Reykjavík Arts Festival
Eyrarrósin
Eyrarrósin

Eyrarrósin

Eyrarrósin 2005

Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands.

Markmið með Eyrarrósinni er að stuðla að fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.  

Upphaf Eyrarrósarinnar má rekja til þess að vorið 2004 gerðu Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni. Í febrúar 2009 var undirritaður samningur um áframhaldandi samstarf um Eyrarrósina til næstu þriggja ára.

Eyrarrósin er veitt árlega fyrir eitt afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, starfssvæði Byggðastofnunar. Þrjú verkefni eru valin úr hópi umsækjenda og þau kynnt sérstaklega, en eitt þeirra hlýtur Eyrarrósina; fjárstyrk að upphæð kr. 1.5 milljón og verðlaunagrip eftir Steinunni Þórarinsdóttur til eignar.

Dorrit Moussaieff forsetafrú er verndari Eyrarrósarinnar og var viðurkenningin afhent í fyrsta sinn í ársbyrjun 2005 á Bessastöðum.

Auglýst er eftir umsóknum um Eyrarrósina í dagblöðum og geta umsækjendur verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð.

Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa.

Verðlaunahafar Eyrarrósinnar:
2005      Þjóðlagahátíðin á Siglufirði
2006      LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi
2007      Stranda­galdur á Hólmavík
2008      Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður
2009      Landnámssetur Íslands
2010      Bræðslan á Borgarfirði eystra
2011      Sumartónleikar í Skálholtskirkju

Auglýsing um Eyrarrósina 2012, sjá hér.


Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica