Reykjavík Arts Festival
Eyrarrósin
Eyrarrósin 2010

Eyrarrósin 2010

Bræðslan hlaut Eyrarrósina 2010

Eyrarrósin - Tilnefningar 2010


Áskell Heiðar og Magni Ásgeirssynir
, forsvarsmenn Bræðslunnar á Borgarfirði eystra tóku við viðurkenningunni úr hendi Dorrit Moussaieff, verndara  Eyrarrósarinnar. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar fluttu Sigríður Thorlacius og Högni Egilsson tónlist við góðar viðtökur gesta. Katrín Jakobsdóttir mennta-málaráðherra og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík fluttu ávörp.

Tónlistarhátíðin Bræðslan á Borgarfirði eystra er haldin árlega í húsi gamallar síldarbræðslu Kaupfélags Héraðsbúa, sem breytt hefur verið í tónleikahús. Hátíðin hefur vaxið jafnt og þétt allt frá upphafi hennar árið 2004 og á síðasta ári voru gestir Bræðslunnar um tvö þúsund talsins. Aðalsmerki Bræðslunnar er hin einstaka stemning sem myndast í síldarbræðslunni á tónleikakvöldinu sjálfu. Með alúð við skipulagningu hátíðarinnar og metnaði stjórnenda hefur Bræðslunni tekist að efla menningarlíf, mannlíf og ferðaþjónustu svæðisins og virkjað sköpunargleði og samtakamátt íbúa Borgarfjarðar eystra. Þannig hefur þessu samstarfsverkefni nokkurra heimamanna tekist að skapa Borgarfirði eystra fastan sess í tónleikaflóru sumarsins og varanlegt sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu.


Þrjú verkefni voru tilnefnd og kynnt sérstaklega á Bessastöðum í dag. Hin verkefnin tvö eru Eiríksstaðir í Haukadal og Skjaldborg, heimildarmyndahátíð á Patreksfirði. Handhafar Eyrarrósarinnar frá upphafi eru:
Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; LungA, Listahátíð ungs fólks á Austurlandi, Strandagaldur á Hólmavík, Rokkhátíð alþýðunnar; Aldrei fór ég suður og Landnámssetrið í Borgarnesi


Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Flugfélags Íslands. Markmiðið með Eyrarrósinni er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu á landsbyggðinni. Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn. Fjögurra manna verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa. Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands.  

Eyrarrósin er tákn fyrir blómlegt menningarlíf í dreifðari byggðum landins. Hún þykir fegurst  sumarblóma, ber litskrúðug blóm og er einkar harðgerð. Eyrarrósin er einnig þekkt  lækningajurt.


Umfjöllun valnefndar um hin verkefnin tvö sem tilnefnd voru:

Eiríksstaðir

Aðstandendur Eiríksstaða í Haukadal hafa sýnt aðdáunarvert frumkvæði í miðlun menningararfs með uppbyggingu tilgátubæjar þar sem landkönnuðurinn Leifur heppni er uppalinn. Að Eiríksstöðum upplifa gestir á trúverðugan hátt umhverfi daglegs lífs fyrir þúsund árum og með því eflist vitund Íslendinga, erlendra ferðamanna og ekki síst barna um menningararf þjóðarinnar. Þátttaka heimamanna í uppbyggingu Eiríksstaða hefur verið mikil og hefur hún stuðlað að aukinni þekkingu innan héraðs á fornu handverki og sögu og þróað sjálfa hugmyndina um söfn og hlutverk þeirra. Eiríksstaðir í Haukadal eru framúrskarandi dæmi um fagmennsku og metnað í uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu.

Skjaldborg
Skjaldborg – hátíð íslenskra heimildarmynda, er haldin árlega í kvikmyndahúsinu Skjaldborg á Patreksfirði. Á Skjaldborg fá kvikmyndaáhugamenn aðgang að fjölbreyttri flóru heimildarmynda þar sem hið smáa, stóra, skrýtna og ódýra er lagt að jöfnu. Aðgangur að hátíðinni er ókeypis og sýnt er við bestu aðstæður í nýuppgerðu kvikmyndahúsi bæjarins, auk þess sem boðið er upp á umræður og margvíslega viðburði í bæjarfélaginu á meðan á hátíð stendur. Gildi Skjaldborgar fyrir menningartengda ferðaþjónustu á sunnanverðum Vestfjörðum er óumdeilt og hefur hátíðinni tekist að vekja áhuga ungra kvikmyndagerðarmanna víðsvegar að af landinu á byggðarlaginu. Að frumkvæði aðstandenda Skjaldborgar er Patreksfjörður því orðinn höfuðborg heimildarmyndarinnar á Íslandi.




Aðalsamstarfsaðilar Listahátíðar í Reykjavík

langnav


Þetta vefsvæði byggir á Eplica