Reykjavík Arts Festival

Aðalgrein

Veggspjald Listahátíðar í Reykjavík 2012. Hönnður Siggi Eggertsson

DAGSKRÁ LISTAHÁTÍÐAR Í MÁLI OG MYNDUM - 7/5/2012

Í gær var sýndur í Sjónvarpinu kynningarþáttur um dagskrá Listahátíðar sem hefst af fullum krafti í lok næstu viku. Í þættinum var spjallað við aðdáendur og álitsgjafa, kíkt inn á æfingar á dans- og leikverkum og sýnd eru myndbrot af þeim erlendu stjörnum sem sækja hátíðina heim í ár. Smelltu hér til að horfa á þáttinn.

Á Rás 1 á laugardaginn flakkaði Lísa Pálsdóttir á milli myndlistarmanna sem undirbúa sig nú af kappi fyrir myndlistarverkefnið spennandi (I)ndependent People, sem leggur undir sig borgina á Listahátíð. Smelltu hér til að hlusta á þáttinn.

Dagskrárbæklingur Listahátíðar
er einnig kominn út, og verður aðgengilegur víða um borg. Flettu bæklingum á vefnum með því að smella hér eða sendu okkur heimilisfangið þitt í tölvupósti á netfangið artfest@artfest.is og við sendum þér hann um hæl!

Lesa meira
 
Listahátíð 2012

KYNNINGARÞÁTTUR Á SUNNUDAGSKVÖLD Í SJÓNVARPINU - 2/5/2012

Litríkur og fjölbreyttur Listahátíðarþáttur verður á dagskrá Sjónvarpsins á sunnudagskvöld. Kynnir þáttarins er Brynja Þorgeirsdóttir og hún leiðir áhorfendur í gegnum dagskrá Listahátíðar í vor, kíkir inn á æfingar á dans- og leikverkum og spjallar við listamenn. Sýnd eru myndbrot af þeim erlendu stjörnum sem sækja hátíðina heim í ár og rætt við aðdáendur og sérfræðinga.

Þátturinn er á dagskrá Sjónvarpsins sunnudagskvöldið 6. maí kl. 21:50.


Það er rífandi gangur í miðasölu á viðburði Listahátíðar í vor, svo það er ekki seinna vænna en að dýfa sér ofan í dagskrána á viðburðavefnum okkar og ná sér í miða á frábæra tónleika, leiksýningar, dansverk og bókmenntaviðburði.

Sjáumst á Listahátíð!

Lesa meira
 
Hrefna Haraldsdóttir announced the 2012 programme at a press conference yesterday

FULL FESTIVAL PROGRAMME ANNOUNCED - 13/4/2012

The Reykjavik Arts Festival brings joy and beauty to the city from May 18th till June 3rd; with its brilliant and diverse programme that Festival Director, Hrefna Haraldsdóttir, announced at a press-conference yesterday. The programme this year is classical yet progressive, new creations within every genre will be premiered, as well as exciting collaborations between artists, genres and audiences.

The programme will feature grand performances of classical pieces and pop music pioneers make their mark on this year's festival. Original theatre and dance performances take place all over town as well as a extensive international art project that will take over the city's art venues this spring. Hundreds of artists are involved in the festival, from Russia, Spain, France, the Baltic Countries, Switzerland, Britain, Germany, USA, and all the Nordic countries, as well as Iceland.

Check out the Festival Programme here and get your hands on some tickets!

Lesa meira
 
Hrefna Haraldsdóttir kynnti dagskrá Listahátíðar 2012 á blaðamannfundi í dag

FJÖLBREYTT OG FRAMSÆKIN DAGSKRÁ KYNNT OG MIÐASALA HAFIN Á ALLA VIÐBURÐI - 13/4/2012

Listahátíð í Reykjavík leggur undir sig borgina frá 18. maí til 3. júní og fyllir vorkvöldin löng með glæsilegri og fjölbreyttri dagskrá sem Hrefna Haraldsdóttir, stjórnandi Listahátíðar, kynnti í gær. Dagskrá hátíðarinnar í ár er klassísk og framsækin í senn og verða á hátíðinni frumflutt ný verk í öllum listgreinum og efnt til spennandi samvinnu milli listamanna, listgreina og áhorfenda.  Á hátíðinni verður ráðist í flutning á stórum klassískum tónverkum, popptónlist á verðuga fulltrúa í ár og nýstárleg sviðsverk eru á dagskrá.

Tugir viðburða eru á dagskrá, tónleikar af ýmsum toga, leikverk, húslestrar, dans og margt fleira auk stórs alþjóðlegs myndlistarverkefnis, sem mun leggja undir sig borgina í vor. Mörg hundruð listamenn koma að hátíðinni, frá Rússlandi, Spáni, Frakklandi, Sviss, Eystrasaltslöndunum, Bretlandi, Þýskalandi, Bandaríkjunum, öllum Norðurlöndunum, auk Íslands.

Sjá alla dagskrá Listahátíðar í Reykjavík 2012

Lesa meira
 
Bryan Ferry kemur á Listahátíð í vor

MIÐASALA Á BRYAN FERRY HEFST KL. 12 Í DAG! - 21/3/2012

Goðsögnin Bryan Ferry, einn farsælasti dægurtónlistarmaður samtímans, kemur hingað til lands ásamt hljómsveit og heldur tónleika í Hörpu á hvítasunnudag 27. maí.

Tónleikarnir á Listahátíð marka upphaf alþjóðlegra Nelson Mandela daga á Íslandi, Nelson Mandela Days 2012, sem haldnir eru til heiðurs Mandela og hugsjónum hans. Fyrirhugaðir eru fleiri tónleikar síðar á árinu til vitundarvakningar og stuðnings mannúðarsjónarmiðum Mandela.

Á tónleikunum í Reykjavík mun Bryan Ferry leika lög frá ýmsum tímabilum ferils síns, bæði efni af breiðskífum sínum og ferli sínum með Roxy Music. Dagskráin er að hluta til byggð á Olympia tónleikaferðinni frá síðasta ári sem fékk einróma lof gagnrýnenda. Lesa meira.

Tónleikarnir eru í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík, og eru á dagskrá hátíðarinnar sem haldin er dagana 18. maí til 3. júní.

Tónleikarnir fara fram í Eldborg, Hörpu og aðeins eru 1.500 aðgöngumiðar í boði. Miðasalan hefst kl. 12 í dag!

Smelltu hér til að kaupa miða.

Lesa meira
 
Verðlaunaveggspjald Listahátíðar í Reykjavík 2012. Hönnuður Siggi Eggertsson

SIGGI EGGERTSSON SIGRAÐI Í SAMKEPPNI UM VEGGSPJALD LISTAHÁTÍÐAR 2012  - 21/3/2012


Úrslit veggspjaldasamkeppni Listahátíðar og Hönnunarmiðstöðvar voru tilkynnt í gær en 120 fjölbreyttar tillögur bárust í keppnina. Dómnefndin var einróma í vali sínu um vinningstillöguna en verðlaunin eru 500 þúsund krónur.

Í umsögn dómnefndar segir: Kjarninn í hönnuninni er hið þekkta merki Listahátíðar eftir Ágústu Pétursdóttur Snæland. Verk Sigga Eggertssonar er litrík hringiða umhverfis merkið, eins konar auga stormsins. Veggspjaldið dregur að augað og gefur til kynna þann fjölbreytileika og líf sem Listahátíð stendur fyrir.

Siggi Eggertsson er fæddur árið 1984 á Akureyri og útskrifaðist úr grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2006. Hann er búsettur í Berlín þar sem hann starfar sjálfstætt. Siggi hefur vakið mikla athygli innanlands sem utan fyrir verk sín sem spanna afar vítt svið en bera ávallt sterk höfundareinkenni. Hann hefur tvívegis hlotið alþjóðlega viðurkenningu sem einn efnilegasti hönnuður heims, árið 2006 af Print Magazine og 2009 af Art Directors Club, auk fjölda annarra viðurkenninga.

Nánari upplýsingar um Sigga Eggertsson og verk hans er að finna hér: www.siggieggertsson.com

Heildardagskrá Listahátíðar verður kynnt í byrjun apríl, en miðasala er þegar hafin á nokkra glæsilega viðburði. Fylgstu með á www.listahatid.is og á facebook.

Lesa meira
 
Arcadi Volodos kemur fram á Listahátíð í Reykjavík 2012

VOLODOS - NÁMSKEIÐ OG TÓNLEIKAR Í EINUM PAKKA - 12/3/2012

Endurmenntun Háskóla Íslands, í samstarfi við Listahátíð, býður uppá spennandi námskeið í tengslum við tónleika rússneska píanósnillingsins Arcadi Volodos í vor. Þar mun Arndís Björk Ásgeirsdóttir, píanóleikari og dagskrárgerðarkona á Rás 1, leiða þátttakendur í gegnum grundvallarþætti rússneska píanóskólans og ferð á tónleikana er hluti af námskeiðinu. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar og Hörpu.

Lesa meira
 
Buika á Listahátíð 3. júní 2012

ÁSTRÍÐUFULL OG KRAFTMIKIL RÖDD Á LISTAHÁTÍÐ - 7/3/2012

Spænska söngkonan Buika í Hörpu, Eldborg, 3. júní 2012, kl. 20

Miðaverð: 4.900 kr.


MIÐASALA HEFST Í DAG KL. 12 - SMELLTU HÉR TIL AÐ KAUPA MIÐA

Ótamdar tilfinningar og kraftur einkenna spænsku söngdrottninguna Buiku sem leggur leið sína á Listahátíð í vor. Hás og tregafull rödd hennar er einfaldlega einstök og maður ánetjast henni strax við fyrstu hlustun. Rödd Buiku hefur verið líkt við rödd Ninu Simone, Tinu Turner og goðsögnina Chavelu Vargas frá Mexíkó, og hún hefur magnaða sviðsframkomu sem snertir alla tilfinningastrengi áhorfenda. Tónlistin er blanda af blús, jazzi, sálartónlist og spænskum tregasöngvum og Buika kemur hingað til lands með hljómsveit skipaða framúrskarandi hljóðfæraleikurum frá Bandaríkjunum og Evrópu.

Buika syngur "En mi piel" í nýjustu kvikmynd Almodóvar - smelltu hér til að skoða myndbandið.


„Í Buiku mætast á áhrifamikinn hátt allar birtingarmyndir ástríðunnar holdi klæddar, frá þeim björtustu til þeirra allra myrkustu.“

PEDRO ALMODÓVAR

„Geislandi ... tilkomumikil ... stórkostleg söngkona!“

NEW YORK TIMES

Lesa meira
 
Yann Tiersen kemur fram ásamt hljómsveit á Listahátíð 2012

YANN TIERSEN ANNOUNCED MAY 31 IN REYKJAVÍK - 21/2/2012

YANN TIERSEN
Harpa Concert Hall, Norðurljós
May 31 9pm

BOX OFFICE NOW OPEN - CLICK HERE TO BUY TICKETS

Celebrated composer and multi instrumentalist Yann Tiersen will be a guest of the Reykjavík Arts Festival this spring with a special acoustic performance of his new album Skyline. Tiersen is a renowned and startlingly unique artist whose early albums merged cutting edge classical with flourishes of folk with the bristly energy of post punk, and while these works attracted a dedicated fan base, it was his soundtrack to the beloved indie film “Amélie” which introduced Tiersen to a far wider audience. Since then Tiersen has continued to attract fans with a continuously evolving sound and memorable live performances at everything from distinguished concert halls to rock festivals.

Read more at www.artfest.is

Book your flight to Reykjavík with Iceland Express, the official airline of the Reykjavík Arts Festival.

Lesa meira
 
Dorrit Moussaieff forsetafrú afhendir Magnhildi Sigurðardóttur og Níelsi Hafstein, aðstandendum Safnasafnsins, Eyrarrósina.

SAFNASAFNIÐ HLÝTUR EYRARRÓSINA 2012 - 17/2/2012


Eyrarrósina 2012, viðurkenningu fyrir afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, hlýtur Safnasafnið á Svalbarðsströnd og veittu aðstandendur þess viðurkenningunni móttöku á laugardag við athöfn á Bessastöðum. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin.

Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingarinnar kynnti Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík Eyrarrósina og Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra ávarpaði samkomuna. Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson sungu einnig nokkur lög við góðar undirtektir gesta.

Verðlaunin sem Safnasafnið hlýtur ásamt Eyrarrós í hnappagatið er fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni í ár voru Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð og tónlistarhátíðin Við Djúpið á Ísafirði og þau hljóta 250 þúsund króna verðlaun auk flugmiða.

Við athöfnina í dag tilkynnti Hrefna Haraldsdóttir að samningur aðstandenda Eyrarrósarinnar; Listahátíðar, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands, yrði endurnýjaður til næstu þriggja ára, enda mikil ánægja aðstandenda með verkefnið frá upphafi.

Lesa meira...


Lesa meira
 
Eyrarrósin tilnefnd verkefni 2012

SAFNASAFNIÐ, SJÓRÆNINGJAHÚSIÐ OG VIÐ DJÚPIÐ TILNEFND TIL EYRARRÓSARINNAR 2012 - 7/2/2012


Eyrarrósin, sérstök viðurkenning fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni, verður veitt í áttunda sinn á Bessastöðum laugardaginn 18. febrúar næstkomandi. Handhafi Eyrarrósarinnar hlýtur 1,5 milljón krónur, verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur myndhöggvara og flugferðir frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir verðlaunin.

Þrjú verkefni hafa verið valin úr metfjölda umsókna og hljóta tilnefningu til Eyrarrósarinnar í ár:


Safnasafnið – Alþýðulistasafn Íslands stendur við þjóðveg eitt rétt utan við Akureyri, í gamla Þinghúsinu á Svalbarðsströnd. Safnið opnaði árið 1995 og vinnur metnaðarfullt brautryðjendastarf í söfnun og varðveislu á íslenskri alþýðulist. Safnið tengir saman alþýðulist og nútímamyndlist af alúð og kímni og vinnur ávallt í nánu samstarfi við samfélagið í kring.


Sjóræningjahúsið á Vatneyri við Patreksfjörð hefur dregið að sér fjölda innlendra og erlendra ferðamanna frá opnun vorið 2008. Í Sjóræningjahúsinu er öflugt tónleikahald, sýning tileinkuð sjóránum við Íslandsstrendur, veitingastaður og sýningaraðstaða fyrir listamenn auk fjölbreyttra menningarviðburða árið um kring.


Við Djúpið á Ísafirði hefur skipað sér fastan sess í tónlistarlífi landsins og verður haldin í tíunda sinn á sumarsólstöðum. Hátíðin hefur eflt tónlistarlíf og nýsköpun á Vestfjörðum með metnaðarfullri tónleikadagskrá og einnig er námskeiðahald mikilvægur þáttur í hátíðinni.


Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands

Lesa meira um Eyrarrósina

Lesa meira
 
Arcadi Volodos Reykjavík Arts Festival 2012

BOOK YOUR TICKET TO REYKJAVÍK TODAY - 27/1/2012

Come to Reykjavík this spring and experience the unique atmosphere of the Reykjavík Arts Festival, which brings joy and inspiration to Iceland‘s residents and guests each year in May.

One of this year‘s festival highlights is a recital by Russian pianist Arcadi Volodos, one of today's most outstanding pianists. The recital takes place in the main hall of Harpa, Icelands new concert Hall, highly praised for its wonderful acoustics and breathtaking design. Box-office for the Volodos recital is open - click here for tickets.

Full festival programme will be announced in the beginning of April. The festival takes pride in the wide variety of events and venues that it offers every year and promises exiting theatre, inspiring music, lovely literature and daring dance at the 2012 festival.

Click here to book your flight to Reykjavík with Iceland Express, the official airline of the Reykjavík Arts Festival.

Lesa meira
 
Gjafakort Listahátíðar í Reykjavík

GJAFAKORT LISTAHÁTÍÐAR Í JÓLAPAKKANN - 9/12/2011

Gefðu gjöf sem lifnar við!

Listahátíð í Reykjavík býður falleg gjafakort til sölu sem gilda sem greiðsla á viðburði hátíðarinnar. Hátíðin verður haldin dagana 18. maí til 3. júní 2012 og þar verður að vanda margt um glæsilega viðburði, innlenda og erlenda. Má þar nefna tónleika rússneska píanósnillingsins Arcadi Volodos þann 20. maí í Hörpu, en miðasala er hafin á þá tónleika. Hlusta á Volodos.

Hægt er að velja um gjafakort að upphæð 5.000, 10.000 og 15.000 krónur. Nánari upplýsingar um gjafakortin hér. 

Smelltu hér til að kaupa gjafakort Listahátíðar

Lesa meira
 
Volodos í Hörpu á Listahátíð

ARCADI VOLODOS PERFORMS AT THE REYKJAVÍK ARTS FESTIVAL 2012 - 6/12/2011

TICKETS ON SALE NOW!


The Russian pianist, Arcadi Volodos, gives a recital on May 20 at the Reykjavík Arts Festival in Reykjavík´s new outstanding concert hall, Harpa.

Box office is now open - BUY TICKETS HERE

Arcadi Volodos, celebrated as a "keyboard genius", is without a doubt one of today's most outstanding and internationally interesting pianists. Whether in concert or on CD, his playing is always marked by a combination of breathtaking technical virtuosity and profound and expressive musicality.


Read about Volodos, the programme, quotes and more here.

Lesa meira
 
Volodos í Hörpu á Listahátíð

PÍANÓSNILLINGURINN ARCADI VOLODOS Á LISTAHÁTÍÐ Í VOR - 6/12/2011

MIÐASALA HAFIN

Miðasala er hafin á einleikstónleika rússneska píanóleikarans Arcadi Volodos sem haldnir verða í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 20. maí 2012.

KAUPA MIÐA

Einnig er hægt að kaupa miða í síma 528 5050. Miðaverð er kr. 4.500 og 5.900.

Nánar um Volodos, efnisskrána, umsagnir og fleira hér.


Gjafakort Listahátíðar gildir sem greiðsla á alla viðburði Listahátíðar í vor, þar með talið tónleika Arcadi Volodos.

Lesa meira
 
Reykjavík Arts Festival 2011 highlights

TAKK FYRIR GÓÐAR STUNDIR Á LISTAHÁTÍÐ - 9/6/2011

 

Listahátíð í Reykjavík 2011 lauk á sunnudagskvöld og stóð fjölbreytt dagskrá hátíðarinnar í sautján daga með tugum viðburða innan húss og utan og þátttöku yfir fimm hundruð listamanna, meðal annars frá Kína, Slóvakíu, Spáni, Póllandi, Nígeríu, Frakklandi, Bandaríkjunum og Þýskalandi.

Viðtökur voru mjög góðar og aðsókn frábær. Fullt hús var á flesta viðburði og á suma þeirra seldist fljótt upp, meðal annars á tónleika hátíðarinnar í Hörpu, þar sem Listahátíð hafði frumkvæði að alls kyns framsetningu tónleika í öllum sölum hins nýja tónlistarhúss.

Fjöldi einstaklega góðra dóma gagnrýnenda hefur birst í blöðum og ljósvakamiðlum um tónleika, sviðsverk og myndlistarsýningar hátíðarinnar. Af mörgum hápunktum má nefna tilkomumikið útiatriði sem þúsundir fylgdust með á Austurvelli, tónleika þýska tenórsins Jonasar Kaufmann og Sinfóníuhljómsveitar Íslands og frumflutning íslenskra dans-, sviðs- og tónverka.

Myndlistarsýningar hátíðarinnar verða opnar fram á sumar. Í Listasafni Íslands stendur yfir sýning á verkum Louise Bourgeois, í Listasafni Reykjavíkur er sýning á veggspjöldum og teikningum Tomi Ungerer og einnig sýningin Sjónarmið - á mótum myndlistar og heimspeki. Danski myndlistarmaðurinn Claus Carstensen sýnir í Gallerí Kling og Bang og í Listasafni ASÍ er sýning Hörpu Árnadóttur

Nánari upplýsingar eru á vef Listahátíðar þar sem einnig er að finna ljósmyndir og myndbönd frá liðinni hátíð. Á næstu vikum verða einnig leiknar í útvarpinu upptökur af fjölmörgum viðburðum Listahátíðar, bæði á Rás 1 og Rás 2.


Listahátíð þakkar frábærar móttökur!

Lesa meira
 
Reykjavík Arts Festival 2011 highlights

THE REYKJAVÍK ARTS FESTIVAL 2011 CLOSES IN STYLE - 7/6/2011

The Reykjavík Arts Festival 2011 closed past Sunday night after seventeen eventful and action-packed days, with the participation of over 500 artists and tens of thousands of delighted Festival guests. Attendance to this year's Festival was exceptional, with many of the events selling out well in advance.

The opening week of the Reykjavík Arts Festival was filled with awe, excitement and standing ovations.  In downtown Reykjavík, thousands watched The Birth of Venus by Spanish group La Fura dels Baus with the participation of more than seventy brave volunteers, who danced in the high sky above the ground.

In Harpa, Iceland's new concert hall, no one was untouched by the opera concert performed by the great German tenor Jonas Kaufmann and the Iceland Symphony Orchestra. More memorable events starred, amongst others Tony Allen, Barbara Bonney, Ojos de Brujo, Krakow Sinfonietta, Les Slovaks Dance Collective and the Beijing Dance Theatre.

The vibrant Icelandic music scene shone during the Festival, with memorable concert by Ólöf Arnalds and Skúli Sverrisson, Högni Egilsson, Tómas R. Einarsson, Haukur Tómasson, Ben Frost, Daníel Bjarnason and many more. Festival guests sound-walked by the sea, flocked to free lunch-time concerts at the University and visited Icelandic writers in their homes.  

The 2011 Reykjavík Arts Festival was much about theatre and dance, and saw premieres of numerous Icelandic performing-arts pieces, in addition to welcoming esteemed dance collectives from Europe and China. Visual arts exhibitions of works by Louise Bourgeois, Tomi Ungerer, Claus Carstensen and Icelandic contemporary artists will be open through the summer.

The Festival's events were extremely well received by audiences and critics alike, as demonstrated by the host of glowing reviews in the local and international press. The 2011 Festival also boasts a great increase in the number of international guests and journalists, especially visiting Reykjavík during the Festival weeks to experience the unique ambience and vibe of the city.

The Festival team hopes that you have enjoyed the past three weeks with us. The dates for next year's festival are May 18 to June 3 2012.

See you in Reykjavík!

Lesa meira
 
Lokahelgi Listahátíðar

LOKAHELGI LISTAHÁTÍÐAR:  FRUMFLUTNINGUR, KVIKMYNDATÓNLIST, KARLAKLÚBBUR, HÚSLESTRAR OG LJÓÐASTJARNA - 3/6/2011

Það gengur á með glæsilegum viðburðum á lokadögum Listahátíðar: Í Borgarleikhúsinu í kvöld er Klúbburinn frumsýndur, karlkyns sviðsverk um hóp listamanna sem ala með sér þann draum að afhjúpa æðsta leyndarmál listarinnar.

Á morgun, laugardag klukkan 17 í Hallgrímskirkju frumflytja Kammersveit Reykjavíkur, Schola cantorum og Mótettukór Hallgrímskirkju Fléttu eftir Hauk Tómasson. Flétta fjallar um ægifegurð náttúrunnar, tengsl okkar við hana og ábyrgð á henni, og er textinn samsettur úr ljóðum og ljóðabrotum nokkurra íslenskra skálda á ýmsum aldri, frá Snorra Hjartarsyni til Sjón. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.

Laugardagskvöld kl. 20 í Hörpu, Silfurbergi, flytja Krakársinfóníettan, Ben Frost og Daníel Bjarnason verkið "We don´t need other worlds, we need mirrors" - Music for Solaris, eftir þá Daníel og Ben. Kvikmyndaverk eftir Brian Eno og Nick Robertson er sýnt á tjaldi við tónlistina. Einnig mun Sinfóníettan flytja verk eftir pólsku tónskáldin Gorecki og Penderecki.

Sunnudagurinn 5. júní er lokadagur Listahátíðar og þá munu þjóðþekktir rithöfundar bjóða upp á heimilislega húslestra í stofum sínum. Uppselt er á húslestrana, en þeir verða teknir upp og fluttir á Rás 1. Rithöfundarnir sem opna dyr heimila sinna í ár eru Auður Ava Ólafsdóttir, Bergsveinn Birgisson, Birgir Sigurðsson, Kristín Steinsdóttir og Pétur Gunnarsson.

Margir bíða með eftirvæntingu eftir lokatónleikum Listahátíðar í ár, einsöngstónleikum bandarísku sópransöngkonunnar Barböru Bonney í Hörpu, Eldborg, sunnudaginn 5. júní kl. 20. Hún hefur unnið hug og hjörtu fólks um allan heim með kristaltærri rödd sinni og einstakri túlkun og mun á tónleikunum flytja sönglög og ljóðaperlur Schumann, Grieg og Strauss. 

 

Lesa meira
 
stafir-4-copy

Gefðu stórtónleika í jólagjöf - 29/11/2010

Hvernig væri að gleðja vini og vandamenn og gefa þeim ekta Listahátíðarupplifun?

Á hátíðinni í vor verður margt um glæsilega viðburði, innlenda og erlenda, sem kynntir verða þegar miðasala hefst eftir áramót. Má þar nefna tónleika þýska stórtenórsins Jonasar Kaufmann með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hvernig væri að gleðja vini og vandamenn með gjafakorti Listahátíðar og tryggja þannig einstaka upplifun sem hlakka má til allt fram á vor.

Lesa meira
 
Herra Pottur og ungfrú Lok

Komdu á Listahátíð um helgina - 28/5/2010


Í KVÖLD, FÖSTUDAG
: Bræður, Þjóðleikhúsið kl. 20

LAUGARDAGUR
Hr. Pottur og ungfrú Lok,  Þjóðleikhúsið kl. 13 og 15
Húslestrar kl. 14, 15, 16 og 17

SUNNUDAGUR
Svanasöngur Schuberts, Fríkirkjan kl. 11
Hr. Pottur og ungfrú Lok, Þjóðleikhúsið kl. 13 og 15
Leiðsögn um útiljósmyndasýninguna Raunveruleikatékk frá Nasa kl. 14
Húslestrar kl. 14, 15, 16 og 17
Orquesta Chekara Flamenca, Ísl. óperan kl. 20
Lesa meira
 
Á mörkunum?

Lög Bjarkar og fleiri tónskálda í nýjum búningi annað kvöld - 25/5/2010

Ásgerður Júníusdóttir og Jónas Sen flytja lög sem allir þekkja eftir Björk og fleiri í nýjum útsetningum í Óperunni annað kvöld, miðvikudagskvöld 26. maí kl. 20.

Á tónleikunum mun Jónas leika á orgel, píanó, selestu, sembal og rafmagnshljómborð. Hann lék á þessi hljóðfæri og fleiri á yfir 70 tónleikum í heimsreisu Bjarkar á árunum 2007-2008. Öll lögin eftir Björk sem þau flytja á tónleikunum, heyrast þar í fyrsta sinn í þessum nýju útsetningum Jónasar. Björk hlaut í fyrri viku hin virtu Polar - tónlistarverðlaun og meðal annars þau ummæli að tónsmíðar hennar og textar hafi markað óafmáanleg spor í dægurtónlist og menningu samtímans.

Lesa meira
 
Kimmo á NASA föstudagskvöldið 21.maí

Sjáumst á Listahátíð um helgina! - 20/5/2010

Í KVÖLD
Kimmo Pohjonen - Nasa kl. 21. 
Miðaverð kr. 2.900


LAUGARDAGUR

Vinnustofutónleikar um alla borg frá kl. 14-18. Miðaverð kr. 1.500


SUNNUDAGUR - HVÍTASUNNUDAGUR

Vinnustofutónleikar um alla borg frá kl. 12-18. Miðaverð kr. 1.500

Lumen -  Listasafni Íslands kl. 21. Miðaverð kr. 2.500


MÁNUDAGUR - ANNAR Í HVÍTASUNNU

Megas - Aðför að lögum kl. 21. Miðaverð kr. 5.500

Lesa meira
 
Vaasa City Orchestra

Missið ekki af tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Vaasa borgar í kvöld - 19/5/2010

Það er ekki á hverjum degi sem sinfóníuhljómsveit kemur í heimsókn til Íslands og því eru mikil tíðindi í tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Vaasaborgar í Finnlandi á Listahátíð í Reykjavík. Á efnisskránni er allt frá Síbelíusi til franskra söngljóða og einnig verður Flautukonsert nr. 2 eftir Atla Heimi Sveinsson frumfluttur á Íslandi. Hvorki meira né minna en þrír einleikarar og einn söngvari koma fram á tónleikunum: Bryndís Halla Gylfadóttir, selló; Kolbeinn Bjarnason, flauta; Tatu Kantoma, harmónikka; og Jorma Uotinen "chanson"-söngvari. Stjórnandi er Guðni Franzson.

Lesa meira
 
Brúðuleiksýningin Garðabrúða við útitaflið, Lækjargötu

Frábær stemmning opnunarhelgina - margt framundan - 17/5/2010

Sannkölluð hátíðarstemmning hefur ríkt fyrstu viku Listahátíðar. Áhorfendur hafa flykkst á tónleika, leikhús og opnanir ljósmyndasýninga og notið vorblíðunnar í miðbænum. Framundan eru margir spennandi viðburðir, kynntu þér dagkrána!

Lesa meira
 
Gjörningur Helenu Jónsdóttur á setningu Listahátíðar 2010

Listahátíð um helgina - 14/5/2010

Í KVÖLD

Jazzveisla í Óperunni kl. 20
Rómeó og Júlía í Borgarleikhúsinu kl. 20


Á MORGUN LAUGARDAG
Raunveruleikatékk á Austurvelli kl. 13
Brúðuleikhús v. útitaflið Lækjargötu kl. 13, 14.30 og 16
Kammerkórinn Carmina í Kristskirkju kl. 16
Rómeó og Júlía kl. 20

Á SUNNUDAGINN
Malarastúlkan fagra í Fríkirkjunni kl. 11
Kammerkórinn Carmina í Kristskirkju kl. 16
Bedroom Community í Þjóðleikhúsinu kl. 20

Opnanir á ljósmyndasýningum alla helgina.

Lesa meira
 
Fridgeir Helgason - Afi

FJÖLBREYTT OG FRAMSÆKIN LISTAHÁTÍÐ HEFST Í DAG - 11/5/2010

Listahátíð í Reykjavík hefst með krafti í dag með setningu í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og opnunartónleikum malísku poppstjarnanna Amadou og Mariam í Laugardalshöll.  Erlendir listamenn streyma til landsins þessa dagana til að koma fram á þéttskipaðri dagskrá opnunarhelgarinnar.  Fjörlegir afrískir rytmar, klassískar stórstjörnur, leikhús, jazz, ljósmyndir og tónleikar í kirkjum er meðal þess sem í boði er.

Listahátíð var haldin fyrst sumarið 1970 og fagnar 40 ára afmæli sínu í ár. Frá upphafi hefur hátíðin verið í fararbroddi í íslensku menningarlífi, fært íslensku þjóðinni listamenn á heimsmælikvarða og veitt brautargengi nýjum straumum og hugmyndum á öllum sviðum lista í samstarfi við helstu menningarstofnanir landsins. Áhorfendur hafa flykkst á viðburði og eflaust eiga margir sína uppáhalds minningu frá Listahátíð. Miðaverði á hátíðina er haldið í lágmarki.

Sjáumst á Listahátíð!



Lesa meira
 
Davíð Örn Halldórsson og Sigríður Thorlacius

Listahátíð í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld - 29/4/2010

Í Sjónvarpinu á sunnudagskvöld er kynningarþáttur um Listahátíð í Reykjavík. Þar kynnumst við nánar erlendum listamönnum sem koma á hátíðina í vor, kíkjum á æfingar vítt og breitt um borgina og fáum forsmekk af fjölbreytilegum atriðum.

Ekki missa af kynningarþætti Listahátíðar á dagskrá Sjónvarpsins sunnudagskvöldið 2. maí klukkan 19.35.
Lesa meira
 
Amadou og Mariam á tónleikum

Amadou & Mariam með plötu vikunnar á Rás 2 Welcome to Mali - 20/4/2010

Platan inniheldur afrískt/vestrænt popp af bestu gerð og hefur slegið í gegn um heim allan. Á tónleikum Amadou & Mariam og hljómsveitar á Listahátíð 12. maí munu hljóma lög af þessari eldhressu plötu í bland við annað efni úr smiðju þeirra hjóna.

Velkomin til Malí á Listahátíð í vor!

Lesa meira
 
Amadou&Mariam

PROGRAMME 2010 ANNOUNCED - 9/4/2010

Now you can browse through the Event Calendar, book tickets and download the Festival Brochure.



Lesa meira
 
Amadou&Mariam

DAGSKRÁIN Í VOR KOMIN Á VEFINN - 8/3/2010

Í gær var heildardagskrá Listahátíðar kynnt og viðburðavefurinn opnaður.

Í vor verða yfir 60 viðburðir á dagskrá hátíðarinnar þar sem allar listgreinar koma við sögu. Íslenskir listamenn sýna á sér nýjar og óvæntar hliðar, í mörgum tilvikum í samstarfi við erlenda listamenn. Auk íslenskra listamanna í fremstu röð koma á hátíðina erlendar stórstjörnur og listamenn á hraðri uppleið líkt og verið hefur aðalsmerki hátíðarinnar frá upphafi.

Lesa meira
 
Leif Ove Andsnes

Leif Ove Andsnes, Christian & Tanja Tetzlaff at the Reykjavík Arts Festival - 5/3/2010

Schumann: Fantasiestücke op 88 for piano, cello and violin, Klaviertrio nr. 3 g-Moll op110, Janáček: Pohadka for cello and piano,
Dvořák: Sonatina in G Op.100.

Lesa meira
 
Leif Ove Andsnes

LEIF OVE ANDSNES, Christian Tetzlaff Tanja Tetzlaff. FORSALA HAFIN! - 26/2/2010

Efnisskrá: Fantasiestücke ópus 88 og Píanótríó nr. 3 í g moll ópus 110 eftir Schumann, Ævintýramyndir fyrir selló og píanó e. Janáček, og Sónatína Dvořáks í G dúr ópus 100 fyrir fiðlu og píanó.

Lesa meira
 
Víkingur Heiðar

REYKJAVÍK ARTS FESTIVAL            MAY 12 - JUNE 5 - 9/2/2010

The Reykjavík Arts Festival is the harbinger of spring in Iceland´s vibrant capital. We look forward to introducing the Festival's Program
to you in March.

Lesa meira
 
Víkingur Heiðar

Góðir gestir - 26/10/2009

Allt frá fyrstu hátíðinni árið 1970 hefur almenningur á Íslandi sýnt Listahátíð mikinn áhuga og flykkst á viðburði innlendra og erlendra listamanna. Við erum þakklát fyrir þennan mikla áhuga og framlag gesta okkar frá upphafi.

 
Vikingur Heiðar frá tónleikum

ÞÖKKUM FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR - 4/6/2009

Listahátíð í Reykjavík 2009, sem hófst föstudaginn 15. maí, lauk á hvítasunnudag. Hátíðin var afar viðburðarík og aðsóknin með eindæmum góð en uppselt var á nær allt sem í boði var. Einnig var mikil aðsókn á ókeypis viðburði. Sjá nánar á www.listahatid.is

 
Deborah Voigt

AÐEINS FJÓRIR DAGAR EFTIR - 26/5/2009

Nú eru aðeins fjórir dagar eftir af Listahátíð í Reykjavík sem staðið hefur frá 15. maí. Hver dagur hefur verið þéttskipaður áhugaverðum viðburðum og svo verður áfram allt til loka hátíðarinnar. Framundan eru Sinfóníutónleikar, djass, húslestrar heima hjá rithöfundum, stofutónleikar úti á landi, Tiger Lillies, Möguleikar, hjólhýsakonur í Hljómskálagarði og síðast en ekki síst lokatónleikar Listahátíðar með Deboruh Voigt á hvítasunnudag. Sjá nánar á www.listahatid.is

 
STOFUTÓNLEIKAR

STOFUTÓNLEIKAR LISTAHÁTÍÐAR ALLA HELGINA - 20/5/2009

25 stofutónleikar verða haldnir á jafn mörgum heimilum víðsvegar í Reykjavík, frá föstudegi til sunnudags.
Sjá alla Stofutónleika Listahátíðar

 
Kammersveit Reykjavíkur

KONUR ÚR AUSTURVEGI - 19/5/2009

Einkar spennandi efnisskrá verður á afmælistónleikum Kammersveitar Reykjavíkur sem fram fara í Langholtskirkju að kvöldi uppstigningardags. Flutt verða verk eftir fjögur tónskáld úr austurvegi og fá tónleikagestir þar að kynnast afar áhugaverðum hljóðheimi. Í ár fagnar Kammersveitin 35 ára afmæli sínu.

Sjá nánar á www.listahatid.is

 
Forboðnir ávextir 1

REYKJAVÍK ARTS FESTIVAL OPENS TODAY - 15/5/2009

A two-week programme of exciting events will take place on the city's streets, in theatres, concert halls, opera houses, art museums and galleries, lighthouses and private homes.
See further info at www.artfest.is

 
Forboðnir ávextir 1

GÖTULISTAMENN og HJÓLHÝSAKONUR á Austurvelli - 12/5/2009

Karnivalstemmning mun ríkja á Austurvelli á morgun kl. 14 og 16 en þá leika ástralskir götulistamenn listir sínar um leið og fimm norskar Hjólhýsakonur verða til sýnis. 
Sjá nánar á www.listahatid.is

 
Forboðnir ávextir 3

SJÓNVARPSÞÁTTUR LISTAHÁTÍÐAR Á SUNNUDAG - 8/5/2009

Kynningarþáttur um Listahátíð í Reykjavík verður á dagskrá Sjónvarpsins kl. 20.55 á sunnudagskvöld. Í þættinum verður farið yfir alla þá sjötíu viðburði sem verða á dagskrá hátíðarinnar frá 15. - 31. maí. Kynnir er Þóra Arnórsdóttir og um dagskrárgerð sér Jón Egill Bergþórsson. Sjá nánar á www.listahatid.is og á www.ruv.is

Lesa meira
 
Vikingur Heiðar

Víkingur Heiðar tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs - 4/5/2009

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari hefur verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs 2009. Tilkynnt var um tilnefninguna í gær, þriðjudag, 5. maí. Víkingur Heiðar þykir hafa sýnt mikla listræna og faglega færni á undanförnum árum. Fyrstu einleikstónleikar hans í Háskólabíói verða á Listahátíð í Reykjavík 17. maí. Sjá nánar www.listahatid.is

 
Forsida

BÆKLINGUR LISTAHÁTÍÐAR Í HÚS Í DAG - 28/4/2009

Dagskrárbæklingi Listahátíðar í Reykjavík 2009 er dreift í hús á höfuðborgarsvæðinu og víðar í dag. Bæklingurinn inniheldur ítarlegt yfirlit yfir alla viðburði hátíðarinnar sem eru um sjötíu talsins með þátttöku fimm hundruð innlendra og erlendra listamanna.
Sjá nánar á www.listahatid.is

 
Lhasa frettabref

BÆKLINGUR LISTAHÁTÍÐAR Í HÚS Í DAG - 3/4/2009

 

The Reykjavík Arts Festival 2009 will have a wide scope, encompassing numerous genres and countries, bringing together more than 70 events with around 500 local and international artists.

Tickets are available for all events at www.artfest.is

Lesa meira
 
Lhasa frettabref

HEILDARDAGSKRÁIN KYNNT Í DAG - 31/3/2009

Listahátíð í Reykjavík 2009 er umfangsmikil hátíð sem nær yfir mörg lönd og listgreinar. Meira en 70 viðburðir koma við sögu með þátttöku um 500 innlendra og erlendra listamanna. Meðal spennandi viðburða eru fyrstu tónleikar Lhasa de Sela og hljómsveitar um langt skeið. Sjá alla dagskrá á www.listahatid.is

TRYGGÐU ÞÉR MIÐA!

 
Diddu_johannofl

MIÐASALA HAFIN á viðburði Listahátíðar - 24/3/2009


Miðasala er hafin á alla viðburði, á www.listahatid.is

Takmarkað miðaframboð.

Lesa meira
 
TigerLillies1

TIGER LILLIES forsala aðeins í dag! - 18/3/2009

Breska tríóið Tiger Lillies, sem kemur fram á Listahátíð í Reykjavík 29. maí n.k., hefur aldrei brugðist því hlutverki sínu að koma áheyrendum og áhorfendum á óvart með sínum einstöku og allt að því afbrigðilegu tónlistartilþrifum. Húmorinn er alltaf tvíræður og íronían beitt. Forsala miða er hafin á www.listahatid.is og stendur aðeins yfir í dag, miðvikudaginn 18. mars!

> Kaupa miða
 
DeborahV-frettabref

DEBORAH VOIGT forsala hafin! - 3/3/2009

Ein fremsta sópransöngkona heims, Deborah Voigt heldur einsöngstónleika á  Listahátíð í Reykjavík 31. maí n.k.  Á efnisskrá hennar eru m.a. verk eftir Amy Beach, Giuseppe Verdi, Richard Strauss og Leonard Bernstein. Forsala á miðum er hafin á www.listahatid.is

Lesa meira
 

Deborah Voigt á Listahátíð - 27/2/2009

 

Ein fremsta sópransöngkona heims, Deborah Voigt heldur einsöngstónleika á  Listahátíð í Reykjavík 31. maí nk.  Á efnisskrá hennar eru m.a. verk eftir Amy Beach, Giuseppe Verdi, Richard Strauss og Leonard Bernstein. Forsala á miðum er hafin á www.listahatid.is.

Lesa meira
 

Test - 27/2/2009

Test Lesa meira
 



Leita á vefnum



Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica