Eyrarrósin 2008
Eyrarrósina 2008 hreppti tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður
og var hún afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag, 10. janúar, í fjórða sinn. Sl. fjögur ár hefur Aldrei fór ég suður verið haldin á Ísafirði en hátíðin er skipulögð af heimamönnum og áhugafólki um tónlist. Í umsögn dómnefndar um Aldrei fór ég suður segir: Óvenjuleg og spennandi tónlistarhátíð, þar sem ungt fólk er í fararbroddi. Merk tónlistarhefð svæðisins samtvinnuð því nýjasta sem er að gerast í tónlistarlífi landsins. Verkefnið hefur á undanförum árum vaxið og eflst og vakið mikla athygli langt út fyrir landsteinana og skipar þannig alveg sérstakan sess í öflugu tónlistarlífi landsins. Hefur dregið athygli að landshlutanum með einstöku framlagi eins fremsta tónlistarmanns landsins, Mugison. Mikilvægur stuðningur kraftmikilla einstaklinga og bæjarfélagsins hafa tryggt hátíðina í sessi sem eina öflugustu menningarhátíð landsins.
Þeir sem hafa borið hitann og þungann af tónlistarhátíðinni á Ísafirði eru Guðmundur M. Kristjánsson, sonur hans; tónlistarmaðurinn Örn Elías (a.k.a. Mugison), Smári Karlsson, Hálfdán Bjarki Hálfdánarson, Greipur Gíslason, Jón Þór Þorleifsson og Rúnar Óli Karlsson. Aldrei fór ég suður 2008 verður haldin á Ísafirði 21.- 23. mars nk. Sjá nánari upplýsingar á www.aldrei.is
Viðurkenningin er fjárstyrkur að upphæð 1.5 milljón, verðlaunagripur eftir Steinunni Þórarinsdóttur auk flugmiða frá Flugfélagi Íslands. Dorrit Moussaieff forsetafrú afhenti viðurkenninguna og hún er jafnframt verndari Eyrarrósarinnar.
Voru öll þrjú verkefnin kynnt sérstaklega á Bessastöðum í dag. Hin verkefnin tvö eru Safnasafnið og karlakórinn Heimir. Hlutu þau 200 þúsund króna fjárstyrk hvort og flugmiða frá Flugfélagi Íslands en þess má geta að karlakórinn söng á Bessastöðum í dag við mikinn fögnuð viðstaddra.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra flutti ávarp við athöfnina. Þórunn Sigurðardóttur listrænn stjórnandi hátíðarinnar sagði einnig nokkur orð.
Fyrir ári féllu verðlaunin í skaut Strandagaldurs. Önnur verkefni sem fengið hafa Eyrarrósina eru LungA - listahátíð ungs fólks, Austurlandi og Þjóðlagahátíðin á Siglufirði.
Eyrarrósin var stofnuð árið 2004 þegar Listahátíð í Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag Íslands gerðu með sér samkomulag um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni til þriggja ára í tilraunaskyni. Afar vel hefur tekist til svo ákveðið var að endurnýja samstarfið á síðasta ári. Markmiðið með Eyrarrósinni er að efla fagmennsku og færni við skipulagningu menningarlífs og listviðburða á landsbyggðinni, auka kynningarmöguleika einstakra sveitarfélaga og landshluta og skapa sóknarfæri á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Eyrarrósin er veitt einu afburða menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunar.
Auglýst var eftir umsóknum í fjölmiðlum og voru umsækjendur m.a. ýmis tímabundin verkefni, menningarhátíðir, stofnanir og söfn.
Verkefnisstjórn, skipuð forstjóra og stjórnarformanni Byggðastofnunar og stjórnanda og framkvæmdastjóra Listahátíðar í Reykjavík, tilnefna og velja verðlaunahafa.
