Beint í leiðarkerfi vefsins.
Setning Listahátíðar í Reykjavík 2004 verður í Listasafni Íslands. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra setur hátíðina.
Við setningu verður sýnt brot úr Íshljómi, einstakri kvikmynd Páls Steingrímssonar sem er óviðjafnanlegt sambland af vetrarríki og tónlist. Íslenski dansflokkurinn frumflytur verk eftir Katrínu Hall og undurfagur rússneskur kórsöngur mun hljóma þegar Karlakór st. Basil-dómkirkjunnar í Moskvu flytur þjóðlög og lög tónskálda rétttrúnaðarkirkjunnar.
Lesa meiraBaca er fyrsti tónlistarmaðurinn frá Perú sem hlotið hefur Grammy verðlaun og nýlega féllu henni í skaut hin eftirsóttu BBC verðlaun fyrir heimstónlist.
Lesa meiraTveir fremstu tónlistarmenn Íslands og Írlands, tónskáldin Donal Lunny og Hilmar Örn Hilmarsson munu leiða stóran hóp tónlistarmanna í Laugardalshöll laugardaginn fyrir hvítasunnu.
Lesa meiraSíðari tónleikar Brodsky kvartettsins verða með allt öðru sniði og þar kemur fram fjöldi íslenskra listamanna. Dagskráin eru byggð á Sjóns, Anna og skapsveiflurnar, og er Sjón sögumaður og Julian Nott höfundur tónlistar.
Lesa meiraGalsi, gáfur, frumleiki og einlægni einkennir spilamennsku Klezmer Nova stuðboltanna frá París.
Lesa meiraSpennandi alþjóðleg stórsýning átta kunnra myndlistarmanna, fjögurra innlendra og fjögurra erlendra. verið áberandi á vettvangi samtímalistar undanfarin ár og jafnvel áratugi.
Lesa meiraHér fléttast saman flutningur Kasa hópsins á frábærum köflum úr heimi íslenskrar kvikmyndatónlistar auk valinna dæma úr tilheyrandi kvikmyndum.
Lesa meiraÁ þrjátíu ára ferli hefur Brodsky kvartettinn komið víða við og er nú talinn einhver besti strengjakvartett heims. Með sínu nefi leikur hann klassík á borð við Beethoven og Shostakovich.
Lesa meiraHugstolinn er kammerópera, goðsagnarleg ferð í norrænum tónum. Sýningin er smíð franska leikstjórans Janick Moisan í samvinnu við tónskáld frá Íslandi, Færeyjum, Finnlandi og Alaska.
Lesa meiraNorðan frá Thule kemur grænlenski trommudansarinn Robert Pears og tekur þátt í einstöku tónlistarverkefni með tónlistarmönnum frá Belgíu, Kutuaq á Grænlandi og íslenska slagverksmanninum Pétri Grétarssyni.
Lesa meiraJónas Ingimundarson er einn virtasti og vinsælasti tónlistarmaður landins. Í tilefni sextugsafmælis hans verður efnt til glæsilegra tónleika með Jónasi í Þjóðleikhúsinu.
Lesa meiraI Solisti Veneti er ein af betri klassísku hljómsveitum í Evrópu. Hún leikur eingöngu ítalska háklassík eins og hún gerist best eftir meistara á borð við Vivaldi, Tartini, Paganini, Rossini og Puccini.
Lesa meiraNCCP stendur fyrir Nuova Compagnia di Canto Popolare, nýtur gríðarlegra vinsælda í Evrópu, Suður-Ameríku og víðar en einkum þó í sínu heimlandi, Ítalíu.
Lesa meiraNorðurlandafrumsýning í Borgarleikhúsinu á víðfrægri sýningu Söshu Waltz sem er ein af leikhússtjórum hins virta Shaubühne í Berlín.
Lesa meira”Skáldið og sekkjapípuleikarinn” er nýjasta afurð Nóbelsverðlaunahafans Seamusar Heaneys og hins virta írska tónlistarmanns Liams O’Flynn sem leikur á hið sérstæða hljóðfæri Uilleann pipes eða “olnbogapípu”.
Lesa meira“IBM – a User’s Manual” er samstarfsverkefni Jóhanns Jóhannssonar tónskálds, hinnar ört vaxandi dansstjörnu Ernu Ómarsdóttur og Eþos-strengjakvartettsins.
Lesa meiraNorðurlandafrumsýning í Borgarleikhúsinu á víðfrægri sýningu Söshu Waltz sem er ein af leikhússtjórum hins virta Shaubühne í Berlín.
Lesa meiraHljómsveitin Jagúar ásamt stórskotaliði íslensku sveiflunnar þeim Sigtryggi Baldurssyni, Sigurði Flosasyni, Óskari Guðjónssyni, Gísla Galdri, Lasse Lindgren, Kjartani Hákonarsyni og fleirum mynda fjórtán manna band og spilar úrval af tónlist hins margverðlaunaða Tómasar R. Einarssonar
Lesa meiraViðamikil einkasýning á verkum eins fremsta núlifandi málara heims; Ítalans Francesco Clemente opnar í Listasafni Reykjavíkur.
Lesa meiraSýning Sankai Juku hópsins á Hibiki undir stjórn Ushio Amagatsu, sem jafnframt er aðaldansari hópsins, hefur farið sigurför um heiminn.
Lesa meiraÞað er mikill fengur að fá hingað til lands eina allra eftirsóttustu mezzósópransöngkonu heims. Olga Borodina sem lengi var aðalstjarna Kirov-óperunnar í Rússlandi og syngur nú jafnt á Scala og Metropolitan heldur tvenna tónleika á Listahátíð í Reykjavík með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Háskólabíói.
Lesa meiraGuðný Guðmundsdóttir hefur á undanförnum þrjátíu árum verið leiðandi í tónlistarlífi landsins sem konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands auk þess sem hún hefur kennt nýrri kynslóð íslenskra fiðluleikara með afburða árangri.
Lesa meiraEinkar spennandi leiklestur á frönskum og belgískum leikritum. Í samvinnu við Compagnie La Barraca, Théâtre de l’Est Parisen, Théâtre Varia, Borgarleikhúsið og Listaháskóla Íslands.
Lesa meiraDagskrá Tónlistartorgs Listahátíðar í Kringlunni má sjá hér.
Lesa meiraFinnsk samtímaljósmyndun hefur á undanförnum áratug notið mikillar alþjóðlegrar hylli og verið fremst í flokki Norðurlandanna á þeim vettvangi.
Lesa meiraKvikmynd í fullri lengd um líf og starf hins heimsþekkta myndlistamanns Dieter Roth sem bjó og starfaði á Íslandi um árabil.
Lesa meiraAlla leið frá Tblisi í Georgíu koma einhverjir fremstu leikhúslistamenn heims og efna til “Þrettándakvölds” Shakespeares í Þjóðleikhúsileikhúsinu.
Lesa meiraFáir listamenn hafa fengið eins magnaða dóma og kanadíski píanóleikarinn Marc-André Hamelin sem verður með tvenna tónleika í Háskólabíói.
Lesa meiraDjúpir flauelsbassar og silkimjúkir tenórar eru lýsingarorð sem gjarnarn eru notuð yfir kór St. Basil dómkirkjunnar sem kemur alla leið frá Moskvu.
Lesa meiraHið víðförla Vesturport verður með mikilfenglegt áhættuatriði í miðborginni sem ber heitið "Að dýfa sér fram af 15 metra byggingu".
Margir skemmtilegir viðburðir setja svip sinn á borgarlífið laugardaginn 15.maí. Ganga niður Laugaveginn með leiðsögn arkitekts.
Lesa meiraStuttir tónleikar verða á tuttugu mínútna fresti lungann úr laugardeginum í Hljómskálanum. Fram kemur fjöldi afburða tónlistarmanna.
Lesa meiraListakonan Gabríela Friðriksdóttir er kunn fyrir hæðnislegan og einfeldningslegan ídealisma.
Lesa meiraInnsetningin og uppákoman Trúnaður eftir þá Magnús Sigurðarson og Ragnar Kjartansson, sem verður í Listasafni ASÍ.
Lesa meiraEinn stærsti listviðburður Listahátíðar 2004 er án efa sýning á Kenjunum eftir einn merkasta meistara listasögunnar, Spánverjann Francisco de Goya.
Lesa meiraAlla leið frá Tblisi í Georgíu koma einhverjir fremstu leikhúslistamenn heims og efna til “Þrettándakvölds” Shakespeares í Þjóðleikhúsinu. Leikhússtjóri Rustaveli þjóðleikhússins, Robert Sturua, sem jafnframt er leikstjóri sýningarinnar, var valinn einn af fremstu Shakespeare leikstjórum allra tíma, af breskum gagnrýnendum.
Lesa meiraVestrænt neyslusamfélag er til umfjöllunar í stórbrotinni sýningu á bandarískri samtímalist í Listasafni Íslands þar sem fjölbreytt verk vekja áhorfandann rækilega til umhugsunar á kaldhæðinn og beinskeyttan hátt um samfélagið.
Lesa meira