Eyrarrósin 2011
Sumartónleikar í Skálholtskirkju hlutu Eyrarrósina
Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar afhenti verðlaunin. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar flutti dúettinn Hundur í óskilum nokkur lög við góðar undirtektir gesta. Katrín Jakobsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík fluttu ávörp. Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1,5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Önnur tilnefnd verkefni voru Þórbergssetur á Hala í Suðursveit og vídeólistahátíðin 700IS Hreindýraland á Egilsstöðum sem fengu 250.000 krónur hvert um sig.
Sumartónleikar í Skálholtskirkju hafa í þrjátíu og fimm ár verið haldnir í nokkrar vikur á hverju sumri í Skálholtsdómkirkju í Biskupstungum. Þar er jafnframt staðið að öflugri útgáfu og rannsóknum á tónlistararfinum. Hátíðin er sú elsta og jafnframt stærsta sinnar tegundar á landinu. Fjölbreytt efnisval og gæði Sumartónleikanna laða að stóran hóp tónlistarunnenda auk ferðamanna og annarra gesta enda eru þeir orðnir fastur liður í lífi fjölda fólks. Listrænn metnaður hátíðarinnar hefur eflt nýsköpun í tónlist, stuðlað að vakningu á flutningi barokktónlistar á Íslandi og dýpkað þekkingu á íslenska söngarfinum. Frá upphafi hefur það verið metnaður Sumartónleika að fjárhagur eigi ekki að koma í veg fyrir að áhugasamir sæki tónleika og fyrirlestra hátíðarinnar, og því er ekki seldur aðgangur en frjálsum framlögum veitt viðtaka. Sumartónleikar í Skálholtskirkju eru mikilvægur menningarviðburður sem jafnframt veitir almenningi greiðan aðgang að einum sögufrægasta stað landsins.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmiðið með Eyrarrósinni er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Auglýst er eftir umsóknum í fjölmiðlum og eru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefnir og velur verðlaunahafa.
Nánar um hinar tilnefningarnar tvær:
700IS Hreindýraland
700IS Hreindýraland er alþjóðleg kvikmynda- og vídeólistahátíð sem haldin er á Egilsstöðum. Hátíðin var fyrst haldin árið 2006 og stendur yfir í vikutíma í mars ár hvert. Áhersla er lögð á að sýna tilraunakennda kvikmyndalist og á hátíðin í góðu samstarfi við skóla á Fljótsdalshéraði sem og innlendar og erlendar menningarstofnanir. Virk þátttaka Héraðsbúa sem og öflugt Evrópusamstarf gefur hátíðinni mikið gildi og skipuleggjendur hafa unnið frumkvöðlastarf í kynningu myndbanda- og vídeólistar. 700IS Hreindýraland er áhugaverður bræðingur listgreina sem auðgar menningar- og mannlíf á Austurlandi sem og alla ferðaþjónustu á svæðinu, með því að laða að erlenda og innlenda listamenn og gesti utan hefðbundins ferðamannatíma. www.700.is
ÞórbergsseturMeginhlutverk Þórbergsseturs á Hala í Suðursveit er að kynna líf og verk Þórbergs Þórðarsonar rithöfundar, íslenskan bókmenntaarf og um leið sögu þjóðarinnar. Jafnframt hefur Þórbergssetur frá stofnun, árið 2006, verið öflugt í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu í Skaftafellssýslum, varðveitt og viðhaldið staðbundinni þekkingu og þjóðlegum menningarverðmætum. Starfið í Þórbergssetri er byggt á faglegum grunni og frá upphafi hefur verið lögð rík áhersla á samstarf við mennta- og menningarstofnanir í héraði og víðar. Sérstaða Þórbergsseturs felst ekki síst í þekkingu heimamanna á náttúru og umhverfi, auk sagnahefðar sem byggir á einstakri færni og framsetningu á íslenskri tungu í verkum eins merkasta rithöfundar þjóðarinnar. www.thorbergur.is
