Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

2006

Setning Listahátíðar 2006

Miðasala í Bankastrætinu

Formaður fulltrúaráðs Listahátíðar, Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri, setur hátíðina. Við þetta tækifæri koma fram nokkrir listamenn hátíðarinnar; Motion tríóið frá Kraká, sem leikur sína ómótstæðilegu tónlist á þrjár harmónikkur, dansarar úr brasilíska danshópunum Grupo Corpo stíga dans og hin glæsilega unga mezzósópransöngkona Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir frumflytur tónverk eftir Þorkel Sigurbjörnsson við ljóð eftir Jón úr Vör.

Lesa meira
 

Galdraskyttan - ópera

Óperan Galdraskyttan

Þetta frábæra, klassíska verk verður flutt í fyrsta skipti á Íslandi af Sumaróperunni með mörgum af efnilegustu söngvurum yngri kynslóðarinnar, Sinfóníuhljómsveit unga fólksins og óperukór unga fólksins.

Lesa meira
 

Skyn(sam)leg rými - rými, list og umhverfi

Skyn(sam)leg rými

Ráðstefna við Háskóla Íslands sem tekur fyrir hugmyndir um rýmið og hvernig það er skynjað og upplifað bæði í borg og byggð sem og í náttúru.

Lesa meira
 

Anders Widmark og Carmen

Anders Widmark

Einn albesti djasspíanisti samtímans, Anders Widmark verður í fararbroddi óvenjulegs djasstríós sem heldur tvenna tónleika á Listahátíð í Reykjavík þar sem flutt verður margrómuð djassútgáfa af tónlistinni úr óperunni Carmen eftir Georges Bizet.

Lesa meira
 

I Fagiolini - Monteverdi: Brennandi hjarta

I Fagiolini

I Fagiolinio er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit Englendinga sem sérhæfir sig í tónlist frá endurreisnartímanum.

Lesa meira
 

Magnolia - Trans Danse Europe

Trans Danse Europe, 2003 til 2006, er þriggja ára samstarfsverkefni dansflokka átta Evrópulanda sem Listhátíð í Reykjavík hefur komið að frá upphafi. Á hátíðinni í ár gefur að líta fjögur mismunandi verkefni frá fjórum löndum.

Lesa meira
 

Mugison í Austurbæ

Mugison

Hinn fjölhæfi tónlistarmaður Örn Elías Guðmundsson, þekktur sem Mugison, er einhver skærasta stjarna í íslensku tónlistarlífi í dag. Tilgerðarlaus einlægni hans hefur sannarlega hitt í mark og hafa geisladiskar hans, Mugimama, Niceland og Lonely Mountain, hlotið mikið lof.

Lesa meira
 

Miðnæturmúsík í Iðnó - Vorvindar

Miðnæturmúsík

Á laugardagskvöldum á Listahátíð í ár verður fjörinu haldið áfram fram á nótt á þrennum miðnæturtónleikum sem fram fara í hjarta Reykjavíkur, Iðnó.

Hin ástsæla söngkona Andrea Gylfadóttir kemur fram ásamt tríói Björns Thoroddsen.

Lesa meira
 

OBSTRUCSONG - Trans Danse Europe

Trans Danse Europe, 2003 til 2006, er þriggja ára samstarfsverkefni dansflokka átta Evrópulanda. OBSTRUCSONG, Granhöj Dans, Danmörk: Sviðið er risastór ullarferhyrningur, umkringdur ljósalömpum sem sveigjast og breytast. Yrkisefnin eru erótík, daður, átök og þrá.

Lesa meira
 

Hélium - Trans Danse Europe

Hélium, Moussoux-Bonté, Belgía: Í súrrealísku andrúmslofti, ríkulega búnu kröftugu myndmáli, kljást dansararnir við kynferði, trúarbrögð og skemmtanaiðnaðinn, sem einkenna nútímasamfélagið.

Lesa meira
 

Sköpunin e. Haydn á Eskifirði

Eitt af meistarverkum Joseph Haydns, Sköpunin, verður flutt í Kirkju- og menningarmiðstöðinni á Eskifirði.

Lesa meira
 

I Fagiolini - L’Amfiparnaso

I Fagiolini

I Fagiolini er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit EnglendingaFagiolini. I Fagiolini flytur okkur á þessari Listahátíð gleðileikinn L’Amfiparnaso eftir ítalska tónskáldið Orazio Vecchi (1550 – 1605).

Lesa meira
 

I Fagiolini Masterklass

I Fagiolini

I Fagiolini er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit Englendinga. Íslenska óperan stendur fyrir Masterklass í samvinnu við Listahátíð þar sem meðlimir I Fagiolini hópsins munu leiðbeina söngvurum um flutning endurreisnar- og barokktónlistar.

Lesa meira
 

Le Pays frönsk ópera

Aðstandendur Les pays

Franska tónskáldið Joseph-Guy Ropartz skrifaði óperuna Le Pays eða Föðurlandið í byrjun 20. aldar. Þetta er eina ópera heimsbókmenntanna sem gerist á Íslandi samin af erlendu tónskáldi.

Lesa meira
 

I Fagiolini L’Amfiparnaso

I Fagiolini er þekkt um víða veröld sem ein framsæknasta söngsveit Englendinga. Í þessu stórskemmtilega tónverki frá árinu 1594 blandar Vecchi saman madrigölum og commedia dell´arte persónum í formi sem á sínum tíma var eins konar undanfari óperunnar.

Lesa meira
 

Sense in Place / Site-ations

Site-ations er myndlistarverkefni sem sex Evrópulönd taka þátt í. Verkefnið spannar heilt ár og á sér stað í formi sex atburða sem fara fram í öllum þátttökulöndunum sex: Wales, Lettlandi, Írlandi, Póllandi, Íslandi og Spáni.

Lesa meira
 

Rússíbanar í Íslensku óperunni

Rússíbanar ofl

Hljómsveitin Rússíbanar var stofnuð árið 1996 og sló strax rækilega í gegn með líflegum flutningi á tónlist hvaðanæva úr heiminum, einkum tónlist Mið-Austurlanda og Austur-Evrópu.

Lesa meira
 

La Strada - tónlist Nino Rota

Mozart og Nino Rota

Kammersveit Hafnarfjarðar flytur tónlist eftir hið þekkta ítalska tónskáld Nino Rota, sem samdi tónlist við nær allar kvikmyndir Fellini og hlaut frægð af. Hljómsveitarstjórinn Michele Marvulli, sem stundaði nám hjá Nino Rota í tónsmíðum, hefur útsett ballettsvítu Rota, “La Strada”,, fyrir kammersveit, en svítan byggir á stefjum úr tónlist kvikmyndarinnar.

Lesa meira
 

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð 2006, málþing

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð er ljóða- og tónlistardagskrá þar sem megináherslan er á möguleika mannsraddarinnar til að skapa list á mörkum ljóðlistar og tónlistar, myndbandalistar og gjörninga.

Lesa meira
 

Kammersveit Reykjavíkur - Mozart 250 ára

Kammersveit Reykjavíkur tileinkar W.A. Mozart glæsilega dagskrá í tilefni af því að árið 2006 eru 250 ár liðin frá fæðingu meistarans. Á dagskránni eru þrír konsertar: píanókonsert nr. 25 í C-dúr, fiðlukonsert nr. 4 í D-dúr KV 218 og klarinettukonsert í A-dúr.

Lesa meira
 

Búlgarski kvennakórinn Angelite

Angelite

Þessi heimsfrægi kvennakór kemur fram í fyrsta skipti á Íslandi í vor. Kórinn hefur sungið tónlist frá Balkanskaga og kirkjutónlist fyrir áhorfendur um allan heim í nærri því 20 ár og enn fara vinsældir hans vaxandi. Kórinn hefur m.a. sungið við afhendingu Nóbelsverðlaunanna og fyrir páfann i Róm og nýtur hvarvetna gríðarlegra vinsælda.

Lesa meira
 

Miðnæturmúsík í Iðnó - Benni Hemm Hemm - Stórhljómsveit

Á laugardagskvöldum á Listahátíð í ár verður fjörinu haldið áfram fram á nótt á þrennum miðnæturtónleikum sem fram fara í hjartaReykjavíkur, Iðnó með Benna Hemm Hemm - Stórhljómsveit.

Lesa meira
 

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð 2006, workshop

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð er ljóða- og tónlistardagskrá þar sem megináherslan er á möguleika mannsraddarinnar til að skapa list á mörkum ljóðlistar og tónlistar, myndbandalistar og gjörninga.

Lesa meira
 

La Strada - kvikmynd

Sýning á hinni klassísku kvikmynd Federico Fellinis “La Strada” frá árinu 1954 með Anthony Quinn og Giulietta Masina í aðalhlutverkum.

Lesa meira
 

Miriam Makeba Grand finale

Miriam Makeba

Miriam Makeba, eða Mama Africa eins og hún er nefnd, er einn af stærstu listamönnum síðustu aldar og sá sem líklega hefur haft mesta þýðingu fyrir afríska tónlist. Hún vakti fyrst alþjóðlega athygli þegar hún söng með Harry Belafonte á sjöunda áratugnum og fengu þau Grammy verðlaunin árið 1966.

Lesa meira
 

Ráðstefna Norrænna tónverkamiðstöðva – Tónlist á vefnum

Ráðstefnan er haldin í tengslum við fund tónverkamiðstöðva á Norðurlöndunum í Reykjavík. Skapast hefur einstakt tækifæri til að fá tónskáldið og tónlistarmanninn, Paul Hoffert, til Íslands til að ræða sýn hans á vefinn í framtíðinni og hvernig nú eru að skapast nýjar og mjög spennandi leiðir til að kynna og kynnast tónlist af öllum gerðum frá öllum heimshornum.

Lesa meira
 

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð 2006

Orðið tónlist - fjölljóðahátíð er ljóða- og tónlistardagskrá þar sem megináherslan er á möguleika mannsraddarinnar til að skapa list á mörkum ljóðlistar og tónlistar, myndbandalistar og gjörninga.

Lesa meira
 

Konur og Finnbogi - opnun sýningar

Framlag Gallerís i8 til Listahátíðar er sýning Finnboga Péturssonar og samsýning fjölda myndlistarkvenna, íslenskra og erlendra.

Lesa meira
 

Myrkraverk og misindismenn - Reykjavík í íslenskum glæpasögum

Við opnun sýningarinnar flytur Sigrún Klara Hannesdóttir landsbókavörður ávarp, til sýnins verða teikningar sem Halldór Baldursson hefur gert við Vetrarborgina eftir Arnald Indriðason.

Lesa meira
 

Caput - Tár Díónýsusar

Tár Dýónísusar

Samstarfsverkefni með nokkrum erlendum stofnunum og íslenskum og erlendum listamönnum þar sem kvikmyndalist og tónlist tvinnast saman á mjög nýstárlegan hátt. Þetta verkefni verður frumflutt á Listahátíð.

Lesa meira
 

A Prairie Home Companion - Útvarpsþátturinn

A Prairie Home Companion er einn vinsælasti útvarpsþáttur Bandaríkjanna og segja má að staða hans í vitund þorra manna þar í landi sé slík að óhætt sé að kalla þáttinn menningarstofnun útaf fyrir sig. Útvarpsþátturinn hefur tvívegis verið tekinn upp utan Bandaríkjanna og nú hefur verið ákveðið að þátturinn verði tekinn upp hér á landi í tengslum við Listahátíð.

Lesa meira
 

Norðurlandahraðlestin

Verkefnið er unnið af Borgarleikhúsinu í samstarfi við Listaháskóla Íslands og markmið þess er að kynna þau verk sem tilnefnd eru til Norrænu leiklistarverðlaunanna.

Lesa meira
 

Við erum öll Marlene Dietrich FOR - Trans Danse Europe

Við erum öll Marlene Dietrich FOR, Íslenski dansflokkurinn: Höfundar; Erna Ómarsdóttir danshöfundur og Emil Hrvatin en auk þeirra taka þátt í verkefninu íslenskir, slóvenskir, franskir og belgískir dansarar, tónlistarmenn og sviðslistafólk.

Lesa meira
 

A Prairie Home Companion - kvikmynd

Myndir fjallar um upptöku á útvarpsþætti þar sem saman koma kostulegar persónur og enn kostulegri atburðir eiga sér stað. Myndin, líkt og útvarpsþátturinn, á sér öll stað í Fitzgerald leikhúsinu í St. Paul í Minnesota.

Lesa meira
 

Sunnudagsmorgnar með Schumann

Í ár er hálf önnur öld liðin frá því að tónsmiðurinn Robert Schumann lést á sjúkrastofnun nálægt Bonn í Þýskalandi, aðeins 46 ára að aldri. Hann var einn af helstu merkisberum rómantísku stefnunnar í Þýskalandi og hafði mikil áhrif á næstu kynslóðir tónskálda.

Lesa meira
 

Flugan á Listahátíð

Flugan er samfélagslegt myndlistarverkefni Bryndísar Snæbjörnsdóttur og Mark Wilson, sem eins og önnur verk þeirra vinnur með samband mannsins við náttúruna í gegnum ákveðna þætti í sambandi manns og dýra. Í Flugunni eru heimilisdýr og dýr innan borgarmarkanna í brennidepli.

Lesa meira
 

Gæðingarnir; í þeirri röð sem þeir birtast....

Sýningarstjóri sýningarinnar, Amalia Pica frá Argentínu, segir að titillinn "í þeirri röð sem þeir birtast...." skírskoti beint til þess að samsýningar hafi alltaf heildarsvip en innhaldi þó verk sjálfstæðra einstaklinga. Listamennirnir eru sammála um að vera meðvitaðir um hugmyndina um menningarleg samskipti og sýningin gefur þeim tækifæri til að rannsaka og færa fram sína gjörólíku sýn á hvað það þýðir.

Lesa meira
 

Metamorphosis - Umbreyting

Umbreyting Bernd Ogrodnik er safn smásagna og hugleiðinga sem aðeins brúður geta tjáð á sinn einfalda og áleitna hátt. sýningunni er notast við margbrotnar strengjabrúður, stafabrúður og japanskar bunraku-brúður. Brúðurnar verða að ógleymanlegum persónum í höndum stjórnandans, sem notast aðeins við hendur, fætur, trékúlur og silkislæður.

Lesa meira
 

Stefnumót við Pinter

Þjóðleikhúsið og Listahátíð í Reykjavík standa fyrir málþingi um Harold Pinter í tengslum við frumsýningu Þjóðleikhússins á leikriti Pinters, Fagnaði. Michael Billington, sem er einn þekktasti leiklistargagnrýnandi Breta og höfundur ævisögu Pinters frá árinu 1997, flytur framsöguerindi sem hann nefnir: “Hvaðan fær Pinter innblástur?

Lesa meira
 

Grupo Corpo - brasilískur danshópur

Grupo Corpo

Grupo Corpo er brasilískur nútímadansflokkur sem hefur sýnt um allan heim og hvarvetna hlotið frábærar viðtökur. Þetta er langvinsælasti dansflokkur S-Ameríku í dag og í sýningarferðum hans um heiminn er jafnan uppselt á allar sýningar.

Lesa meira
 

Mr. Skallagrímsson - leiksýning í Borgarnesi

Mr. Skallagrimsson

Í tengslum við opnun Landnámssetursins hefur Benendikt Erlingsson samið einleik sem hann kallar Mr. Skallagrímsson og verður hann frumfluttur á opnunardegi Landnámssetursins. Einleikurinn er byggður á Egils sögu og innblásinn af sagnahefð sögualdar á Íslandi.

Lesa meira
 

Motion tríóið frá Kraká

Vel lukkaðri listahátíð lokið

Þetta framsækna og stórskemmtilega harmónikkuband var stofnað árið 1996 og hefur á undanförnum árum vakið gríðarlega athygli fyrir leik sinn. Tríóið hefur haldið tónleika víða í Evrópu, Bandaríkjunum, Kanada og Asíu og hefur á tiltölulega skömmum tíma tekist að breyta ímynd hljóðfærisins.

Lesa meira
 

Miðnæturmúsík í Iðnó - Dívan og djassmaðurinn

Miðnæturmúsík

Sólrún Bragadóttir sópransöngkona og Sigurður Flosason djass-saxófónleikari verða með dagskrá sem samanstendur nýjum útsetningum af nokkrum af þekktustu söng- og þjóðlögum okkar Íslendinga, fyrir sópranrödd og saxófón.

Lesa meira
 

Opnun Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi

Í Landnámssetri er lýst upphafi byggðar á Íslandi og einni þekktustu söguhetju Íslendingasagna, Agli Skalla-Grímssyni. Þar eru tvær sýningar, Landnámssýning og Egilssýning, en auk þess Söguloft, þar sem sögumenn koma fram og leiksýningar eru settar á svið.

Lesa meira
 

Miðbær í myndum - Reykjavík í 100 ár

Í tilefni af 25 ára afmæli Ljósmyndasafns Reykjavíkur býður safnið almenningi til sannkallaðrar ljósmyndaveislu á strætum og torgum höfuðborgarinnar.

Lesa meira
 

Herra Culbuto - lifandi leikfang

Hr. Culbuto

Herra Culbuto er franskur götulistamaður, sem hefur komið fram yfir 400 sinnum í 16 löndum. Hann er lifandi leikfang sem bíður þess að einhver komi og leiki við sig.

Lesa meira
 

Tvær myndlistarkonur í SAFNI

Í tengslum við Listahátíð mun SAFN opna sýningu á nýlegum verkum tveggja þekktra erlendra listakvenna, Karin Sanders og Ceal Floyer sem báðar eru búsettar í Berlín. Mörg verkanna á sýningunni eru í eigu Safns og verða sýnd með öðrum verkum úr safneigninni, sem telur m.a. verk eftir Ólaf Elíasson, Gabríelu Friðriksdóttur, Roni Horn, Donald Judd ofl.

Lesa meira
 

Tvær yfirlitssýningar í Listasafni Íslands

Tvær yfirlitssýningar í Listasafni Íslands á verkum íslenskra samtímalistamanna, þeirra Steingríms Eyfjörð og Birgis Andréssonar, sem hafa verið virkir í íslenskri myndlist í tæpa þrjá áratugi.

Lesa meira
 

Opnun Landnámssýningarinnar Reykjavík 871 +/- 2. Aðalstræti 16

REYKJAVÍK 871 +/-2 Landnámssýningin er ný sýning í miðbæ Reykjavíkur, sem opnuð verður 12. maí n.k. sem liður á dagskrá Listahátíðar.

Lesa meira
 


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica