Eyrarrósin 2009
Eyrarrósin 2009 kom í hlut Landnámsseturs Íslands í Borgarnesi
og veittu aðstandur þess, þau Kjartan Ragnarsson og Sigríður Margrét Guðmundsdóttur, viðkenningunni móttöku í dag við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Fjölmennt var við athöfnina en auk afhendingar viðurkenningarinnar, flutti Ólöf Arnalds eigin tónlist við góðar undirtektir gesta.
Í umsögn valnefndar um Landnámssetrið segir: Þrátt fyrir ungan aldur hefur Landnámssetur Íslands skipað sér traustan sess í menningarflóru landsins með áherslu á að kynna landnám Íslands og Íslendingasögurnar með nýstárlegum hætti. Hinu metnaðarfulla hlutverki þess að fræða, miðla og skemmta hefur verið afar vel tekið af innlendum sem og erlendum gestum. Það má ekki síst merkja af stöðugum straumi fólks af höfuðborgarsvæðinu og öllu landinu sem flykkist til að sjá rómaðar leik- og sögusýningar. Landnámssetur Íslands er mikil lyftistöng fyrir Borgarnes og nágrenni, iðandi af lífi og krafti og óhætt að fullyrða að það hafi auðgað menningarlífið á svæðinu.
Sjá nánar um fjölbreytta starfsemi og spennandi dagskrá Landnámsseturins á www.landnam.is
Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti viðurkenninguna og hún er jafnframt verndari Eyrarrósarinnar.
Þrjú verkefnin voru tilnefnd og kynnt sérstaklega á Bessastöðum í dag. Hin verkefnin tvö eru Eyrbyggja, sögumiðstöð í Grundafirði og Skaftfell¸ miðstöð myndlistar á Austurlandi, Hlutu þau 200 þúsund króna fjárstyrk hvort og flugmiða frá Flugfélagi Íslands
Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherraflutti ávarp við athöfnina. Hrefna Haraldsdóttir listrænn stjórnandi hátíðarinnar sagði einnig nokkur orð.
Ákveðið hefur verið að efna til áframhaldandi samstarfs um Eyrarrósina og hafa aðstandendur hennar; Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Flugfélags Íslands, Aðalsteinn Þorsteinsson forstjóri Byggðastofnunar og Hrefna Haraldsdóttir stjórnandi Listahátíðar í Reykjavík þegar undirritað samning þess efnis til næstu þriggja ára.
Fyrstu Eyrarrósina, sem afhent var árið 2005, hlaut Þjóðlagahátíðin á Siglufirði; 2006 féll hún í skaut LungA, Listahátíðar ungs fólks á Austurlandi. Eyrarrósina 2007 hlaut Strandagaldur á Hólmavík og í janúar á síðasta ári kom hún í hlut hinnar ísfirsku Rokkhátíðar alþýðunnar; Aldrei fór ég suður.
Eyrarrósin var stofnuð árið 2004 þegar Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands gerðu með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni til þriggja ára í tilraunaskyni. Afar vel hefur tekist til svo ákveðið var að endurnýja samstarfið á síðasta ári. Markmiðið með Eyrarrósinni er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar.
Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn.
Verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa.
Nánar um hinar tilnefningarnar tvær:
Eyrbyggja, sögumiðstöð
Eyrbyggja, sögumiðstöð er menningarmiðstöð Grundarfjarðar í fallegu húsi í hjarta bæjarins. Sögumiðstöðin leiðir fjölbreytta starfsemi á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu og safnastarfs, sem og öflugt menningarstarf fyrir heimamenn á öllum aldri. Eyrbyggja, sögumiðstöð hefur sinnt því hlutverki að safna, rannsaka, miðla og varðveita minjar um sögu svæðisins einstaklega vel. Í sögumiðstöðinni er jafnframt lögð rík áhersla á sagnalist þar sem endurreisn sagnahefðar og þjóðsagna er í fyrirrúmi og hefur þar m.a. verið staðið að fyrstu alþjóðlegu sagnahátíðinni á landinu. Eyrbyggja, sögumiðstöð glæðir Grundarfjörð og Snæfellsnes allt lífi með fjölbreyttri starfsemi og eflir um leið vitund almennings um menningararf og sögu.
Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi
stendur í sögufrægu húsi í gamla bænum á Seyðisfirði og er sérstaða þess óumdeild. Með sýningum á framsækinni myndlist, innlendri og erlendri, rekstri gestavinnustofu allt árið um kring og fræðslutengdum verkefnum fyrir skólabörn, hefur Skaftfell ekki einungis sýnt fram á afar metnaðarfullt starf, heldur einnig sannað gildi sitt sem skapandi og lifandi afl á Austurlandi. Skaftfell var stofnað til að heiðra minningu listamannsins Dieter Roth, en dvöl hans á Seyðisfirði hefur veitt listamönnum mikinn innblástur. Skaftfell laðar að listamenn og listunnendur alls staðar að og eflir með þeim hætti atvinnusköpun á ýmsum sviðum menningar sem og ferðamannastraum á Austurlandi.
Eyrarrósin er tákn fyrir blómlegt menningarlíf í dreifðari byggðum landins. Hún þykir fegurst sumarblóma, ber litskrúðug blóm og er einkar harðgerð. Eyrarrósin er einnig þekkt lækningajurt og segir reynslan að hún sé bólgueyðandi og slái á hitasótt. Hún vex um mest allt land, einkum þó á malarkenndum áreyrum og meðfram ám.
