Reykjavík Arts Festival
Fyrri hátíðir

2005

Setning Listahátíðar 2005

Dagskráin kynnt

Listahátíð í Reykjavík, sem í fyrsta sinn leggur sérstaka áherslu á samtímalist, verður sett í Listasafni Reykjavíkur 14. maí og flytur Steinunn Valdís Óskarsdóttir, borgarstjóri, setningarræðu.

Lesa meira
 

Anne Sofie Von Otter

Anne Sofie Von Otter, ein af dáðustu söngkonum samtímans, er jafnvíg á óperusöng, ljóðasöng og barokkmúsík. Geisladiskar hennar eru margverðlaunaðir og hún hefur margsinnis hreppt Grammyverðlaunin.

Lesa meira
 

Pacifica kvartettinn

Kvartettinn Pacifica er talinn einn allra fremsti kvartett Bandaríkjanna í dag og hefur hvarvetna vakið feiknalega athygli. Dómar sem kvartettinn hefur fengið eru sérlega glæsilegir.

Lesa meira
 

Garth Knox víóluleikari

Tónleikar með Garth Knox víóluleikara og víóluleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands verða á Listahátíð í samvinnu við Víólufélag Íslands. Á tónleikunum verða m.a. frumflutt ný verk eftir Daníel Bjarnason, Hafliða Hallgrímsson og Garth Knox.

Lesa meira
 

Yuri Bashmet og Sinfóníuhljómsveit Íslands

Það hefur verið fullyrt um hinn mikla meistara víólunnar Yuri Bashmet, sem leikur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum, að hann sé án efa einn mesti tónlistarmaður samtímans. Á efnisskránni eru verk eftir Benjamin Britten, Dmitri Shostakovich, Franz Schubert og fleiri.

Lesa meira
 

Sirkus Cirque

Sýning Cirque, sem nefnist “The Story of Auguste”, hefur allt að geyma sem prýðir skemmtilegan sirkus, bæði sjónhverfingar og loftfimleika, en er að sama skapi mikil leiksýning sem sögð er höfða til allra sex skilningavitanna.

Lesa meira
 

Trans Danse Europe

Listahátíð í samvinnu við Íslenska dansflokkinn býður upp á sýningar þriggja úrvals dansflokka frá Finnlandi, Tékklandi og Frakklandi. Sýningarnar eru hluti af Evrópuverkefninu Trans Danse Europe 2003-2006. Fyrsta sýningin er frá Frakklandi, Rialto Nomade Fabrik.

Lesa meira
 

Barði Jóhannsson og Keren Ann

Tónlistarmaðurinn Barði Jóhannsson, sem við þekkjum úr Bang Gang, og söngkonan Keren Ann sem gerir það gott í Frakklandi um þessar mundir mynda dúettinn Lady and Bird.

Lesa meira
 

Mariza ásamt hljómsveit

Portúgalska fado-söngkonan Mariza kemur með fjölmenna hljómsveit með sér.
Mariza er fædd í Mósambík en ólst upp í Lissabon þar sem foreldrar hennar ráku veitingahús sem frægt var fyrir fado-tónlist. Mariza var byrjuð að syngja fado fimm ára gömul, en sem táningur söng hún aðallega blús, djass og fönk. Áhugi á fado kviknaði svo hjá henni eftir tvítugt og síðan hefur hún helgað sig hefðinni.

Lesa meira
 

Bergmál

Stomu Yamsh’ta sem er fæddur árið 1947 í Kyoto, er einn þekktasti ásláttarleikari heims og sagður hafa breytt ímynd slagverksins. Hann mun af þessu tilefni flytja með sér til landsins hljóðfæri sem búið er til úr þriggja milljón ára gömlum steinum og vegur um eitt tonn.

Lesa meira
 

Autobahn

Glæný leikrit eftir fjóra þýska höfunda hafa verið þýdd á íslensku og verða kynnt fyrir almenningi með leiklestrum á nýja sviði Borgarleikhússins. Leikarar Leikfélags Reykjavíkur og nemendur leiklistardeildar LHÍ flytja. Höfundarnir fjórir, þau Marius von Mayenburg, Ingrid Lausund, Falk Richter og Theresia Walser, verða viðstaddir og á eftir verður boðið upp á umræður.

Lesa meira
 

Mynd á þili

„Mynd á þili“ heitir sýningin sem Þjóðminjasafn Íslands efnir til. Nafnið er sótt í kvæði Jóns Helgasonar „Áfanga“ en þar lýsir Jón fornum atburðum og stöðum er birtust honum í minningunni „eins og mynd á þili“.

Lesa meira
 

Huun Huur Tu

Við landamæri Mongólíu liggur fyrrum ráðstjórnarlýðveldið Tuva. Þaðan koma einhverjir sérstæðustu tónlistarmenn heims, Huun Huur Tu, en meðlimir hljómsveitarinnar eru meistarar í svokölluðum barkasöng.

Lesa meira
 

Beethoven í botn

Í fyrsta sinn í aldarfjórðung verða sónötur Beethovens fyrir píanó og fiðlu fluttar á Íslandi. Flytjendur eru Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Gerrit Schuil píanóleikari.

Lesa meira
 


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica