjum. Hvert atriði er svo kynnt með stuttum og skemmtilegum formála sem Davíð Þór Jónsson hefur þýtt á íslensku.

Sögumaður er Hilmir Snær Guðnason.

Á undan flutningi L´Amfiparnaso mun I Fagiolini flytja madrigala eftir öllu frægari samtímamann Vecchis, Claudio Monteverdi (1567–1643). Monteverdi er þekktastur fyrir óperur sínar og trúarleg verk, en veraldleg kammerverk hans eru síður þekkt. Á ferli sínum gaf hann ríkulegum sköpunarkrafti sínum lausan tauminn í fjölda slíkra verka, sem eru í senn ástríðufull og frumleg og vel þess virði að þeim sé gert hátt undir höfði.
Lengd: 1 klst. og 50 mín með hléi

Í samstarfi við Íslensku óperuna
Landsbankinn og breska sendiráðið styrkja komu I Fagiolini til landsins

28. maí verða tónleikar I Fagiolini hópsins með efnisskránni "Monteverdi: Brennandi hjarta" í Íslensku óperunni kl. 17.00



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica